Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: the Rolling Thunder on April 26, 2007, 09:45:22
-
Daginn heiriði hef heirt að ef maður breytir fornbíl eithvað sérstakt mikið
að þá er hann ekki flokkaður sem fornbíll lengur :?
Var svona að spá því að ég er að spá í að Færa afturdekkin aftar á Willys
73 og setja sjálfskyftingu í hann... myndi hann þá ekki flokkast sem fornbíll lengur :?: :?: :?: :lol:
-
Ég átti willys sem var ekkert eftir af orginal willysnum nema hraðamælirinn (sem var bilaður) og hann var fornbíll..
en ég hef heirt það líka að þetta sé eitthvað erfitt með breytta jeppa.
held samt að þú sért safe.
-
ok þakka þér fyrir upplýsingarnar.
en er mikið vesen að færa afturdekkin aftar og kostar það mikið þarf ekki að keupa flest nýtt undir hann :?: :lol:
-
Það væri ágætis byrjun ef þú myndir segja eitthvað frá bílnum... hverju er búið að breyta nú þegar, er hann kannski bara alveg orginal eða?
-
Tryggingafélögin nöldra ef maður biður um fornbílatryggingu á breytta jeppa, en maður fær hana nú samt.
-
hann er held ég alveg orginal utan við að það var verið að setja í hann nýlega 350 vél. Langar samt að skifta um kassa í honum... hann er sko 3 gíra beinskiftur :? langar að setja í hann sjálfskiftingu...
-
ég var í þessu basli með tryggafélögin að fá range rover 1972
og það var ekki séns að fá hann sem fornbíl því hann var breyttur.
Þetta var 38" breytttur rover
-
hann er á "36 og já með nýja vél það er einu breytingarnar á honum so far... langar aðalega að breyta skiftingunni ekkert endilega færa dekkin fór að skoða þetta um daginn og hann er fínn eins og hann er útlitslega séð... sá bara græna willysinn og svo aðra sem var búið að færa dekkin aftar og það er svoldið mikið mikill sjarmi yfir því hehehe :wink:
-
Breyttu þessu bara eins og þér sýnist.
ef þú færð svo ekki fornbílatryggingu að því loknu þá bara skiftiru um tryggingafélag.
-
hehe það er allsekki slæm hugmynd. :D spila eðeins með þá hehehe. En já. Þá er ég með aðrar spurnigar...
hvaða vélar og kassar passa í willys??? :?
-
Það er ekki spurning um hvað passar... heldur hvað þú VILT að passi :wink:
getur sett nánast hvaða vél sem er ofan í þetta en það sem takmarkar valið með skiptingar og millikassa er hversu stutt afturskaptið er
Ef þú vilt færa afturhásinguna þá þarftu að smíða gormafjöðrun, tja eða lengja grindina afturúr og færa fjaðrirnar ef þú vilt fúska þetta sem væri algjör vibbi en virkar :lol: