Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: 1965 Chevy II on February 25, 2007, 17:40:14
-
Á forsíðunni er linkur á reglurnar,SE flokkur var þannig bara fyrr í vikunni að neðri mörk kúbika voru 370 cid en eru í dag 415cid :!:
Hver breytti þessu og hvers vegna :?:
-
Hmmm... ég gerði copy/paste...? Tók eftir því að það linkaðist yfir á gömlu síðuna þar sem var önnur stjórn upplistuð og fl...
http://www.kvartmila.is/se.html gamla
http://www.kvartmila.is/display.php?PageID=40 nýja
Ég gerði bara copy og paste... Breytti engum texta..
-
ATH! Verð að koma hér að smá villu í reglum á SE sem Frikki var að reka augun í!
Á aðalfundi 2002/2003 var blái textinn hér undir samþykktur en það virðist hafa klikkað að taka út það sem fellt var.. sem ég lita með rauðu hér.. Ég leiðrétti þetta á heimasíðunni nú þegar!
FLOKKALÝSING
Flokkur fyrir bíla sem keyrðir eru á götum,með fulla skoðun og löglegir skv. Íslenskum lögum og tilbúnir til skoðunar í löglegri skoðunarstöð. Keppnistæki skulu auðkennd með: SE/ og númeri ökumanns. Eftirfarandi Þyngdartakmörk eru í flokknum: Ökutæki með vélarstærð að 370cid, 1450kg (3190lbs).
Ökutæki með vélarstærð yfir 370cid, 1550kg (3410lbd).
Ræsikerfi: "Full tree"
Ökutæki með vélarstærð að 415 cid, skulu vera lágmark 1350kg. Ökutæki með vélarstærð yfir 415 cid, skulu vera lágmark 1550kg. Hámarks vélarstærð 515 cid.
-
ATH!! Smá meira
Blái textinn samþykktur 2001 og sá rauði felldur!
ÚTBLÁSTURSKERFI:
Útblásturskerfi verður að vera til staðar í bílum í keppni samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi. Kerfið má ekki beinast að vagni eða dekkjum , og vera tilbúið til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunar stöð hvenær sem þurfa þykir. Hámarks sverleiki röra er 3,5"(8,89cm). Hámarks sverleiki röra er 4".
Leiðrétt :)
-
Sí,allt komið á hreint,415cid er það sem gildir.Takk fyrir