Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Moli on March 14, 2007, 23:25:29

Title: Krúser sýnir heimildarmyndir um Camaro og Shelby
Post by: Moli on March 14, 2007, 23:25:29
Bílaklúbburinn Krúser ætlar að sýna tvær heimildarmyndir nk. fimmtudagskvöld þann 15. Mars kl. 20:30.

Þar verða heimildarmyndir um 1967-1969 Chevrolet Camaro og Shelby Mustang bílana. Hver mynd er um 20 mínútur og verður gert stutt hlé á milli mynda. Þetta eru þættir úr smiðju American Musclecar.

Húsnæðið opnar kl. 20:00 en sýning myndanna hefst ekki fyrr en 20:30

Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og súkkulaði með til að seðja hungrið.

Miklar breytingar hafa átt sér stað á félagsaðstöðu Krúser manna, og meðal annars er búið að setja upp skjávarpa, fjarlæga milliveggi og eldhús, ofl. ofl.

Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta!

Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.