Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: ElliOfur on July 27, 2007, 23:42:55

Title: trackbite
Post by: ElliOfur on July 27, 2007, 23:42:55
Hvað var málið með trackbite-ið áðan ? Kryppan rétt slapp við að fara illa...
Title: trackbite
Post by: Bc3 on July 28, 2007, 00:22:10
já hvað var malið ég var með 4sec i 60 fet held eg hahaha
Title: trackbite
Post by: JHP on July 28, 2007, 00:24:32
Quote from: "Bc3"
já hvað var malið ég var með 4sec i 60 fet held eg hahaha
Nú þannig að þetta hefur virkað fyrir þig  8)
Title: trackbite
Post by: íbbiM on July 28, 2007, 00:51:15
þetta var alveg furðulegt.. á visntri brautini tók ég 1.9 í 60f  og á hægri brautini spólaði ég í 3ja gír á slikkum..
Title: trackbite
Post by: Bc3 on July 28, 2007, 01:02:37
Quote from: "nonnivett"
Quote from: "Bc3"
já hvað var malið ég var með 4sec i 60 fet held eg hahaha
Nú þannig að þetta hefur virkað fyrir þig  8)


 :lol:
Title: trackbite
Post by: Geir-H on July 28, 2007, 01:08:09
Þetta var bara bull og hver ætlar að svara fyrir þetta helvítis rugl
Title: trackbite
Post by: íbbiM on July 28, 2007, 02:20:07
ég veit ekki hvað klikkaði, frekar en að reyna finna sökudólg,

en við vorum hepnir að það varð ekki slys út frá þessu,
Title: trackbite
Post by: 3000gtvr4 on July 28, 2007, 02:23:37
Þetta var bara rugl var á slikkum og spólaði bara

Og þetta hefði getað endað ílla þarna hjá sumum margir 4x4 bílar voru bara stopp í spóli þarna og þetta var ekki gaman :evil:
Title: trackbite
Post by: ingvarp on July 28, 2007, 02:54:15
já nokkur hjól sem hituðu upp dekkin og allt í lagi og síðan fóru þau af stað og spóluðu út 1/8  :?  ég var hálfsmeikur með nokkra þarna en hvernig bíll er þessi kryppa ég náði ekki að skoða hann nógu vel  :?
Title: trackbite
Post by: Marteinn on July 28, 2007, 03:10:34
sáuð nu alveg orange impresuna og einn silver evo, fóru bara á hlið þegar þeir skiptu í 2 gir  :?


þetta var ömurlegt kvöld !


burtu með þetta djöfs rusl, það var alveg enginn að fýla þetta  :!:
Title: trackbite
Post by: íbbiM on July 28, 2007, 03:33:29
þetta væntanlega á að hafa alveg þveröfug áhrif við það sem varð svo raunin,

Hinsvegar fannst mér vinstir brautin farin að grípa vel í endan
Title: Re: trackbite
Post by: Mr.Porsche on July 30, 2007, 17:25:12
Ég vill helst ekki sjá þetta helvítis trackbite  :evil:

Gerði lítið annað en að spóla og wheelhoppa  :lol:
Title: trackbite
Post by: 1966 Charger on July 30, 2007, 19:27:37
Getur verið að á æfingunni á laugardaginn hafi trakkbætið bara verið lagt á c.a. fyrstu 60-100 fetin af brautinni?  Í mínu tilviki a.m.k. náði ég fínu trakki þessi fyrstu fet en síðan fór bíllinn skyndilega að spóla í öðrum gír og í einni bununni kom slíkur slinkur á hann þegar hann fór út úr trakkbætinu að hann stefndi allt í einu til sjávar. Mér sýndist ég sjá fleiri æfendur lenda í þessu.  Ef nota á þetta stöff þá verður að úða miklu lengri kafla brautarinnar (t.d. hálfa brautina).  Að nota það aðeins á fyrstu fetin getur verið hættulegt.

Ragnar
Title: trackbite
Post by: stigurh on July 31, 2007, 08:23:25
Það er rétt að það var bara sett á fyrstu 60ft, VEGNA þess að efnið er af skornum skammti. Og vegna þess að það er erfiðast að komast úr holunni !! Það voru nokkrir sem áttu við svipuð vandamál. Nú skulum við allir segja saman " Við viljum trackbite"
stigurh
Title: trackbite
Post by: 1965 Chevy II on July 31, 2007, 08:50:47
"Við viljum TrackBite"
Title: trackbite
Post by: Big Fish on July 31, 2007, 09:32:59
"Við viljum TrackBite" Ef það er lagt rétt og stigur setur það ekki á verður að leggja það 1.8 ekki 60 fet ég var ekki ánægður með trakið á laugardaginn

kveðja þórður
Title: trackbite
Post by: íbbiM on July 31, 2007, 10:35:32
ég vill trackbite,  mér fannst geðveikt að finna camaroin stinga nefinu til himins eins og imprezu,

batnandi mönnum er best að lifa, ég segi bara respect til stígs að hafa allavega prufað, þetta hepnast bara betur næst
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on July 31, 2007, 12:31:17
ég fór 1,26 en ég veit að Einar fór 1,20 í snjókomu og ekkert trak bite þannig að ég er á móti að það sé notað nema að það sé gert eftir réttum upl :wink:
Title: trackbite
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 31, 2007, 16:57:08
Quote from: "íbbiM"
ég vill trackbite,  mér fannst geðveikt að finna camaroin stinga nefinu til himins eins og imprezu,

batnandi mönnum er best að lifa, ég segi bara respect til stígs að hafa allavega prufað, þetta hepnast bara betur næst

Þegar trakkið var sett síðast á brautina þá var það gert af mönnum sem hafa leitað upplýsinga um hvernig á að setja það á og við hvaða hitastig malbikið þyrfti helst að vera. Það var ekki gert um daginn og allt of mikið notað af því. Þetta er dýrt efni sem verður að nota rétt. Samt sem áður vill ég þakka Stíg fyrir að hafa reynt og gert sitt besta til að gera brautina góða fyrir okkur þó svo það hafi ekki tekist alveg. Það eru ekki allir jafn duglegir og hann Stígur. :)  :)  :)
Title: trackbite
Post by: stigurh on July 31, 2007, 16:57:36
Er ég sekur um mistök, það er ekkert stórmál, ég er alltaf að gera mistök. Það er ýmist í ökla eða eyra, of mikið eða of lítið.  Ég fór loksins spóllaus eina ferð og get því ekki kvartað sjálfur yfir neinu nema bílnum mínum. Mér þykir það leitt að sumir hafi ekki náð að koma hestöflunum niður, vonandi gengur ykkur betur næst.
stigurh
Title: trackbite
Post by: íbbiM on July 31, 2007, 17:07:35
já ég nefnilega vill að það komi skýrt fram að mér finnst virðingavert af stíg að hafa staðið í þessu, að þetta hafi ekki misfarist var auðvitað ekki ætlunin og því bara vonandi að þetta náist rétt næst,

ég reyndar fer ekki af því að gripið á vinstri brautini hafi verið orðið mjög gott í enda æfingunar, ég náði besta tracki sem ég hef náð og 1.9sec í 60f á camaro 2002,

mig hlakkar til að prufa minn þarna með sona grip
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on July 31, 2007, 18:18:19
Quote from: "stigurh"
Er ég sekur um mistök, það er ekkert stórmál, ég er alltaf að gera mistök. Það er ýmist í ökla eða eyra, of mikið eða of lítið.  Ég fór loksins spóllaus eina ferð og get því ekki kvartað sjálfur yfir neinu nema bílnum mínum. Mér þykir það leitt að sumir hafi ekki náð að koma hestöflunum niður, vonandi gengur ykkur betur næst.
stigurh
hvað voru þín 60 fet :?:
Title: trackbite
Post by: Racer on July 31, 2007, 19:35:12
Quote from: "stigurh"
Er ég sekur um mistök, það er ekkert stórmál, ég er alltaf að gera mistök. Það er ýmist í ökla eða eyra, of mikið eða of lítið.  Ég fór loksins spóllaus eina ferð og get því ekki kvartað sjálfur yfir neinu nema bílnum mínum. Mér þykir það leitt að sumir hafi ekki náð að koma hestöflunum niður, vonandi gengur ykkur betur næst.
stigurh


ein mistök eru ekkert miðað við gott trackbite gegnum árin og héld að Stígur sé sá eini sem nennir að keyra þetta út brautina.
Title: trackbite
Post by: Einar K. Möller on July 31, 2007, 22:36:38
Stjáni,

Einar B. tók 1.18 60ft í 8.05 @ 174mph ferðinni, ég fann miðann yfir þessa ferð uppí skúr hjá mér.
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on July 31, 2007, 22:51:59
já en hann var líka með 555 þegar hann tók 1,20 í sjókomu í sama bíl  :wink: ps 1,18 er það met :?:
Title: trackbite
Post by: Einar Birgisson on July 31, 2007, 22:53:54
Stjáni það var 1.22 með 555.
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on July 31, 2007, 22:55:11
tómatur tómatar :lol:
Title: trackbite
Post by: Bc3 on July 31, 2007, 22:57:25
pulsa pYlsa  :roll:  :roll:   :lol:
Title: trackbite
Post by: Einar Birgisson on July 31, 2007, 23:04:00
Spaði Spaði.
Title: trackbite
Post by: Bc3 on July 31, 2007, 23:11:26
l4 < v8
Title: trackbite
Post by: Björgvin Ólafsson on July 31, 2007, 23:13:48
Er það þá aðalspaðinn?
Title: tracbite
Post by: Ómar N on August 02, 2007, 21:36:41
Haldið þið virkilega að Stigur hafi verið að gera mönnum til vansa með því að setja efnið á brautina og eyða heilu kvöldi í verkið.  Nei honum ekkért nema    gott til. Burt séð frá því að lítið var til tracbitinu þá var allavega hugmyndin að bæta tracið og ekki var vanþörf á því. Það verður að virða menn fyrir vekið. Það eru fáir sem hafa lagt jafn óeigingarna vinnu fyrir klúbbinn og Stigur
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on August 02, 2007, 21:48:36
það var ekkert verið að setja út á hann :evil:  mér fynst að það eigi ekki að vera að sulla þessu á nema það sé gert eins og það á að gera það er ekki nó bara sulla þessu á ekki rétt :wink:
Title: tracbite
Post by: Ómar N on August 02, 2007, 22:10:45
Kristján þú er einn stærsi kaliberinn í kvartmilu hér á Íslandi.Mér rennur til skildunar. Ég skil ekki að Þú trúir því að það hafi verið sullað á brautina. Ég       veit það að þú veist betur. félagi Ómar N
Title: Re: tracbite
Post by: Jón Þór Bjarnason on August 02, 2007, 23:41:32
Quote from: "Ómar N"
Kristján þú er einn stærsi kaliberinn í kvartmilu hér á Íslandi.Mér rennur til skildunar. Ég skil ekki að Þú trúir því að það hafi verið sullað á brautina. Ég       veit það að þú veist betur. félagi Ómar N

Það var sett of mikið og ekki í réttu hitastigi og ekki eins og það á að setja það á. Við erum komin með mannskap sem kann að setja þetta á og var ætlunin að setja trakkið á fyrir laugardag. Það var ekki hægt vegna þess að veðrið var ekki hagstætt fyrir efnið. Ég og fleiri erum ekki að ráðast á Stíg þvert á móti. Við þökkum honum hans eldhug fyrir að vilja gera eitthvað. Það er bara málið að tala við stjórn áður en eitthvað er framkvæmt svo hægt sé að fá réttar upplýsingar.
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on August 02, 2007, 23:45:08
ja það var td ekki notuð dekk eða gúmi til að setja það niður eftir efnið ekki rétt :? efa þetta er svona gott afhverju fer t,d Eb 1,22 í sjókomu og öll verstu skilirði og svo með þessu efni í topp aðstæðum 1,3? á sama bíl  :?:  :?:  :?:
Title: trackbite
Post by: chewyllys on August 03, 2007, 00:33:31
Snjor og bylur !!! og þá væntanlega skitkallt ?? það er betri performer fyrir mótorinn....,
en hvað veit eg...bara pæling :roll:
Title: trackbite
Post by: stigurh on August 03, 2007, 08:29:20
Þórður kom með fyrsta trackbite ið og við blönduðum það með metanoli 50/50. Ég setti það á brautina á keppnisdag kl 9-10 og það í miklu magni. Einn maður átti í vandræðum þá og var það Viðar Finnson á mótorhjólinu. þetta mun vera sömu efnin í sömu hlutföllum ! En það hagar sér ekki eins !
Hitinn var hár enda sólin búin að skína allan daginn svo það var bara of mikið efni sett á brautina. Ég setti tvisvar á 60ft en það hef ég alltaf gert ! Kannski er komið meira gúmmí niður núna svo það virkar eins og það sé sett miklu meira !

Ég biðst afsökunar á "sleipunni" sem sumir upplifðu þarna og þakka þeim sem koma fram og bera blak af mér.

stigurh
Title: trackbite
Post by: Kristján Skjóldal on August 03, 2007, 09:41:13
Quote from: "chewyllys"
Snjor og bylur !!! og þá væntanlega skitkallt ?? það er betri performer fyrir mótorinn....,
en hvað veit eg...bara pæling :roll:
það verða nú ekki betri 60f við það :roll:
Title: trackbite
Post by: 1966 Charger on August 03, 2007, 11:37:02
Já þetta er víst nokkur kúnst að rjóða þessu brautarbiti á og Stígur er örugglega efni í brautarbitsmeistara.  T.d. segja menn fyrir westan að ekki þýði að nota það ef brautarhiti er undir 10C.  Hann var þó örugglega yfir þeim mörkum síðast.  Annað sem skiptir máli er að efnið sé lagt nægilega langt AFTUR FYRIR startlínuna til að þau keppnistæki sem eru með lengst bil á milli fram- og afturhjóla hafi efnið undir afturhjólunum þegar tækið situr á ráslínunni.  Við erum að tala um afturdekk lengstu dragstera hér.

Þetta getur bara batnað.

Err
Title: trackbite
Post by: 1966 Charger on August 03, 2007, 11:56:22
Aðeins meira um brautarhitann.  Vitrir menn segja mér að:

Brautarhiti á bilinu 32-38 C gráður sé bestur varðandi trakk. Hitni brautin meira versnar trakkið og verður eins og svell við 54 C gráðu hita.

Fari brautarhitinn niður fyrir 32 C gráður versnar ástandið smám saman og sé hann kominn undir 18 C gráður þá er hitinn farinn að hafa veruleg neikvæð áhrif á trakkið.

Það væri flott ef KK ætti yfirborðshitamæli þannig að hægt væri að spekúlera í þessari breytu betur eins og hún birtist á brautinni hér.

Err
Title: trackbite
Post by: stigurh on August 03, 2007, 12:27:07
Hitinn á reykjanesbrautinni var 24 þann daginn ! Það er skilti með uppl. um loft og veghita á leiðinni, líklega svipað á brautinni.