Markaðurinn (Ekki fyrir fyrirtæki) => BÍLAR til sölu. => Topic started by: spiderman on July 26, 2007, 01:09:10
-
Nú er nýja vettan komin til landsins og því hef ég lítið við þennan bíl að gera þrátt fyrir að þetta sé ein geðbilaðasta græja sem ég hef komist í tæri við :shock:
Upplýsingar um bílinn
Bíllinn kom á götuna árið 2001 í USA, hann er skráður 2001 módel í Carfax en í eigandahandbók og fleiri gögnum er hann skráður 2002 módel. Ég er fjórði eigandi en náunginn sem seldi mér bílinn í janúar sl. var búinn að eiga hann síðan sumarið 2003.
Bíllinn kallast Corvette Coupe og er með glertoppi sem hægt er að taka af. Hann er í mjög góðu standi enda einungis keyrður 37 þúsund mílur. Krafturinn í þessu er ótrúlegur enda vegur bíllinn bara 1458 kg og búinn 5,7 lítra V8 (LS1) vél sem skilar 350 hestöflum og togar 360 lb-ft við 4.400 snúninga. Skv. uppgefnum tölum á netinu nær C5 sjálfskiptur 100 km hraða á 4,9 sekúndum.
ATH þessi bíll er 2001 módel og því með Second-Generation Active Handling system sem er nú standard í öllum Corvettum. Auk þess er 2001 bíllinn 350 hestöfl í stað 345 hö í 1997-2000 bílunum. Mesta breytingin var þó aukið tog á lægri snúning, en með smávægilegum breytingum og auknu loftflæði var unnt að gera sjálfskiptan 01 bíl jafn sprækan og beinskiptan 00 bíl.
Þetta er vel útskýrt hér
• 300 lb-ft is delivered at 1,000 rpm - 400 rpm earlier than before
• 320 lb-ft is delivered at 1,400 rpm - 800 rpm earlier than before
• 340 lb-ft is delivered at 2,500 rpm - an amazing 1,400 rpm earlier than before
• Maximum torque of 360 lb-ft for automatics, 375 lb-ft for manuals, arrives at 4,400 rpm.
Bíllinn er Navy blue metallic og er lakk nokkuð gott þó ekki veiti af að gusa á stuðarann eftir grjótkast. Felgurnar kallast Y2K Thin Spokes og eru að mínu mati þær fallegustu sem fengust frá GM á þessum tíma.
Bíllinn er mjög vel búinn og má þar nefna:
Bose hljóðkerfi
Skjávarpi sem varpar hraðamæli og öðrum upplýsingum á framrúðuna
Rafmagn í öllu með minni
Tölva sem sýnir fáránlegustu upplýsingar
Bíllinn er með athugasemdalausa 08 skoðun og í mjög góðu ástandi :!:
Verð
Ásett verð er kr. 4.990.000,-
Staðgreiðslu verð er kr. 3.890.000,-
Það þýðir ekkert að bjóða mér 3 milljón króna bíl uppí staðgreiðsluverðið og ég hef engan áhuga á jafndýrum bílum eða dýrari. :!:
Það er ekkert áhvílandi og það stendur ekki til að setja lán á þennan bíl þannig að kaupandi verður að redda því sjálfur, TM lána hins vegar út á bílinn.
Upplýsingar:
Í PM
Í síma 6973379
Netfang olafur@logretta.is
Myndir
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette2.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette10.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette6.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette5.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette4.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette25.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette24.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette11.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette21.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette20.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette16.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette18.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette15.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette3.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette19.jpg)
(http://i48.photobucket.com/albums/f232/hvanndal/Vette7.jpg)
ATH, breytt verð 1.september
Bíllinn fæst á rugl verði eða kr. 3.490.000 :!: Það er lang besta verðið á klakanum enda innflutningsverð.
Ath þetta er einn af fáum C5 bílum á Íslandi sem er ekki með skráðan árekstur eða vatnstjón í Carfax.
Þetta verð miðast eingöngu við staðgreiðslu, það er lítið mál að útvega 100% lán myndi ég halda :!: