Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on May 15, 2007, 15:30:45
-
Námskeið í meðferð slökkvitækja og hvernig bregðast eigi við ef eitthvað skyldi gerast á Kvartmílubrautinni verða haldin fljótlega upp á braut. Það er skyldumæting fyrir það starfsfólk sem ætlar að vinna upp á braut í sumar. Einnig mega keppendur skrá sig á þetta námskeið ef þeir vilja. Starfsfólk og keppendur eru beðnir um að senda mér EINKAPÓST (ep) sem fyrst með fullu nafni og hvort það sé starfsmaður eða keppandi. Vonandi takið þið vel í þetta hjá okkur.
NÝTT 24/5´07
NÁMSKEIÐIÐ BREYTIST AÐEINS OG VERÐUR NÚ BÆÐI SKYNDIHJÁLPARNÁMSKEIÐ OG KENNSLA Á NOTKUN SLÖKKVITÆKJA.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki og þeim keppendum sem hafa áhuga á og vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Þetta námskeið verður fínpússað svolítið að okkar þörfum á brautinni. Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Kvartmíluklúbbnum.
Ég læt fólk vita í tölvupósti hvenar námskeiðið hefst.
-
111 búnir að skoða en einungis 5 búnir að skrá sig. Þetta er ekki gott. :evil:
-
kostar að taka þátt? ef svo, hvað mikið?
-
Þetta er algjörlega FRÍKEYPIS fyrir meðlimi KK. Okkur fannst vera nauðsyn að bjóða upp á svona námskeið þar sem við viljum hafa öll öryggisatriði í lagi.
-
og fyrir þá sem ekki er skárðir en mundu koma eða vilja koma :)
-
Þetta er eingöngu hugsað fyrir starfsfólk og keppendur. Ég verð að vita sirka hve margir vilja koma upp á alla skipulagningu. :)
-
Dagsetning væri góð. :idea:
Kveðja Sæmundur Eric
-
hummm kvað kostar ársgjaltið og kvd er inn i því til viðbotar við þetta námskeið :D
-
Árgjaldið er kr 5.000 og eru heilmörg fríðindi. T.D. máttu keyra einshratt og þú kemst á kvartmílubrautinni án þess að löggan sekti þig. Þú færð frítt inn á alla viðburði KK sama sem bílasýningar, æfingar, keppnir ofl. Einnig erum við með afsláttarkjör fyrir félagsmenn og þurfa þeir að sýna gild félagsskirteini.
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=21318
-
takk takk 14 dagar i útborgun :D
-
Dagsetning hefur ekki verið ákveðin ennþá en ég hefði viljað halda þetta einhverntímann í næstu viku eftir kl 16:30 Þá ættu flestir að vera búnir að vinna.
-
Talandi um gild félagsskírteini, hvern skal heimsækja til að næla í spjaldið?
-
Ég verð upp á kvartmílubraut á laugardaginn. endilega bjallaðu í mig ef þú ert á ferðinni og athugaðu hvort ég sé ekki örugglega með þitt skirteini. Annars lofa ég því að klára að setja félagsskirteinin í merkt umslög og setja í póst eftir helgi.
-
NÝTT 24/5´07
NÁMSKEIÐIÐ BREYTIST AÐEINS OG VERÐUR NÚ BÆÐI SKYNDIHJÁLPARNÁMSKEIÐ OG KENNSLA Á NOTKUN SLÖKKVITÆKJA.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki og þeim keppendum sem hafa áhuga á og vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Þetta námskeið verður fínpússað svolítið að okkar þörfum á brautinni. Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Kvartmíluklúbbnum.
Ég læt fólk vita í tölvupósti hvenar námskeiðið hefst.
-
Ég er til í að mæta, en verð að hafa góðan fyrirvara
Er starfsmaður, ættir alveg að kannst við mig :lol:
en e-mailið er dr_roggi@hotmail.com
-
Frábært framtak :wink: