Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Moli on February 26, 2007, 19:59:34
-
Videokvöld á Klúbbnum! 8)
"Turkey Run-farar" og Krúserklúbburinn efna til videokvölds Laugardaginn 3. Mars nk. kl. 19.00 á Klúbbnum við Höfðabakka.
Sýndar verða myndir frá Turkey Run sýningunni sem haldin var
á Daytona í Nóvember 2006 ásamt videomynd frá rúntum Krúsers ofl. gauragangi frá síðastliðnu sumri.
Einnig munu verða sýndar fleiri upptökur frá ýmsum uppákomum.
Krúser klúbburinn ætlar að opna félagsaðstöðu sína að Bíldshöfða 18 um kl. 16:00 sama dag.
Þar verður þar í boði bjór sem "Gvendur Ford" sér um að dæla ofan í sárþyrstan almúgann! (http://www.live2cruize.com/phpBB2/images/smiles/beerchug.gif) Þaðan verður síðan haldið á Klúbbinn!
Tilboð frá vertinum í Klúbbnum:
Hamborgari + kók .......... 1100.-
Hamborgari + stór bjór ... 1350.-
Stór bjór til kl 24.00.......... 500.-
ALLIR AÐ MÆTA! 8)
Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
Bíldshöfða 18.
...komnir til að vera. 8)
-
Maður lætur sig ekki vanta á þetta 8)
-
aldurstakmark ?
-
aldurstakmark ?
Það er nú ekkert aldurstakmark á þetta! Þetta hefst um kl. 19:00 og sýningu myndanna lýkur vel fyrir miðnætti. 8)
-
[
Krúser klúbburinn ætlar að opna félagsaðstoðu sýna að Bíldshöfða 18 um kl. 16:00 sama dag.
Sýna bíla eða opna sína félagsaðstöðu? :)
-
þetta hljómar vel,, ætli maður mæti ekki:D
-
Krúser klúbburinn ætlar að opna félagsaðstoðu sýna að Bíldshöfða 18 um kl. 16:00 sama dag.
Sýna bíla eða opna sína félagsaðstöðu? :)
aðeins fljótfær þarna.. smá stafsetningarvilla! þetta á að vera "..Krúser klúbburinn ætlar að opna félagsaðstöðu sína að Bíldshöfða 18 um kl. 16:00 sama dag..."
Semsagt félagsaðstaða Krúser verður opin þar sem fljótandi veigar verða á boðstólnum. Síðan eru að sjálfsögðu nokkrir bílar inni sem vert er að skoða, td. gamall 4 dyra blæju Lincoln sem Steini í Svissinum er að gera upp. 8)
-
Bara minna á þetta! 8)
-
einhver búsettur í grafarvoginum sem gæti pikka mann upp?
þarf vísu aðstoða niður stigann heima s.s. styðja við mann og hjálpa manni inní bílinn , maður lenti í vinnuslysi í gær og fékk sér nýtt tæki sem kallast hækjur.
Kannski þarf maður ekki þar sem vinur minn er ekki viss hvort hann fer.
8470815
-
Hvað segið þið, var stuð á liðinu :lol:
Missti maður af miklu :D
-
Hvað segið þið, var stuð á liðinu :lol:
Missti maður af miklu :D
Já þetta var mikið stuð, það komu menn og konur allstaðar af landinu, það komu góðir hoppar frá Akureyri, Akranesi, Flúðum og Keflavík.
Þess má geta að myndbandið sem Maggi (MOLI) gerði um sumarið 2006 og þegar við fórum til Daytona á Turkey Run vakti svo mikla lukku að það verður sýnt aftur vegna mikillar eftirspurnar næstkomandi Fimmtudag hjá Krúser að Bíldshöfða 18.
Aggi, láttu sjá þig! :wink:
(http://spjall.kruser.is/files/dsc03648_111.jpg)
-
Er þetta kóngurinn sjálfur :lol:
-
Er þetta kóngurinn sjálfur :lol:
:lol: :lol: :lol:
-
Já hvern hefði grunað að hann væri lifandi og í vellystingum á Íslandi.
Þrefalt húrra fyrir kóngnum.
-
Spurning um að ég uppfæri avatarinn :!:
-
Aggi, láttu sjá þig! :wink:
Já ég verð að fara að kíkja á þetta hjá ykkur, komast í klúbbinn :wink: