Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on June 17, 2007, 22:55:36
-
Kvartmíluklúbbnum vantar laghentan mann til að gera við annan öryggisbíl klúbbsins. Um er að ræða báða dempara að framan, báða bremsubiskana og borðana að framan. Einnig þarf að skipta um vatnskassanum. Þessir varahlutir eru allir til. Startarinn er farinn að gefa sig og ef einhver á startara sem passar í Dodge Dakota 1993 5.2L (318) þá væri það frábært.
-
Yfir 200 flettingar. Hvað er þetta er enginn sem vill gera góða hluti fyrir KK gegn vægri greiðslu.
-
Ég skal græja þetta eftir helgi.
-
Siggi er maðurinn..............þú færð plús í kladdan.
Kv. Nóni
-
Er til í að aðstoða Siggann þegar hann fer í þetta, hann kann að hafa samband við mig ekki málið............
-
Glæsilegt og takk kærlega. Hringiði í mig þegar þið viljið fá bílinn. Það þarf nefnilega að senda hann á palli.
-
Glæsilegt og takk kærlega. Hringiði í mig þegar þið viljið fá bílinn. Það þarf nefnilega að senda hann á palli.
Ég get flutt hann á palli frítt,á líka til startara úr 5,2 grand sem ég er til í ad láta ef hann passar.
Hilmar
S 8228171
-
Takk kærlega strákar. Þetta er frábært.
-
Jæja þá er kominn mánuður síðan Siggi ætlaði að taka að sér að gera við pikkann en ekkert gerst enn og klúbburinn getur ómögulega staðið í því að greiða af 2 bílum. Ef einhver er tilbúinn að hjálpa okkur að lappa upp á hann fyrir lítið þá væri það frábært.
-
Þú verður að vera rólegur.
Ég var að skila af mér Mustanginum hans Ella núna rétt áðan.
Verð í bandi við þig.
-
hann sagði eftir helgi, aldrei hvaða helgi :)
-
Jæja þá er kominn mánuður síðan Siggi ætlaði að taka að sér að gera við pikkann en ekkert gerst enn og klúbburinn getur ómögulega staðið í því að greiða af 2 bílum. Ef einhver er tilbúinn að hjálpa okkur að lappa upp á hann fyrir lítið þá væri það frábært.
Þarf eitthvað að greiða af þessum pikkupp, getur hann ekki verið uppá braut númerslaus einsog OF bílarnir? Er ekki toyotan notuð í snattið til og frá brautinni hvorteðer, má þá ekki láta pikkan standa úti uppá braut einsog annarsstaðar í bænum?

Ehm.. Held að menn hafi lært það af slæmri reynslu að það þýðir ekki að skilja neitt eftir þarna uppfrá sem er nokkurs virði því þá er því stolið :lol:
Ef pickuppinn yrði skilinn eftir þarna myndum við líklega finna hann daginn eftir á hvolfi einhversstaðar þarna uppfrá...:)
-
ég treysti ekki einu sinni að hafa ömmu gömlu þarna yfir nótt.
annars var nú pæling að byggju skýli yfir rauða drjólann fyrir nokkru.
annars á að selja hann svo það þýðir ekkert að hafa hann uppá braut eða hvað?
-
Hann fer ekki upp á braut nema á kerru því hann er bilaður og bilaðir bílar seljast ekki.
-
égskaltakanná15k :D
-
égskaltakanná15k :D
Búið að versla varahluti fyrir TUGI þúsunda................
-
égskaltakanná15k :D
Búið að versla varahluti fyrir TUGI þúsunda................
Nonni eg held að Elli hafi átt við að hann taki hann frá A til Ö i geng fyrir 15K :lol: ekki rett Elli :wink:
-
Ef það er málið hvenar hefurðu tíma.
-
Ég var reyndar að spauga, því ég er búinn að kaupa núna 2 fína bíla á klink í sumar sem algjört smotterí var að og gera þá mjög góða :) Því miður þá hef ég ekki tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut af öllu því sem ég var búinn að taka að mér og gera og græja sem sést nú best á mínu helsta hobbyi, ToySAABinn góði stendur ennþá og á bara eftir að græja húddið (aftur), púst og vélartölvu og þá er hann nánast klár á brautina...
Öll mín aðstaða er líka uppí Borgarfirði
-
Hann fer ekki upp á braut nema á kerru því hann er bilaður og bilaðir bílar seljast ekki.
Ég vildi nú kaupa hann á sínum tíma bilaðan en þú sagðir að hann væri seldur.
-
Hann fer ekki upp á braut nema á kerru því hann er bilaður og bilaðir bílar seljast ekki.
Ég vildi nú kaupa hann á sínum tíma bilaðan en þú sagðir að hann væri seldur.
Það var strákur sem ætlaði að takann á 200.000.- svo guggnaði hann á því. Ég er ekki einn í stjórn og það þurfa nokkrir aðrir að samþykkja allt sem er gert. Þar fyrir utan var þitt tilboð ekki ásættanlegt.
-
Ekki ennþá komið í gegn ??
-
Ekki ennþá komið í gegn ??
Hvað :?:
-
Viðgerðin á bílnum... myndi með glöðu geði gera við bílinn ef að það væri hægt að keyra hann, eins og þú kannski veist ;)
-
Viðgerðin á bílnum... myndi með glöðu geði gera við bílinn ef að það væri hægt að keyra hann, eins og þú kannski veist ;)
Röggi en ef Nonni B kæmi með billinn á Variant 3004 til þinn myndir þú gera við hann ?
(http://trailercenter.dk/grafikker/3004_A4_Auto_Helbund_250x160.jpg)
Variant 3004 A4 Bílakerra
Þyngd kerru 625 kg
Lengd 599 cm
Breidd 242 cm
Hæð 21 cm
Dekkjastærð 14"
Farmþyngd 62.375 kg
Eingöngu í leigu hjá Select Suðurfelli.
-
Ég er alveg til að leggja hjálparhönd á bílinn hjá KK
Ekki málið
Bjallið bara í mig í síma 8476652