Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Nóni on March 17, 2007, 23:47:12
-
MS/ (Modefied Standard)– Flokkur.
(Nýr-gamall flokkur!)
Flokkslýsing:
Flokkur fyrir Bíla með V8 vélar án forþjöppu eða N2O (Poweradder) með öllum löglegum götubúnaði virkum.
Ræst skal á jöfnu “full tree”. Öll keppnistæki skulu geta ekið amk 10km þolakstur fyrir hverja keppni(ákvarðast af keppnisstjóra hverju sinni). Þeir keppendur sem ekki ná að ljúka þessu detta úr keppni.
Þyngdarmörk í flokknum eru eftirfarandi:
Með vél að 330cid: 1250kg
Með vél að 399cid: 1350kg
Með vél að 499cid: 1450kg
Með vél yfir 560cid 1550kg
Allar þyngdir reiknast miðað við ökutæki á ráslínu til búið í ferð með ökumanni!
Öll ökutæki skulu hafa gilda skoðun samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi og standast íslensk umferðarlög/reglur.
Vél:
Verður að vera fjöldaframleidd V8 bílvél.
Slagrúmtak véla má ekki vera meira en 560cid.
Blokk:
Vélarblokkir úr áli bannaðar nema að þær hafi verið fáanlegar frá verksmiðju í viðkomandi ökutæki.
Hedd:
Allar tegundir og gerðir hedda leyfðar sem passa á viðkomandi vélarblokk.
Ventlar
Allar leyfðar.
Rockerarmar
Allar gerðir “rockerarma” eru leyfðar.
Ventlagormar
Frjálst val er um ventlagorma, læsingar(retaners), og splitti.
Ventlalok
Frjáls val er á ventlalokum.
Eina krafan um ventlalok er að þau þétti og séu lekafrí.
Kambás:
Allar tegundir og gerðir af kambásum eru leyfðar.
Undirliftur:
Allar þær tegundir af undirliftum.
Tímagír:
Allar tegundir tímagíra leyfðar.
Sveifarás:
Allar tegundir og gerðir sveifarása leyfðar.
Stimpilstangir:
Allar gerðir af stimpilstöngum eru leyfðar.
Stimplar:
Allar gerðir simpla leyfðar.
Stimpilhringir:
Allar tegundir stimpilhringja leyfðar.
Olíudæla:
Nota má hvaða olíudælu sem er.
Utanáliggjandi olíudælur leyfðar, verða að vera drifnar af sveifarás.
“Dry sump” olíudælur og kerfi bönnuð.
Nota má hvaða olíu “pick up” sem er þar á meðal sveiflu “pick up”
Olíukerfi:
“Dry sump” olíukerfi bönnuð. Að öðru leyti má nota hvaða olíu kerfi sem er frá hvaða framleiðanda sem er.
Olíugöng í vélarblokkum og heddum má grafa út, pólera eða vinna á annan hátt. Nota má hindranir í olíugöng til að stýra olíuflæði frá heddum að sveifarás osf. Festa má net fyrir göt og op þar sem hætta er á að brotnir vélarhlutir gætu komist niður að sveifarás.
Allar breytingar á olíukerfi til að auka endingu véla eru leyfðar.
ELDSNEYTISKERFI
Soggrein:
Nota má hvaða soggrein sem er.
Nota má mest tvo fjögurra hólfa blöndunga (Predator = 4. hólfa blöndungur),
Eða 4 tveggja hólfa blöndunga.
Mekanískar innspýtingar eru leyfðar.
Forþjöppur bannaðar.
Nitro gas N2O bannað
Blöndungur:
Nota má hvaða blöndung(a) sem er.
Bensíndæla:
Aðeins ein bensíndæla.
Nota má bensindælur sem dæla meiri þrýsting og/eða magni.
Nota má dælur frá hvaða framleiðanda sem er.
Sveifarásknúnar bensíndælur (innspýtinga dælur) bannaðar.
Bensínleiðslur:
Bensín leiðslur skulu ekki vera sverari en 1/2”.
Ef skipt er um bensín lagnir verða nýju lagnirnar að vera úr samskonar efni og þær gömlu.
Mælt er með að bensín leiðslur séu varðar þar sem þær fara framhjá skiptingu kasthjóli/converter, viftuspaða og damper.
Sjá aðalreglur 1:5
Bensínsýur:
Frjást er að nota eins margar bensínsýur og hver vill eða enga. Stærð, lögun og tegund skiftir ekki máli.
Bensíntankur:
Bensíntankur verður að taka sam magn og original tankur.
Ef ökutæki er komið niður fyrir 11,99sek og/eða 120mph má nota “eldsneytissellu”
Lofthreinsari:
Lofthreinsari er aukahlutur og ráða menn hvort hann er notaður eða ekki.
Eldsneiti:
Aðeins bensín sem hægt er að kaupa af dælu á bensínstöð leyft.
Öll almenn bensínbætiefni leyfð.
KVEIKIKERFI:
Kveikja:
Hámark má nota eina kveikju, og skal hún vera annað hvort rafeinda eða platínu.
Magnetu kveikjur skulu vera tengdar við sviss (straumlás) ökutækis.
“Crank trygger” er bannað.
Útslátt og önnur hjápartæki má nota, þó ekki seinkara, biðbox eða önnur tæki sem hjálpa við brautarstart.
GM HEI kveikjur eru leyfðar enda teljast þær til rafeinda kveikju.
Ekki má breyta staðsettningu á kveikju frá original.
Háspennukefli:
Hvaða háspennukefli sem er má nota.
Þræðir:
Allir kertaþræðir orginal eða eftirframleiddir (aftermarked) eru leyfðir.
Kerti:
Allar tegundir kerta (gneistatappa)leyfðar.
ÚTBLÁSTURSKERFI
Flækjur:
Pústflækjur má setja í staðinn fyrir greinar.
Safnari á pústflækjum (collector) má ekki vera lengri en 60cm.
Púströr:
Aukahlutur.
Hljóðkútar:
Allar tegundir hljóðkúta leyfðar.
GÍRKASSI
Gírkassi
Nota má hvaða beinskiptan fólksbílakassa sem er.
“Clutsh less” gírkassar bannaðir.
Skiftir:
Nota hvaða skiftir sem er.
Kúplingshús:
Sprengihelt kúplingshús samkvæmt staðli æskilegt, og skylda sé bíll kominn ni[ur í 11.99sek/120mph.
Ef notað er standard hús er æskilegt að gólf sé styrkt.
Sjá aðalreglur: 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.
Kúpling:
Nota má hvaða kúplingu og kasthjól sem er.
Fjöldiska kúplingar eru þó bannaðar.
Æskilegt er að kúpling og kasthjól sé samkvæmt staðli. : 2:3, 2:5, 2:6, 2:10, skylda ef ökutæki er komið niður fyrir 11,99sek/120mph
Sjá aðalreglur: 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.
Sjálfskipting:
Nota má hvaða sjálfskiptingu sem er.
Sjá aðalreglur: 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.
Converter:
Nota má hvaða “Converter” (vökvatengsl) sem er.
Sjá aðalreglur: 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.
Hlífar:
Æskilegt er að hafa bæði kashjólshlíf og skiptingahlíf samkvæmt staðli, eða löglega mottu utan um skiptingu í keppni.
Skylda ef ökutæki er komið niður í 10,99sek/125mph
Sjá aðalreglur: 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.
DRIFRÁS:
Drifskaft:
Æskilegt er að Baula sé utan um drifskaft á öllum bílum í þessum flokki, og skal hún staðsett samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og reglum KK.
Baula utan um drifskaft er skylda í öllum bílum sem fara hraðar en 12,99sek eða 100mílur og/eða eru á “slikkum”.
Sjá aðalreglur: 2:4.
(“Slikki”-“slikker”, er nýyrði í íslensku máli og finnst ekki í orðabókum (ca 40 ára gamallt), og er bein þýðing úr enska orðinu “dragslick” og/eða “drag race only tire”)
Hásing&Drif:
Frjálst val er á hásingum sem þýðir að setja má eina tegund af hásingu undir aðra tegund af bíl.
Nota má hvaða drifhlutfall sem er.
Læst drif leyfð. Þó er bannað að nota spólulæsingar, soðin eða steypt mismunadrif eru bönnuð.
Æskilegt er að notaðir séu sterkari öxlar og sterkari boltar fyrir felgur.
BÚKKAR & FJÖÐRUN:
Nota má hvaða fjörðunarkerfi sem er.
Staðsettningarpunktar fjöðrunarkerfis verða að vera þeir sömu og var frá verksmiðju
Ekki má færa fjaðrafestingar eða breyta þeim á nokkurn hátt.
Breyta má stífleika fjaðra, gorma, vindustanga osf, bæta má blöðum í blaðfjaðrir eða fjarlægja eftir þörfum. einnig má míkja eða stífa gorma/vindustangir eftir þörfum.
Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.
Sjá aðalreglur: 3:5.
Demparar:
Einn virkur dempari verður að vera á hvert fjaðrandi hjól.
Að öðruleiti er hlutfall dempar frjálst og notkunn gasdempara er leyfð.
Ekki má bora dempara eða tappa af þeim vökva eða gasi.
YFIRBYGGING:
Yfirbyggingu má ekki breyta á nokkurn hátt frá upprunalegri útliti úr verksmiðju.
Allar léttingar og plast verða að vera með upprunalegt útlit, eina undantekning er húdd.
Nota má plast hluti séu þeir eins í útliti og original (á ekki við um húdd).
Nota má áfastar opnanir(scoop) á vélarhlíf.
Innribretti og hjólskálar verða að vera upprunalegar eða eins og upprunalegar og þá úr sömu efnum eins og upprunalega. Allar breytingar á hjólskálum og innribrettum bannaðar.
Undantekning frá þessu eru trefjaplast “roadster” yfirbyggingar (kit) sem eru skráð og á númerum og standast þyngdarmörk.
Innrétting:
Allir bílar verða að vera með fullri innréttingu
Gólfteppi verður að vera á öllu gólfi bíls eða eins og kom frá framleiðanda.
Skifta má út framstólum fyrir keppnisstóla sem þó þurfa að vera í original staðsettningu.
Taka má burt stokk milli framsæta eða hluta hans til að koma fyrir skifti.
Aftursæti má fjarlægja til að koma fyrir veltiboga. Ganga verður snyrtilega frá opinu sem myndast þegar hlutar innréttingar eru fjarlægðir.
Staðlaðir keppnisstólar eru skylda í öllum bílum sem fara niður fyrir 11,99sek og/eða 120mílna (200km) hraða.
Allir keppnisstólar skulu festir samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Belti:
Allir bílar verða að vera með amk þriggj punkta öryggisbelti.
Þeir bíla sem fara niður fyrir 11,99sek og/eða 120mílur skulu hafa 5 punkta keppnisbelti.
Veltigrind/búr:
Veltigrind er skylda í öllum bílum sem fara 11,99sek og/eða 120mílum (200km) eða betur. Veltibúr er skylda þegar bíll er kominn í 9,99sek og/eða 140mílur (225km) eða undir. Sjá aðalreglur 4:9 og 4:10.
Grind:
Allar breytingar á grind eru bannaðar. Þó er leyfilegt að styrkja grindur.
Stýri:
Bannað er að skifta frá orginalstýrisvél(snigill og sektor) og setja í staðinn tannstöng eða öfugt. Leyft er að skifta frá “power stýri yfir í “manual” og öfugt. Minnsta særð á stýrishjóli er 13” (34cm).
Á ekki við um “Kit” bíla sem eru skráðir og á númerum.
DEKK & FELGUR:
Felgur:
Allar gerðir af felgum leyfðar. Felgur mega ekki vera minni en 13” og ekki stærri en 16”. Nema að það hafi verið original fáanlegt á viðkomandi bíl árgerð og gerð.
Hafa má hvaða breidd af felgum sem er. Þó mega þær ekki ná út fyrir yfirbyggingu.
Dekk:
Slikkar leyfðir, stærð þeirra má ekki vera meiri en 28” X 9”.
Öll dekk þar sem merkingar framleiðanda hafa verið fjarlægðar bönnuð.
Öll dekk verða að vera fyrir innan innri brún bretta.
Ofangreint gildir líka um framdekk.
ÖKUMAÐUR:
Ökumaður verður að sitja í original staðsettu ökumannssæti og vera með staðlaðan hjám á höfði.
Allir bílar sem fara undir 12,99sek og/eða 100mílum (160km) verða að hafa sæti með háu baki eða höfuðpúða.
Allir bílar sem fara undir 11,99sek og/eða 120mílur (200km) verða að vera með viðurkennda keppnisstóla, sem festir eru samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Tregbrennandi keppnisgalli æskilegur.
Tregbrennandi keppnisgalli samkvæmt staðli: SFI/Spec 3/2-A-1 skylda í öllum bílum á tímum undir 11,99sek og/eða 120 mílum (200km).
Tregbrennandi keppnisgalli samkvæmt staðli SFI/Spec 3/2-A-5 skylda í öllum bílum sem fara neðar en 9,99sek og/eða 150mílur.
LETUR:
Letur þar með taldar auglýsingar má setja í rúður ökutækis þó ekki þannig að hindri útsýni og skyggi á keppnismerkingar.
Styrktaraðilar:
Styrktaraðilar eru leyfðir.
-
Samþykkt
-
varðandi breytingar á yfirbyggingu,
"Yfirbyggingu má ekki breyta á nokkurn hátt frá upprunalegri útliti úr verksmiðju.
Allar léttingar og plast verða að vera með upprunalegt útlit, eina undantekning er húdd.
Nota má plast hluti séu þeir eins í útliti og original (á ekki við um húdd).
Nota má áfastar opnanir(scoop) á vélarhlíf.
Innribretti og hjólskálar verða að vera upprunalegar eða eins og upprunalegar og þá úr sömu efnum eins og upprunalega. Allar breytingar á hjólskálum og innribrettum bannaðar.
Undantekning frá þessu eru trefjaplast “roadster” yfirbyggingar (kit) sem eru skráð og á númerum og standast þyngdarmörk"
hefði maður ætlað sér að mæta á t.d 4th gen trans am/camaro, en þeir virðast passa ágætlega í þennan flokk,
verður þá að rífa spoilerkittið af bílnum þar sem það breytir orginal útliti bílsins?
-
komu ekki einhverjir svona bílar orginal með svona/svipað spoilerkitt frá verksmiðju?
annars efast ég að einhver stoppar þig þó spoilerkitt sé á bílnum.. auka þyngd aðallega og útlit.. gætum farið í air flow eitthvað en til hvers.
Menn geta ekki stoppa alla bílana útaf smá hlutum þó reglurnar segja að það eigi en ef einhver ákveður að kæra þig þá kæri einhver þig bara og þú veist hvað skal gera næst.
-
tja nei.. xenon kittið sem er algengast er nú töluvert frábrugðið orginalnum,
ég veit að þetta er tittlingaskítur, en sakar ekki að spurja
-
Dekk:
Slikkar leyfðir, stærð þeirra má ekki vera meiri en 28” X 9”.
Öll dekk þar sem merkingar framleiðanda hafa verið fjarlægðar bönnuð.
Öll dekk verða að vera fyrir innan innri brún bretta.
Ofangreint gildir líka um framdekk.
er þetta ekki einum of mjótt :roll:

jahh.. það er of seint að spá í því núna :lol:
-
mér finnst þetta bara fáránleg breidd fyrir þennan flokk :roll: en það er bara mitt álit
-
mér finnst þetta bara fáránleg breidd fyrir þennan flokk :roll: en það er bara mitt álit
jú þitt álit er auðvitað vel metið.. ég var ekki að reyna að vera með leiðindi :) en það er ekkert hægt að gera í því fyrr en eftir ár...:)
-
hehe ég veit en þegar ég var að lesa yfir reglurnar leist mér vel á flokkinn og var að hugsa um að þetta væri flottur flokkur fyrir mig. en svo sá ég dekkjareglurnar :(
-
9" geta nú húkkað ágætlega,
minnir að kiddi hafi verið á 9" á 97 transanum,. og hann var að fara 11.65
-
Sælir félagar. :)
Smá spurning til ykkar: Hefur einhver ykkar prófað að keyra á ekta slikkum sem agt "drag race only" dekk :?: :?:
Sjáið þessa mynd: http://www.nhra.com/2007/events/race04/photos/sportsman/Photo6.htm
Hann er að keyra í standard flokki S/CA, og þar eru aðeins leyfðir 30"x9" núna en voru 28"x9" fyrir nokkrum árum.
Tímarnir á bílunum eru svona frá 9,50 - 12,50sek.
Já og vel á minnst, ég náði nú sjálfur að lyfta framhjólum á mínum standard 1971 Mustang á 28"x9" slikkum, og hann er 1780kg :!: :!: :!:
Svo má náttúrulega koma á bæði breiðari og hærri götuslikkum.
Til dæmis eru Mickey Thompson/ET Street með betri 60' en Mickey Thompson/ET Drag. :wink:
Spá vel í dekkin og fjöðrunarkerfið, það marg borgar sig. :!: :idea: :!:
-
9 tomma er feikinóg 8)
Ertu ekki bara að finna þér afsökun fyrir því að mæta ekki Einar :wink: :lol:
En hvað 3 punkta belti varðar þá er minn eiginlega með 4 punkta orginal,
Og maður notar nú oftast bara tvegga punkta mittisbeltið
Spurning hvort að það væri ekki ráð að fá sér stól með almennilegum beltum áður en maður tekur á þessu af alvuru
-
Ég fór 10.98 á 9" et drag slikkum á 123mph ef ég man rétt, og 10,40 á smá nitroi, hvort ef ekki að þetta voru gömlu þínir Hálfdán sem ég fékk hjá Einari k Möller þegar ég var í vandræðum með dekk einhverntima fyrir keppni.
-
Sælir félagar. :)
Sæll Krissi.
Jú þetta eru sennilega mínir gömlu.
Mig mynnir að Einar hafi fengið þá hjá mér.
Já og þeir voru keyptir 1987!
Ég fór reyndar yfir þá með "Formula V traction treatment" og það er sennilega besta mýkingarefni sem að ég hef prófað.
Já vel á mynnst það virkar vel á öll dekk :idea: líka radíal :!:
Það er bara svo rosaleg flott að sjá "full body" stóra bíla á slikkum eins og 28"x9" taka á, og sjá hvernig dekkin taka þessu átaki. :spol:
-
Og dass af tracbite hjálpar líka vel
-
9 tomma er feikinóg 8)
Ertu ekki bara að finna þér afsökun fyrir því að mæta ekki Einar :wink: :lol:
hehe nei leist svo ílla á þetta því ég er búinn að kaupa 10" felgur fyrir slikkana :roll: ég verð með í sumar það er bókað mál 8)
-
mér sýnist að maður geti sleppt númerum í þessum flokki?
stendur vísu á einum stað um að roadster (kitt) á númerum annars er bara talað með allan götubúnað löglegan.. falla númeraplötur inní það?
menn geta túlka á tvo vegu þar sem íslendingar teygja alltaf gráa svæðið.
Það sem stendur ekki er löglegt ef maður beygjir það smá og það sem stendur er löglegt.
-
Með vél að 330cid: 1250kg
Með vél að 399cid: 1350kg
Með vél að 499cid: 1450kg
Með vél yfir 560cid 1550kg
Allar þyngdir reiknast miðað við ökutæki á ráslínu til búið í ferð með ökumanni!
Öll ökutæki skulu hafa gilda skoðun samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi og standast íslensk umferðarlög/reglur.
Vél:
Verður að vera fjöldaframleidd V8 bílvél.
Slagrúmtak véla má ekki vera meira en 560cid.
Smá spurning með vél yfir 560cid 1550kg, vél má e kki vera meira en 560?
-
Fínn flokkur,getur komið með twin turbo V8 330cid og viktað 1250kg 8)
-
Flokkur fyrir Bíla með V8 vélar án forþjöppu eða N2O (Poweradder) með öllum löglegum götubúnaði virkum.
-
Já akkurat það stendur ekki að turbo sé bannað
-
Sælir félagar. :)
Varðandi "Turbocharger".
Flokkslýsing:
Flokkur fyrir Bíla með V8 vélar án forþjöppu eða N2O (Poweradder) með öllum löglegum götubúnaði virkum.
Ræst skal á jöfnu “full tree”. Öll keppnistæki skulu geta ekið amk 10km þolakstur fyrir hverja keppni(ákvarðast af keppnisstjóra hverju sinni). Þeir keppendur sem ekki ná að ljúka þessu detta úr keppni.
Þyngdarmörk í flokknum eru eftirfarandi:
Með vél að 330cid: 1250kg
Með vél að 399cid: 1350kg
Með vél að 499cid: 1450kg
Með vél yfir 560cid 1550kg
Allar þyngdir reiknast miðað við ökutæki á ráslínu til búið í ferð með ökumanni!
Öll ökutæki skulu hafa gilda skoðun samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi og standast íslensk umferðarlög/reglur.
ELDSNEYTISKERFI
Soggrein:
Nota má hvaða soggrein sem er.
Nota má mest tvo fjögurra hólfa blöndunga (Predator = 4. hólfa blöndungur),
Eða 4 tveggja hólfa blöndunga.
Mekanískar innspýtingar eru leyfðar.
Forþjöppur bannaðar.
Nitro gas N2O bannað
Íslenska heitið á turbo er AFGASFORÞJAPPA.
Það er til samheiti á þessu hvoru tveggja, það er bæði blásara og turbo og það er: afgasforþjappa. :!:
Sem sagt allt sem fellur undir fellur undir heitið forþjappa er bannað. :!: :idea: :!:
-
Hvernig getur blásari heitið afgasforþjappa?
-
Hvernig getur blásari heitið afgasforþjappa?
nákvæmlega
-
Sælir félagar. :)
Sæll Frikki.
Í kennslubókum er talað um "forþjöppu" sem samheiti um búnað sem dregur inn þjappar saman lofti/eldsneytisblöndu áður en hún fer inn í brunahólf (strokk í þessu tilviki) véla.
Það gildir einu hvort að um er að ræða reimdrifinn eða afgas búnað.
Sem sagt "Supercharger og/eða Turbocharger" :!:
Þú ert vonandi að tala um um: "stimpilbrunahreyfil með neistakveikju" :?:
Eða ert þú kanski að spá í að skipta yfir í "stimpilbrunahreyfil með þrýstikveikju" :?: :idea: :!: :wink:
-
Það get ég alveg skilið,en blásari getur aldrei heitið afgasforþjappa eins og þú skrifaðir fyrst. :wink:
Gneistatappar og bullur ásamt lokaloksloki eru íslenzku máli til sóma :D
-
Það hefð verið mun skýrara að seta aðeins N/A vélar leyfðar eða álíka
-
Smá forvitni,hvers vegna er bannað að hafa crank trigger og hvers vegna þarf bensínlögn að vera út sambærilegu efni og orginal?
-
jæja nóg komið með þetta og næsta svo menn geta þess vegna tekið númerið af bílunum sínum.
ég veit ég er heimskur og ljótur og fatlaður á einhverju andlegu eða líkamlegu og allt það en mér finnst ég eiga samt rétt þó vanskapur er að fá að vita hvort númer megi fjúka.
-
Sælir félagar. :)
Sæll Frikki.
Takk fyrir að benda mér á þetta, þarna hefur mér orðið fótaskortur á lyklaborðinu. :oops:
Að sjálfsögðu átti þetta að vera: "Það er til samheiti á þessu hvoru tveggja, það er bæði blásara og afgasforþjappa og það er: turbo".
Svona er það rétt.
Ég á einhverstaðar í fórum mínum þýðingu sem ég gerði á reglum í "NHRA Stock Eliminator", og hafði þær á "meiraprófsmáli".
Ég held að Valur Vífils sé ennþá hlæjandi eftir að hafa lesið þetta og hent þeim síðan aftur í hausinn á mér, með þeim orðum að enginn myndi skilja þetta. :lol:
-
Smá forvitni,hvers vegna er bannað að hafa crank trigger og hvers vegna þarf bensínlögn að vera út sambærilegu efni og orginal?
:?:
-
Sælir félagar. :)
Sæll aftur Frikki.
Þetta er nú sennilega þarna inni vegna þess að ég notaði MC/ reglurnar og breytti þeim yfir í þennan flokk, og ég lét kveikju kaflann alveg vera.
Það sama má segja um bensínlagnirnar.
Það eru flestir af þessum gömlu bílum með stálröra lagnir, en það skal að sjálfsögðu skoða aðalreglur og fara eftir því sem þar stendur í kafla 1:5.
En annars var "crank trygger" bannað í MC/ á sínum tíma vegna þess að það þótti halda kostnaði niðri.
Já og svo voru þess dæmi að menn voru að nota garðslöngur sem bensínslöngur.
Ertu annars búinn að lesa MC reglurnar sem "samþykkt" var að nota, og bera þær saman við reglurnar sem voru raunverulega í gildi og samþykktar voru á framhaldsaðalfundi 18-12 2003. :?:
Ég auglýsi hér með eftir fundargerð og/eða video/hljóðupptöku af aðalfundinum 15-11 2003 og af framhaldsaðalfundinum sem haldin var 18-12 2003.
-
Já það meikar sense að leyfa 560cid mótor og banna crank trigger til að halda niðri kostnaði :lol: :wink:
-
Sælir félagar. :)
Sæll Frikki.
Af hverju ert þú að hengja þig á 560cid :?: :?:
Það hefur alltaf verið leyft að stroka 100cid í MC/, og er enn.
Það kom til út af því að þegar flokkurinn var fyrst skrifaður var hægt að fá stroker kit fyrir 350cid Chevy í 383cid, og þannig kom þessi 100cid regla til.
Og þá kostuðu þessi stroker kit minna en crank trygger :!: og gera það sennilega ennþá. :!: :idea:
Plús það að á crank trygger stóð: "for racing use only" sem fór mjög illa í marga á þeim tíma eins og þú mannst kanski. :wink:
-
Sælir félagar. :)
Sæll Frikki.
Takk fyrir að benda mér á þetta, þarna hefur mér orðið fótaskortur á lyklaborðinu. :oops:
Að sjálfsögðu átti þetta að vera: "Það er til samheiti á þessu hvoru tveggja, það er bæði blásara og afgasforþjappa og það er: turbo".
Svona er það rétt.
Ég á einhverstaðar í fórum mínum þýðingu sem ég gerði á reglum í "NHRA Stock Eliminator", og hafði þær á "meiraprófsmáli".
Ég held að Valur Vífils sé ennþá hlæjandi eftir að hafa lesið þetta og hent þeim síðan aftur í hausinn á mér, með þeim orðum að enginn myndi skilja þetta. :lol:
ég hef nú alltaf staðið í þeirri meiningu að blásarar væri reimdrifnir og kallaðir superchargers/prochargerss meðan afgasþjöppur væru Turbo.. þannig að mér finnst turbo ekki alveg rétt samheiti yfir blásara og afgasþjöppur
-
Var ekkert að spá í kúbikunum sérstaklega,það má til dæmis vera með 18° $5000 hedd,$2000 stroker en crank trigger bannaður til að halda niðri kostnaði.
Laddar leyfilegir miðað við þessa lesningu:
Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.
Sjá aðalreglur: 3:5.
Í aðalreglum 3:5 er talað um "ladder" gerð búkka,ég veit ekki um neina "slapper bars" sem þarf að klippa úr yfirbyggingu fyrir!
-
Sælir félagar. :)
Sæll Íbbi.
Og takk fyrir enn eina leiðréttinguna. :oops:
Það er til samheiti á þessu hvoru tveggja, það er bæði blásara og turbo og það er: forþjappa.
Jæja nú er þetta rétt, loksins. :?
-
Sælir félagar. :)
Sæll Frikki.
Já svona gerist þegar margar skoðanir koma saman og síðan þarf að koma þessu öllu heim og saman.
Það hefur til dömis enginn verið að spá í kostnað í MC/flokki síðustu ár :!: sem mér finnst miður.
Samt skaltu líta á til dæmis heddakaflann í upphaflegu reglunum: Hedd:
Bannað er að breyta útliti hedda með færslu porta, portplötum eða á annan hátt.
Portun á heddum er leyfð.Fræsa má úr heddun til að koma fyrir "rockerarma" festingum (studs) þegar farið er í stillanlega "rockerarma" úr óstillanlegum(rail type) og til að geta notað stýriplötur (guid plates). Ef álhedd eru notuð er bannað að porta, plana eða pólera. Öll álhedd skulu vera óportuð eins og þau komu frá framleiðanda. Ekki má víxla heddum á milli tegunda. Ef notuð eru pott hedd má porta þau, pólera fræsa og slípa eins og hver vill, þó má ekki breyta útliti þeirra (sjá að ofan). Ekki má nota hedd þar sem afstaða rockerarma eða kerta er önnur en original. Notkunn á CNC portuðum álheddum er bönnuð, hvort sem þau eru seld svo þannig eða ekki.
og síðan þeim sem komu frá stjórninni og voru samþykkt á framhaldsaðalfundi 18-12 2003.
Hedd:
Bannað er að breyta útliti hedda með færslu porta, portplötum eða á annan hátt.
Portun á heddum er leyfð svo framarlega að hún breyti ekki útliti hedda þegar þau eru komin á vél. Fræsa má úr heddun til að koma fyrir “rockerarma” festingum (studs) þegar farið er í stillanlega “rockerarma” úr óstillanlegum(rail type) og til að geta notað stýriplötur (guid plates). Ekki má víxla heddum á milli tegunda. Ekki má nota hedd þar sem afstaða rockerarma eða kerta er önnur en original. Öll hedd má porta og pólera að vild.
En erum við annars að tala um sömu flokkana :?: :?: :?: :?:
Það er allt önnur hugsun í MS/
Þar er skemmtuninn og "nostalgían" sem eiga að hafa yfirhöndina. :D
-
Tja ég er hér að pósta í þráð um MS flokkinn og er að ræða um hann! :)
-
Var ekkert að spá í kúbikunum sérstaklega,það má til dæmis vera með 18° $5000 hedd,$2000 stroker en crank trigger bannaður til að halda niðri kostnaði.
Laddar leyfilegir miðað við þessa lesningu:
Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.
Sjá aðalreglur: 3:5.
Í aðalreglum 3:5 er talað um "ladder" gerð búkka,ég veit ekki um neina "slapper bars" sem þarf að klippa úr yfirbyggingu fyrir!
Þetta eru MS ásamt öllu sem ég hef átt við í þessum þræði! :)
-
Sælir félagar. :)
Sæll Frikki.
Það var alla vega ætlunin að leyfa alla gerðir af "búkkum" nema þá kanski "Fourlink".
Heddin voru kanski annað mál.
Mín hugmynd var sú að ef þessi flokkur kæmist inn (sem að hann gerði) þá myndu keppendur koma með hugmyndir sem þá myndu væntanlega losa um flokkinn, eða reglurnar lagaðar á annan hátt fyrir næsta ár :!:
Það verður einhverstaðar að byrja og þetta er einmitt fínt að fá þessi innslög frá þér.
Hinns vegar hefur oft verið gert hjá okkur að byrja með flokka til reynslu, þannig að eftir á að hyggja þá hefði það kanski verið sniðugt í þessu tilfelli sem og öðrum.
BTW.
Hvað kostar gott "crank trygger kit", gott 557cid stroker er 1250$ :!:
Bara svona innslag :!: :!:
-
Hæ Hálfdán crank trigger kostar 264$ á small chevy í summit águrat í dag.Kv Árni Kjartans
-
hvenar var þetta? ætli maður hafi nokkuð verið fæddur á þessum tima :D gömlu kallar :lol:
-
MSD Crank trigger kostar í BBC $279 sem er mjög gott kit að ég best veit.
Sveifarásinn minn kostaði hins vegar $1700.
-
Svona hefði ég haft þetta :D :
MS/ (Modefied Standard)– Flokkur.
(Nýr-gamall flokkur!)
Flokkslýsing:
Flokkur fyrir Bíla með “naturally aspirated” V8 vélar með öllum löglegum götubúnaði virkum.
Ræst skal á jöfnu “full tree”. Öll keppnistæki skulu geta ekið amk 10km þolakstur fyrir hverja keppni(ákvarðast af keppnisstjóra hverju sinni). Þeir keppendur sem ekki ná að ljúka þessu detta úr keppni.
Þyngdarmörk í flokknum eru eftirfarandi:
Með vél að 330cid: 1250kg
Með vél að 399cid: 1350kg
Með vél að 499cid: 1450kg
Með vél að 560cid 1550kg
Allar þyngdir reiknast miðað við ökutæki á ráslínu til búið í ferð með ökumanni!
Öll ökutæki skulu hafa gilda skoðun samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi og standast íslensk umferðarlög/reglur.
Vél:
Slagrúmtak véla má ekki vera meira en 560cid.
Olíudæla:
Utanáliggjandi olíudælur leyfðar, verða að vera drifnar af sveifarás.
“Dry sump” olíudælur og kerfi bönnuð.
ELDSNEYTISKERFI
Mekanískar innspýtingar eru leyfðar.
Blöndungur:
Nota má hvaða blöndung(a) sem er.
Bensínleiðslur:
Bensín leiðslur skulu ekki vera sverari en 1/2” Og skulu vera framleiddar sem bensínleiðslur.
Sjá aðalreglur 1:5
Eldsneiti:
Aðeins bensín sem hægt er að kaupa af dælu á bensínstöð leyft.
Öll almenn bensínbætiefni leyfð.
KVEIKIKERFI:
Útslátt og önnur hjápartæki má nota, þó ekki seinkara, biðbox eða önnur tæki sem hjálpa við brautarstart.
Ekki má breyta staðsettningu á kveikju frá original.
ÚTBLÁSTURSKERFI
Púströr:
Aukahlutur.
DRIFRÁS:
Drifskaft:
Æskilegt er að Baula sé utan um drifskaft á öllum bílum í þessum flokki, og skal hún staðsett samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og reglum KK.
Baula utan um drifskaft er skylda í öllum bílum sem fara hraðar en 12,99sek eða 100mílur og/eða eru á “slikkum”.
Sjá aðalreglur: 2:4.
(“Slikki”-“slikker”, er nýyrði í íslensku máli og finnst ekki í orðabókum (ca 40 ára gamallt), og er bein þýðing úr enska orðinu “dragslick” og/eða “drag race only tire”)
BÚKKAR & FJÖÐRUN:
Nota má hvaða fjörðunarkerfi sem er.
Staðsettningarpunktar fjöðrunarkerfis verða að vera þeir sömu og var frá verksmiðju
Ekki má færa fjaðrafestingar eða breyta þeim á nokkurn hátt.
Breyta má stífleika fjaðra, gorma, vindustanga osf, bæta má blöðum í blaðfjaðrir eða fjarlægja eftir þörfum. einnig má míkja eða stífa gorma/vindustangir eftir þörfum.
Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.
Sjá aðalreglur: 3:5.
YFIRBYGGING:
Allar léttingar og plast verða að vera með upprunalegt útlit, eina undantekning er húdd.
Nota má plast hluti séu þeir eins í útliti og original (á ekki við um húdd).
Nota má áfastar opnanir(scoop) á vélarhlíf.
Innribretti og hjólskálar verða að vera upprunalegar eða eins og upprunalegar og þá úr sömu efnum eins og upprunalega. Allar breytingar á hjólskálum og innribrettum bannaðar.
Undantekning frá þessu eru trefjaplast “roadster” yfirbyggingar (kit) sem eru skráð og á númerum og standast þyngdarmörk.
Innrétting:
Allir bílar verða að vera með fullri innréttingu
Gólfteppi verður að vera á öllu gólfi bíls eða eins og kom frá framleiðanda.
Skifta má út framstólum fyrir keppnisstóla sem þó þurfa að vera í original staðsettningu.
Taka má burt stokk milli framsæta eða hluta hans til að koma fyrir skifti.
Aftursæti má fjarlægja til að koma fyrir veltiboga.
Grind:
Allar breytingar á grind eru bannaðar. Þó er leyfilegt að styrkja grindur.
Stýri:
Bannað er að skifta frá orginalstýrisvél(snigill og sektor) og setja í staðinn tannstöng eða öfugt. Minnsta særð á stýrishjóli er 13” (34cm).
Á ekki við um “Kit” bíla sem eru skráðir og á númerum.
DEKK & FELGUR:
Dekk:
Slikkar leyfðir, stærð þeirra má ekki vera meiri en 28” X 9”.
Öll dekk þar sem merkingar framleiðanda hafa verið fjarlægðar bönnuð.
Öll dekk verða að vera fyrir innan innri brún bretta.
Ofangreint gildir líka um framdekk.
LETUR:
Letur þar með taldar auglýsingar má setja í rúður ökutækis þó ekki þannig að hindri útsýni og skyggi á keppnismerkingar.
Styrktaraðilar:
Styrktaraðilar eru leyfðir.
Að öðru leiti gilda allar öryggisreglur,sjá aðalreglur.
-
það er ekki nokkur leið að misskilja "forþjöppur og N2O (poweradder) bannað"
Þetta er eins ljóst og mögulegt er að hafa það á íslensku.
er þessi flokkur ætlaður svona á milli MC og SE?
-
Ekki eyðileggja gott þras.
Hann er að mörgu leiti opnari en SE.
-
Sælir félagar. :)
Þetta er miklu skemmtilegri flokkur en bæði MC/ og SE/ til samans. :smt038
Þarna geta gamlir skápar og nýjir, já og þeir sem þora komið og keppt við aðra sem þora líka, :!:
Já ekki má svo gleyma Hafnfirðingunum þeir lifa margir ennþá á metinu sem Jói Sæm setti 1980 11,58sek það, verður veisla hjá þeim. :bjor:
Já og Frikki góður punktur þarna í reglunum.
-
Alltaf gott að þrasa smá.. :)
En segið mér eitt spekingar, ef maður á minitöbbaðann gamlann djunka
er þá bara OF og GF í boði?
-
Góður púnktur,ég vill meina að ef flokkurinn,td SE er með 30*12.5 max dekkjastærð,að þá skiptir engu hvort menn mæta með többaðan bíl, svo lengi sem dekkjastærð er rétt ,bara að hann passi í flokkinn að öðru leiti,hann fer ekki hraðar á többinu. :D
-
já manni finnst það hálfpartinn að hámörkuð dekkjastærð mætti duga,
erfið staða að eiga többaðann bíl með fúlu krami.
En það geta vissulega ekki allir sigrað.
-
Settu bara rétta dekkja stærð á hann og komdu í SE.
-
Sælir félagar. :)
Þetta er jú alltaf spuning um blessaða togleðurshringina.
Með MS/ þá ákvað ég þegar ég skrifaði reglurnar að gera þetta sem jafnast (tekst nú mjög sjaldan :cry: ).
Eitt af því voru dekkin.
Þar sem þau mega ekki standa út fyrir yfirbyggingu og ekki er leyft að "tubba", þá fannst mér best að hafa sömu dekkjastærð og notuð var í standard flokki sem sagt 28"x9".
Reyndar hefur þessu verið breytt núna í 30"x9" en við höldum okkur við 28"x9".
Þessar stærðir voru notaðar þar sem flest allir geta komið þessu undir sína bíla. :!:
-
Tek þig á orðinu Frikki, þú lofar að kæra ekki :)
svo er bara að semja við hinar keppendurnar.
-
Ég er nú þegar búinn að því,við viljum fá alla sem passa "svo gott sem" í flokkinn í sumar og svo skoðum við í lok árs hvort eitthvað sé í reglunum sem þarf að fínpússa.
-
Það vilja náttúrulega allir fá flokkana sniðna í kringum sína eigin bíla.
Flottur flokkur hjá þér Dáni, og vonandi verða sem flestir í honum.
Held að menn ættu frekar að sníða bílana sína eftir flokkum....eins og það er gert allstaðar annarstaðar í heiminum, en að vera alltaf að þessu endalausu væli um að þetta og hitt mætti vera betra.
Kveðja
Kiddi