Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: graman on May 17, 2007, 06:10:44

Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: graman on May 17, 2007, 06:10:44
Sýning vegna 30 ára afmælis Fornbílaklúbbs Íslands mun opna kl. 18 föstudaginn 18. maí Verður síðan opið á til kl. 22 föstudaginn, laugardag frá kl. 10 til 18 og á sunnudag frá kl. 11 til 22. Sýningin verður haldin í nýja húsnæði Ræsis að Krókhálsi 11. Félagar Fornbílaklúbbsins og makar þeirra fá frítt inn, aðrir greiða 500 kr. og ókeypis er fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Meðal þeirra bíla sem verða sýndir að þessu sinni eru margir glæsilegustu og verðmætustu fornbílar landsins og þá er ekki bara verið að tala um peningalega heldur einnig sögulega. Má þar nefna elsta bíl landsins 1914 Maxwell Touring, minnsta bíl landsins 1956 Heinkel, einn dýrasta fornbíl sem er í eigu Íslendings 1953 Mercedes Benz 300 Coupé sem var fluttur sérstaklega til landsins fyrir sýninguna en eigandinn býr erlendis, Ford Mustang Shelby Cobra GT500 KR sem er nýkominn úr uppgerð og kemur beint á sýninguna. Í heildina er verið að sýna bíla sem eru margir nýlega komnir til landsins og einnig nokkra bíla sem hafa verið lítið sjáanlegir undanfarið. Sjá nánar á http://www.fornbill.is um helgina.
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: graman on May 18, 2007, 00:46:23
Smá sýnishorn

(http://www.fornbill.is/myndir/2007/01.jpg)

(http://www.fornbill.is/myndir/2007/02.jpg)

(http://www.fornbill.is/myndir/2007/03.jpg)

(http://www.fornbill.is/myndir/2007/04.jpg)

(http://www.fornbill.is/myndir/2007/05.jpg)

(http://www.fornbill.is/myndir/2007/06.jpg)
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: Buddy on May 18, 2007, 22:43:35
Hæ,

Ég næstum því pissaði á mig að standa við hliðina á GT-500KR bílnum :oops: . Þetta er bara geðveikt tæki og uppgerðin á kvikyndinu líka geðveik, það eru ekki allir sem spá í Ford base red með lakk overspray á undirvagninn 8)

Buddy Luv out
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: Belair on May 18, 2007, 22:51:03
en því ekki láta Þetta líta vel út fyrir þá sem eru alltaf að gera við Þetta.
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: JHP on May 19, 2007, 01:31:00
Quote from: "Belair"
en því ekki láta Þetta líta vel út fyrir þá sem eru alltaf að gera við Þetta.
:lol:
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: Buddy on May 19, 2007, 16:01:44
Haha, einmitt, þetta gamla rusl gerir ekkert annað en að bila, sama hvað það heitir
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: 383charger on May 19, 2007, 20:09:17
Flott sýning  :)

Þórir
Krúser # 74
Title: Afmælis fornbílasýning opnar á morgun 18. maí
Post by: Jón Þór Bjarnason on May 19, 2007, 20:48:46
Ég mæti á morgun og er orðinn asskoti spenntur að sjá þessa gömlu fáka.