Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: TONI on February 27, 2007, 21:20:46
-
Hljómar kunnuglega, en samt.......... :D http://lyftukrus.spaces.live.com/
-
Drykkja og akstur :?
Gott kombó :roll:
NOT
-
Hef ekki kynnt mér starfsemina en nafnið þótti mér gott, hélt að flestir hefðu nú vit á að boða ekki þann boðskap þó svo að sumir geti ekki látið spíran vera á fjöllum, óskiljanlegt, en þetta er sumum erfiðara en öðrum að láta hann vera á meðan ekið er.
-
Þetta er bara einkahúmor hjá honum og vinum hans. Þetta er hugsað sem "parody" á Live2Cruize. Sumum finnst gott að fá sér krús þegar komið er í skála eftir langan akstur. Hefur ekkert með drykkju og akstur á sama tíma að gera. Vildi bara koma þessu á hreint svo menn tapi sér ekki í sleggjudómum.
:smt030 + :spol: = [-X
Ég held, og vona að það sé rétt hjá mér, að þessi mýta með að menn séu rallhálfir í jeppaferðum tilheyri fortíðinni. Ég hef allavega aldrei séð drukkinn ökumann í þeim ferðum sem ég hef farið í.
-
Mér lýst bara vel á þessa gaura, flottir bílar og allir virðast vera fyrirmyndar ökumenn og fjallmyndalegir líka.
-
já það er óhætt að segja að þeir séu myndarlegir þó að þeir sjáist nú lítið að myndum þarna, en bílarnir voru fallegir á þessum tíma :D
-
Verði að fyrirgefa en mínir félagar hafa þurft að láta senda þyrlu eftir sér ALLT OFT OFT út af drykkju og ág bíð bara eftir að ég þurfi að mæta í útför út af því, Syrgi of marga "motor" menn, ég HATA ÞETTA, en þótti nafnið skemmtinlegt. Anton