Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: KiddiJeep on August 20, 2007, 22:26:12

Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: KiddiJeep on August 20, 2007, 22:26:12
Lumar ekki einhver á góðri aðferð til að ná þessu helvíti úr sveifarásnum?
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: 1965 Chevy II on August 20, 2007, 22:35:03
Það er bara hamar og gott grannt sporjárn.
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: maggifinn on August 20, 2007, 23:40:45
það má líka snitta í kvikindið og herða bolta í botninn til að íta honum úr
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: Dodge on August 21, 2007, 02:19:49
split collet puller?
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: 1965 Chevy II on August 21, 2007, 08:24:50
http://www.autozone.com/in_our_stores/loan_a_tool/clutch/clutch.htm
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: KiddiJeep on August 21, 2007, 10:42:12
jájá ef ég ætti svona græju þá væri ég ekkert að kvarta :lol:
nei mér sýnist sporjárnstrikkið vera að virka, vantar bara nógu lítið sporjárn...
Title: legproblem
Post by: eva racing on August 21, 2007, 18:34:22
Hæ.
Ef þetta er fóðring einsog algengt er fylltu hana af koppa feiti og færð þér svo bolta sem slétt passar og lemur með STORA haminum og kvikindið sprautast úr,..... ásamt slatta af feitinni þannig að það er ágætt að hafa tusku yfir þessu til að fá ekki gumsið í nebbann.  Nota má sömu aðferð við legu en gætir þurft nokkrar koppfeitisfyllingar.... bara messí en voða gaman...
valur.
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: 1965 Chevy II on August 21, 2007, 18:48:59
ÖÖÖSSS ojjj af tvennu illu þá er nú sápu aðferðin skárri...mæli bara með sporjárninu það er smá vinna en snyrtilegra :wink: svo væri gaman að prufa trixið hans Magga.
Title: Hvernig næ ég pilot bearing úr???
Post by: KiddiJeep on August 22, 2007, 00:39:08
Jæja það hafðist loksins að tæta þennan skratta úr fyrir fullt og allt og troða converternum uppá!
Þetta er lega sem er inní fóðringu... ég prófaði þetta koppafeitistrikk eftir leiðbeiningum í Haynes bók en það virkaði auðvitað ekki... ég endaði á að berja leguna bara innúr fóðringunni og hamaðist síðan á henni með sporjárni þar til ég gat plokkað hana úr
ég þakka fyrir hjálpina :spol: