Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on July 24, 2007, 11:12:13

Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 24, 2007, 11:12:13
Ég fór upp á braut í nótt eftir vinnu og blasti þar ófögur sjón. Það var búið að spenna eina hurð upp og brjótast inn. Andvirði þess sem var stolið núna er sirka + 100 þúsund. Hurfu meðal annars 4-5 splunku nýir hjálmar sem hafa aldrei verið notaðir sem Ellert Hlíðberg kom með til okkar. 2 kassar af byggingardóti metnir á 20 þús hvor. Hellingur af svala. Slatti af Sprite. Hraðsuðuketill og eitthvað fleira.

Allt er þetta út af því að skotfélagið þarf að fara um svæðið okkar og geta ekki lokað og læst hliðinu á eftir sér.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Pababear on July 24, 2007, 11:25:11
Það er alveg ótrúlegt hvað fólk legst lágt með að stela frá öðrum en er ekki búið að brjótast inn í húsið mörgum sinnum? Það liggur við að maður þurfi að víggirða húsnæði svo að það sé hægt að hafa hluti í friði!
Ég vona að það komist fljótt upp um þessi fífl og dusilmenni sem voru að ræna þetta hjá ykkur en við verðum allir að hafa augum opin þar sem varningurinn þarna er líklega kominn beint í sölu einhverstaðar!

Einnig væri lágmark að skotfélagið myndi biðjast afsökunar á að hafa ekki lokað eftir sig!!
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 24, 2007, 11:32:12
Það er búið að brjótast 3svar inn til okkar síðan í vetur og skilst mér á öllu að tap á þessum stuldi sé komin í milljón kallinn núna síðan í vetur.  :twisted:  :twisted:  :twisted:
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Pababear on July 24, 2007, 11:39:51
Ég vona að fyrir klúbbinn að þetta sé allt tryggt því þetta er svakalegt tap fyrir alla.
Er ekki málið að víggirða húsið almennilega af eða þá að setja eitthvað einfalt eftirlitskerfi svo það fæli þjófa og skemmdarvarga frá?
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: baldur on July 24, 2007, 11:46:18
Alveg er þetta óþolandi.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 24, 2007, 11:47:24
Ekkert af þessu er tryggt. Við getum ekki tryggt neitt í þessu húsi vegna seinagangs hjá Hafnfirskum bæjarstarfsmönnum. Það er ekki ennþá búið að samþykkja deiliskipulag fyrir svæðið og þar af leiðandi ekki komið fast númer á húsið sem við þurfum til að tryggja.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Pababear on July 24, 2007, 11:53:38
Þá er bara málið að fara með þetta í fjölmiðla þar sem þessir pappíraplebbar eru að drolla með þetta vikum saman ef ekki mánuðum sem árum en ég á við sama vandamál en ég er búinn að tapa 3 mánuðum í byggingatíma á húsinu mínu vegna svona pappírspésa hjá bæjaryfirvöldum þar sem hann verður að láta pappírana rykfella áður en það er hægt að gera neitt og þetta kostar mann stór fé! En það virðist alltaf fá þessa pólutíkusa til að gera eitthvað með að fara með þetta í fjölmiðlana og með það að klúbbhúsið fær ekki frið fyrir þjófum og skemmdarvörgum er góður punktur til að troða því í smettið á þeima að þið getið ekki tryggt þetta! :evil:
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Racer on July 24, 2007, 13:26:17
núna er maður reiður...

þýðir ekkert en ég er til að eyða tímanum mínum að eltast við þessa aðila sem ræna og ræna.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Belair on July 24, 2007, 14:18:31
kominn tími á svona 2 falda svona með 2 merta milli

(http://www.girding.is/images/ahsshop/AXIS_D/Axis_D_vert_2_EC.jpg)

og hafa þar 4 svona

(http://eggshell-diarium.com/wp-content/uploads/2007/02/dog_growl11.jpg)

og þetta hlið

(http://www.girding.is/components/com_ahsshop/images/vara398.jpg)
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 24, 2007, 14:36:54
BEL-AIR þú gleymir 100.000 voltunum í girðingunni og jarðsprengjusvæðinu.  :D  :D  :D
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Belair on July 24, 2007, 14:42:15
nei við erum bara með rafstöð upp á braut og við erum í nato og að er bann við nokkun á jarðsprengju  :D
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: ljotikall on July 24, 2007, 15:32:24
hvernig væri bara ad skifta um lás a hliðinu og sleppa þvi ad lata skotfélagið hafa lykil??
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Valli Djöfull on July 24, 2007, 15:46:35
Quote from: "ljotikall"
hvernig væri bara ad skifta um lás a hliðinu og sleppa þvi ad lata skotfélagið hafa lykil??

Búið, hann var boraður út  :lol:
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Gulag on July 24, 2007, 17:04:33
er ekki hægt að koma vídeoupptökuvél einhversstaðar á leiðinni á brautina?  þá allavega í 1sta lagi yrði hægt að sjá bílana sem fara þarna uppeftir, og svo myndi svona vél fæla mikið frá..
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Belair on July 24, 2007, 17:22:53
nú sða fara að hætti Israel

(http://www.eappi-us.org/EAPPI/SeparationWall-Qalqilya.jpg)
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: JHP on July 24, 2007, 17:58:58
Quote from: "AMJ"
er ekki hægt að koma vídeoupptökuvél einhversstaðar á leiðinni á brautina?  þá allavega í 1sta lagi yrði hægt að sjá bílana sem fara þarna uppeftir, og svo myndi svona vél fæla mikið frá..
Það er lítið mál að komast inn á brautina eftir öðrum leiðum.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Gulag on July 24, 2007, 20:30:32
ég held ég geti lofað þér að þetta lið sem er að brjótast svona inn nennir ekki að labba neitt..

en annars,, þessir hjálmar? myndir eða eitthvað ef maður skyldi sjá þetta einnversstaðar?
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: einarak on July 24, 2007, 22:17:24
afhverju fer ekki einhver þarna og grefur naglaspýtu í veginn fljótlega eftir hlið? í alvöru! bara muna að láta alla sem eru með lykil vita  :lol:
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Valli Djöfull on July 24, 2007, 22:28:30
Þetta voru splunkunýjir hjálmar frá Nítró..  Alls konar skrautlitaðir, vantaði eitt og annað á þá en annars öryggið í 100% lagi..  Vantaði skyggni og fl. í þeim dúr..
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: JHP on July 24, 2007, 23:24:36
Quote from: "AMJ"
ég held ég geti lofað þér að þetta lið sem er að brjótast svona inn nennir ekki að labba neitt..

en annars,, þessir hjálmar? myndir eða eitthvað ef maður skyldi sjá þetta einnversstaðar?
Ég kom um daginn akandi eftir línuvegi á fjórhjóli og endaði inn á braut og það var bara bílavegur.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Belair on July 25, 2007, 00:36:32
Quote from: "einarak"
afhverju fer ekki einhver þarna og grefur naglaspýtu í veginn fljótlega eftir hlið? í alvöru! bara muna að láta alla sem eru með lykil vita  :lol:

þu ert gamla dags

6 svona

(http://www.kibo-system.dk/files/billeder/Mekanisk/PUE_30_A.jpg)

fyrir framan svona

(http://www.kibo-system.dk/files/billeder/Mekanisk/SKB10_A.jpg)
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: edsel on July 25, 2007, 14:02:17
vantar ekki bara svona girðingu og menn með rifla
(http://pictures.polandforall.com/images/auschwitz-camp-fences-guard-towers.jpg)
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Röggi on July 25, 2007, 19:11:47
Andskotans fokking helvítis aumingjar sem eru að þessu :evil:  :evil:
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: chewyllys on July 25, 2007, 20:09:23
Sammála,djö.....skítapakk.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: maggifinn on July 25, 2007, 20:44:43
ég kom nú við áðan í hliðinu á leiðinni heim. Ekki er fyrir lyklalausan að loka hliðinu því lásinn er læstur til að halda hliðinu uppi.
 
er það ekki ástæðan fyrir þessu? varla eru allir þessir byssumenn með lykil sem eiga leið þarna um?  
 
 Ég keyri framhjá þarna á hverjum degi og er hliðið nánast alltaf opið.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: Kristján F on July 25, 2007, 23:58:36
Quote from: "maggifinn"
ég kom nú við áðan í hliðinu á leiðinni heim. Ekki er fyrir lyklalausan að loka hliðinu því lásinn er læstur til að halda hliðinu uppi.
 
er það ekki ástæðan fyrir þessu? varla eru allir þessir byssumenn með lykil sem eiga leið þarna um?  
 
 Ég keyri framhjá þarna á hverjum degi og er hliðið nánast alltaf opið.

Við vorum á stjórnarfundi upp í félagsheimili og bara meðan við vorum þarna þá komu þrír bílar inn á svæðið afþví að þeir sáu að hliðið var opið. Þannig að liggur alveg ljóst fyrir hvað það er mikil traffík inn á svæðið þegar hliðið er skilið eftir opið heilu og hálfu dagana. Það er búið að tilkynna skotfélagsmönnum að þeim sé óheimilt að nota þennan veg að svæðinu og að fara í gegnum pittinn og tilbaka veginn inn á sitt svæði. Þeir þurfa og eiga að fá annan veg sem þeir verða annaðhvort að borga sjálfir eða að Hafnarfjörður hlaupi undir bagga með þeim. KK ætlar að loka svæðinu fyrir þessum skotfélagsmönnum því það verður ekki liðið lengur þetta virðingarleysi frá þessum mönnum. Fyrir utan það að á ekki að líðast að það sé verið að keyra yfir brautina og í gegnum pittinn þegar við erum að nota okkar aðstöðu.
Title: BROTIST INN HJÁ KK AFTUR
Post by: 1965 Chevy II on July 26, 2007, 01:06:36
Quote from: "Kristján F"

=D> maður með bein í nefinu.