Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Einar K. Möller on April 28, 2007, 23:11:28

Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Einar K. Möller on April 28, 2007, 23:11:28
Jæja félagar,

Það var allgóð mætingin uppá braut í dag (sjálfur mætti ég of seint, vonandi bitnar þetta ekki á mætingunni yfir "önnina").

Mikið var gert og þarna var greinilega dýpsti kjarninn að störfum, rotþrærnar komnar í jörðina og lagnirnar frá þeim, búið að færa girðinguna, þrífa brautina og svo margt fleira.

Smári gröfumaður á miklar þakkir skilið fyrir þau verk sem hann fræmkvæmdi uppá braut, þarna er á ferð sannkallaður velunnari klúbbsins á ferð.

Það var fínt að eyða part af deginum þarna með góðum hópi. Vonandi að fleiri sjái sér fært að mæta næst, við félagarnir erum undirstaðan í klúbbnum og allt við gerum fyrir hann er gott fyrir okkur.

EKM
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 28, 2007, 23:55:13
Ég vil þakka þeim sem komu kærlega fyrir aðstoðina. Þarna voru um 15 manns sem ég taldi og eflaust hafa verið fleiri. Það er alveg ótrúlega mikið sem komst í verk. Ég vil persónulega þakka Smára gröfumanni fyrir aðstoðina og á hann mikið hrós skilið.
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Röggi on April 29, 2007, 01:52:43
Ég biðst afsökunar að hafa ekki mætt, en ég ætla að reyna að kíkja við á morgun og hjálpa til  :wink:
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Jói ÖK on April 29, 2007, 16:54:45
Það var lítið ég hafði gaman af :)
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 29, 2007, 22:03:50
Þetta var góður dagur í dag hjá mér og og og og sigga rafvirkja.
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Ingsie on April 29, 2007, 22:28:36
Eg er auli  :oops:  
Svaf alveg til hálf 2 og fattaði þá að það væri próf á morgun þannig ég fór að læra  :oops:
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: firebird400 on April 29, 2007, 23:32:10
Nonni varst þú upp á braut í dag  :?:

Ég hélt að Nóni hafi ætlað að covera sunnudaginn
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Racer on April 30, 2007, 01:06:54
það voru bara tveir þegar ég renndi við.. Hálfdán og Siggi Rafmagnaði
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 30, 2007, 01:08:08
Hóst Hóst var frá kl 9:30 til kl 19:00 á laugardaginn og frá kl 9:40 til 14:30 á sunnudaginn og átti þá eftir að skila klósetti í dugguvoginn. 8)
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: Hera on April 30, 2007, 09:02:10
Sorrý strákar, ætlaði að koma í gær en gleymdi mér við að bera á sólpallinn í góðaveðrinu  :oops:
Title: Til Fyrirmyndar
Post by: maggifinn on April 30, 2007, 09:48:42
http://picasaweb.google.com/maggifinn/Brautarvinna28april