Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Moli on April 03, 2007, 22:19:06
-
Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna nýinnflutta, eða bíla sem ekki hafa sést lengi á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18.
Næstkomandi Fimmtudagskvöld eða þann 4. Apríl kl: 20:00 verður sýndur nýinnfluttur Ford Galaxie 500 XL blæjubíll.
Síðast var gríðarlega góð mæting og vonumst við að sjá sem flesta annaðkvöld!
Seinna um kvöldið eða um kl. 22:30 verður síðan sýnd heimildarmynd úr smiðju American Musclecar um 1953-1962 Chevrolet Corvette.
Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og súkkulaði með til að seðja hungrið.
Miklar breytingar hafa átt sér stað á félagsaðstöðu Krúser manna í vetur, og meðal annars er búið að setja upp skjávarpa, fjarlæga milliveggi og eldhús, ofl. ofl. Enn er að bætast á vegginn allskonar skraut sem bílar á árum áður báru og setur það stekan svip á húsakynni Krúser manna.
Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta á þetta! Hvar verður þú??
Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.
-
4 í dag, fimmtudagur er 5 ;)
-
Jæja, myndir frá því í kvöld. Nokkuð var um að menn kæmu á sparibílunum sínum enda veðrið með endæmum gott þó Apríl sé rétt byrjaður.
Þetta er vonandi brot af því sem koma skal í sumar! 8)
1963 Ford Galaxie 500 XL
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_1.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_2.jpg)
1968 Ford Mustang California Special (GT/CS)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_3.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_4.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_5.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_6.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/DSC03916.JPG)
1978 Dodge Lil' Red Express
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_7.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_8.jpg)
(http://www.bilavefur.net/ymislegt/05_04_06_9.jpg)