Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: firebird400 on June 05, 2007, 21:08:29
-
Eru þær seldar hérna heima, og hvar þá
:D
Vitið þið hvaða olíur innihalda ennþá
"zinc dithiophosphate"
Þetta er efni sem var í öllum olíum en hefur verið tekið úr flestum til að kæta mengunar stöðlum.
Þetta efni er í flestum "Brake-In" bætiefnum.
Einnig, ég gat ekki pantað Brake-In bætiefni frá Summit vegna þess að þetta efni var í því.
Hvar get ég fengið gott Brake-In bætiefni hérna heima
Kv.
-
Einnig, ég gat ekki pantað Brake-In bætiefni frá Summit vegna þess að þetta efni var í því.
Hvar stoppaði það ferli? úti eða hér heima?
Kv.Siggi
-
Summit neitar að senda vörur sem hafa undirnótur 3 og 4 á heimilisföng utan USA
(3) The part is classified hazardous.
(4) If you purchase this part, your order can only be shipped by ground.
Þó svo að ég hafi ætlað að senda þetta á addressu innan bandaríkjana þá vildu þeir það ekki, ég bý utan usa og það er nóg til þess að ég fékk þetta ekki
-
Pantaðu þetta bara hér:
http://www.competitionproducts.com/
Eric er fínn náungi ef þú villt spjalla við þá.
-
Summit neitar að senda vörur sem hafa undirnótur 3 og 4 á heimilisföng utan USA
(3) The part is classified hazardous.
(4) If you purchase this part, your order can only be shipped by ground.
Þó svo að ég hafi ætlað að senda þetta á addressu innan bandaríkjana þá vildu þeir það ekki, ég bý utan usa og það er nóg til þess að ég fékk þetta ekki
Var einmitt að lenda í þessu sama. Hef áður keypt af þeim efni sem voru svona merkt en nú má ég ekki einu sinni kaupa af þeim bón. Fáránlegar reglur!
-
20/50w smurolíur ætlaðar dieselvélum innihalda ennþá zinc diophospate
en ég efast um að nokkur vilji nota svona þykkar olíu á bensínvél
Halldór
-
Ég hef eitthvað verið að spá í þessu og eftir að hafa lesið þessa grein (http://www.hotrod.com/techarticles/engine/flat_tappet_cam_tech/oil_summary.html) þá skoðaði ég hvað er í boði hérna heima og fann það út að Shell Rimula Super (15W-40 diesel) fellur í þennan flokk sem er mælt með (API CI-4) og á því að innihalda zinc og sitthvað fleira sem við þurfum í gömlu mótorana. Þetta er a.m.k. sú olía sem ég hafði hugsað mér að nota á mótorinn sem ég er að fara að klambra saman í jeppahauginn minn...nema einhver hafi betri uppástungu??? :)
Svo er það bara spurning hvenær þeir fara að taka þessi efni líka úr olíunum fyrir díselvélarnar :?
-
Heyrðu takk fyrir það :D
Mér hefur einnig verið bent á að tala við Poulsen, segja þeim bara frá því hvað ég er að pæla og þeir ættu að geta hjálpað mér :D
-
Valvoline racing olíurnar eru með zinc efnum...