Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: SupraTT on March 06, 2007, 01:54:03
-
Kíkti til rvk á Sunnudaginn og tókum upp smá video
í byrjun er Siggi aðeins að prufa og leyfa mér að sjá og heyra hvernig þetta er þegar það er tekið aðeins á bílnum :wink:
Síðan fór ég aðeins og testaði hvort ég næði eitthverju gripi í bleytunni en það var eitthvað lítið :oops: :wink:
þetta er u.þ.b 4 min video
og auðvitað allt tölvugert og gerðist aldrei í alvörunni 8)
Bæði á youtube og video.google.com
http://www.youtube.com/watch?v=-RnjG-5-Os8
http://video.google.com/videoplay?docid=7116329986923967539
-
8) Hann virðist taka vel á.
-
Helvíti gott, nú vantar bara pólerað ventlok og soggrein
-
Það eru nokkur hestöfl í króminu mar :!: 8)
-
Já eitthvað er hann að vinna, en við skulum nú vona að leikaraskapurinn endi ekki uppá eyju og í gegnum stálgrindverk.... hún ætti nú að hafa reynsluna af því blessunin. :D
En flottur bíll og gaman að sjá hvað vel að verki er staðið í breytingum :D
uppá braut meðetta svo :)
-
Já eitthvað er hann að vinna, en við skulum nú vona að leikaraskapurinn endi ekki uppá eyju og í gegnum stálgrindverk.... hún ætti nú að hafa reynsluna af því blessunin. :D
En flottur bíll og gaman að sjá hvað vel að verki er staðið í breytingum :D
uppá braut meðetta svo :)
Takk
já það er samt furðulétt að halda stjórn á honum :wink:
en maður passar sig alltaf
Ætla að prufa að mæta uppá braut og þá verða kominn betri dekk undir. Prufa fyrst að mæta bara með hann einsog hann er núna, Low boost og æfa sig aðeins og sjá hvernig gengur áður en maður testar high boost og race gas :)
-
Þetta hlýtur að vera óalandi og óferjandi nema á feitum og góðum götuslikkum,ekki vantar aflið sýnist mér,fallegur bíll og fyrirmyndar frágangur,til hamingju með hann. :)