Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: 72 MACH 1 on July 19, 2007, 16:56:58

Title: HITTINGUR. 1957 Buick Century 2 DR Hardtop.
Post by: 72 MACH 1 on July 19, 2007, 16:56:58
Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna nýinnflutta bíla, eða bíla sem ekki hafa sést lengi á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18.

Næstkomandi fimmtudagskvöld eða þann 19 júlí kl: 20:00 sýnum við
glæsilegann 1957 Buick Century 2 DR Hardtop.

Bíllinn var að koma frá USA og var seljandi búinn að eyða góðum slatta af $$$$ í hann. Bíllinn er einn sá glæsilegasti á landinu og skora ég á alla að mæta, sem sjá sér það fært!

Um 21:30 verður síðan tekinn rúntur í bæinn, en það verður auglýst á staðnum, og fer að sjálfsögðu eftir veðri.

Sífellt er aukning á meðlimum í Krúser og telja þeir á fimmta hundraðið nú þegar!

Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt Coca Cola og súkkulaði með til að seðja hungrið.

Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta á þetta! Hvar verður þú??

Með kveðju,
Krúser-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.
Title: HITTINGUR. 1957 Buick Century 2 DR Hardtop.
Post by: motors on July 24, 2007, 23:39:50
Þessi er örugglega í topp 10 yfir flottustu bíla landsins töff vagn og flott handbragð,til hamingju.... 8)
Title: HITTINGUR. 1957 Buick Century 2 DR Hardtop.
Post by: edsel on July 25, 2007, 13:56:23
svalur þessi 8)  8)  8)
Title: HITTINGUR. 1957 Buick Century 2 DR Hardtop.
Post by: burgundy on July 25, 2007, 16:11:07
Vá :smt118