Kvartmílan => Muscle Car deildin og rúnturinn. => Topic started by: Moli on February 26, 2007, 20:06:48

Title: Krúser hópurinn sýnir 1985 Ford Mustang 429CJ
Post by: Moli on February 26, 2007, 20:06:48
Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna nýinnflutta, eða bíla sem ekki hafa sést lengi á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18.

Næstkomandi fimmtudagskvöld 1. Mars kl: 20:00 verður sýndur nýinnfluttur 1985 Ford Mustang með 429 CJ vél, mjög spes að því leiti!

Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og súkkulaði með til að seðja hungrið.

Miklar breytingar hafa átt sér stað á félagsaðstöðu Krúser manna, og meðal annars er búið að setja upp skjávarpa, fjarlæga milliveggi og eldhús, ofl. ofl.

Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta!

Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.
Title: s
Post by: dart75 on February 28, 2007, 23:58:04
sælir ekki eru menn til í að smella af þessumm nokkrar myndir og skella þeim hingað fyrir þá sem verða staddir á balli :roll:   Kv:Guðjón