Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Ásgeir Y. on February 20, 2007, 20:12:40

Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Ásgeir Y. on February 20, 2007, 20:12:40
ég rak augun í þetta á geymslusvæðinu um daginn og var pínu forvitinn að vita hvað þetta væri, getur einhver frætt mig um það?

(http://internet.is/point/g1.jpg)
(http://internet.is/point/g2.jpg)
(http://internet.is/point/g3.jpg)
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ElliOfur on February 20, 2007, 20:15:33
Þetta er með því allra ljótasta sem maður hefur séð, og fokk hvað myndirnar eru stórar :D
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Moli on February 20, 2007, 20:45:06
Þennan bíl á maður að nafni Guðjón (ADLER hérna á spjallinu) þetta er bíll sem stóð lengi í Seljahverfi, rétt við Seljakirkju. Þetta er Kit bíll af gerðinni Eagle SS og er breskur, og var smíðaður alveg sérstaklega fyrir íslending sem flutti hann inn. Það er kram úr Ford í honum annaðhvort úr Taunus eða Cortinu, og er árgerð ´84. sjá meira --> http://www.eaglekitcars.co.uk/Cars/EagleSS/EagleSS_Cars/EagleSS_Register/Peter_Lee.htm
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 20, 2007, 21:04:53
Hvern Andskotann ertu að þvælast á mínu svæði  Ásgeir  :evil:

http://www.eaglekitcars.co.uk/Cars/EagleSS/EagleSS_Cars/EagleSS_Register/G_Orn_Stefansson.htm
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Damage on February 20, 2007, 21:40:20
er þetta falt ?
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Ásgeir Y. on February 20, 2007, 21:41:16
var nú bara að vesenast þarna v/vinnu, erum með svæði þarna nokkrum metrum frá
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Einar K. Möller on February 21, 2007, 01:29:40
Ég man sko VEL eftir honum þessum, stóð lengi vel í Ásgarðinum (108 rvk) í bílastæði þar. Pældi mikið í því hvað hefði orðið af honum.
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 21, 2007, 10:33:05
Quote from: "Damage"
er þetta falt ?

 :)
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Damage on February 21, 2007, 18:08:25
Quote from: "ADLER"
Quote from: "Damage"
er þetta falt ?

 :)

ehh ?
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 21, 2007, 23:32:27
Þetta er sá sem lét smíða bílinn útí Bretlandi og flutti hann svo inn.
 :)

http://www.heimsnet.is/thestone/

Alveg stór merkilegur náungi  :wink:

(http://www.heimsnet.is/thestone/TSDreaming.jpg)

 :lol:
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Moli on February 21, 2007, 23:42:15
fékk þessi bíll einhverntíman skráningu?
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 21, 2007, 23:52:35
Já hann er sá eini og fyrsti kit car bílinn sem fékk skráningu og var á götunni í nokkur ár.

Þetta vita ekki margir og það gerið bílinn svoldið merkilegann fyrir vikið.

 :)
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: JONNI on February 22, 2007, 00:07:26
Já þetta er æðislegt....................................... :shock:
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: oskard on February 22, 2007, 08:52:14
Quote from: "ADLER"
Þetta er sá sem lét smíða bílinn útí Bretlandi og flutti hann svo inn.
 :)

http://www.heimsnet.is/thestone/

Alveg stór merkilegur náungi  :wink:

(http://www.heimsnet.is/thestone/TSDreaming.jpg)

 :lol:

haha þessi maður er snillingur
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: siggik on February 22, 2007, 17:32:51
bíddu var /er þessi maður eki kennari í iðnskólanum ?
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 22, 2007, 21:02:21
Quote from: "siggik"
bíddu var /er þessi maður eki kennari í iðnskólanum ?

Það gæti passað.
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 22, 2007, 22:03:28
(http://static.flickr.com/67/225912861_9c2fae780d_m.jpg)
(http://i68.photobucket.com/albums/i7/oakraider408/eGrjzmVCkvVV1eXb5Y8QP4rqyVpp.jpg)
(http://www.geocities.com/motorcity/4570/eagleSS.jpg)
(http://www.geocities.com/taoist_goth/3kitcars.jpg)
(http://www.geocities.com/taoist_goth/eagless.jpg)
(http://www.geocities.com/taoist_goth/eaglefront.jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Register/Q178%20FDG%20(1).jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Register/SP%2028%20850.jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Register/TVX698R_2.jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Wanted/88HKB_1.jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Register/Q442LFL_2.jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Register/TVX%20698R_1.jpg)
(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/EagleSS_Images/EagleSS_Cars/Register/Q975VAMa.jpg)
(http://www.oblibene.com/userdata/shopimg/malirstvi/Image/weekP1010035m.jpg)
Title: ...
Post by: keb on February 22, 2007, 22:12:09
Þessi kall er stórskemmtilegur .... búinn að kannast við kauða í nokkur ár en vissi samt ekki að hann hefði minnsta bílaáhuga, hélt að hann væri á kafi í hjólum
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: JHP on February 23, 2007, 01:49:52
Vááááá...Þetta er ljótara en.........ljótt  :shock:
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: oskard on February 23, 2007, 02:07:52
þetta er svo ljótt að þetta er held ég byrjað að vera flott  :lol:
Title: Re: ...
Post by: siggik on February 23, 2007, 15:29:00
Quote from: "KRISSI"
Þessi kall er stórskemmtilegur .... búinn að kannast við kauða í nokkur ár en vissi samt ekki að hann hefði minnsta bílaáhuga, hélt að hann væri á kafi í hjólum

sammála !"

fynnst þessi svoldið flottur á króm felgum sem var linkað þarna áðan, minnir mann smá á detomasso
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: broncoisl on February 23, 2007, 17:05:24
Þessi er skemmtilega fallega ljótur.

Á ekki að reyna að koma honum saman?
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 23, 2007, 21:21:37
Quote from: "broncoisl"
Þessi er skemmtilega fallega ljótur.

Á ekki að reyna að koma honum saman?

Hann er í löngu röðinni hjá mér og væri eflaust löngu kominn á götuna ef að maður hefði nógu stórt húsnæði fyrir allt sem að manni langar að gera.

Það var eiginlega algjört slys að þessi bíll komst í mínar hendur,ég hitti þann sem átti bílinn í bænum, ég var vel í glasi og í góðum gír og ég gerði tilboð í bílinn sem ég varð svo að standa við  þegar að það rann af mér.

Örugglega eitt al dýrasta fyllerí sem ég hef lent í...... :?

Áfengi er alveg stórhættulegt maður, af öllum bílum voru til sölu á þeim tíma er þetta var þá keypti örugglega alljótasta bílinn í öllum bænum...........
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: Halldór Ragnarsson on February 23, 2007, 21:36:27
Það sem verra er ,er það að VW vélar eru ekki beinlínis það besta sem er í boði og ekki lengur eins algengar og áður.Ég veit um vél hinsvegar sem þyrfti að gera upp,Adler ef þú hefur áhuga fyrir mjög lítið

KV.Halldór
Title: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on February 23, 2007, 21:46:21
Það er ford kram í þessum og vélin er frammí. :wink:

(http://www.eaglekitcars.co.uk/images/Adverts/SportsCar%20Mechanic%20-%20Which%20Kit%20Suppliment%20-%20undates%20about%20July83%20-%20Eagle.jpg)

http://www.eaglekitcars.co.uk/Eagle_Adverts.htm

http://eaglecarclub.proboards25.com/index.cgi

Þetta er að fara aftur í framleiðslu.
http://www.teacsportscars.co.uk/

(http://www.teacsportscars.co.uk/Images/Flyer-06.jpg)
Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: thorstar on July 04, 2009, 11:20:19
Æ, greyjið! Er hann loksins fundinn!
Mig langar svolítið (mikið) að fylgjast með hvað verður af honum, ef nýja eigandanum er sama?  :D

hehe... Þorsteinn Ingason heiti ég og var kennari í Iðnskólanum...
Það var víst ég sem átti mér þann draum að eiga þennan sérkennilega bíl.

(http://img.photobucket.com/albums/0903/icelandknight/thor_eagle_1987.jpg)

Hann var framleiddur af Eagle Cars í Bretlandi, en átti sér mjög langa og skrýtna sögu!
Hann var hálf kláraður þegar enska ríkið ákvað að hóta Eagle Cars... Annaðhvort borguðu þeir skatt sem Kit Car Manufacturer (sem var minna) eða af full gerðum bílum (sem var meira). Þeir ákveðu að borga minna, og settu bílinn til prívat aðila, til að klára hann. Auðvitað fór verðið upp úr öllu við það (rauk upp úr £3000 UKP sterlingspundum í £5500) - Og svo, fyrst ég var ekki alveg búinn að ganga frá greiðslu á honum (var að vinna í Hagkaup á þessum tíma, og EKKI vel launað!) sentu þeir hann út um allt england á sýningar, en alltaf á palli. (þ.e.a.s. Hann var ekki keyrður þangað.) - Þetta var eini SVARTI bíllinn sem þeir höfðu til að sýna, og sögðu þeir að hann hafi vakið mikkla lukku. Maður varð nú svolítið SÁR þegar maður frétti af þessi, því ekki var maður spurður að því!  :???:

Allavega, lán var tekið fyrir upphæðinni, en of dýrt var að taka hann heim frá UK, og var hann fluttur til Bremen, í Þýskalandi. Þar var hann fluttur heim af Eimskip. (man ekki hvaða ár, en það er hægt að finna það hjá VÍS, þeir tryggðu hann. Samt um árið 1989, ef ég man rétt. Þá vann ég í Kók (Vífilfelli) en NEITAÐI að leifa þeim að setja 4 Kók merki, 2 á hvern stuðara, sem auglýsing, gegn 60,000 kr. greiðslu á mánuði! Ég vildi ekki að hann yrði kallaður "Kók Bílinn!"

En... ég ætlaði mér að nota hann sem auglýsingu fyrir hljómsveit sem mig langaði til að stofna á íslandi.
*ahem* Svo varð ekkert úr því... aðalega vegna þess að kom fljótt í ljós, á þessum tíma, að aðal fólkið í tónlista bransanum, sem komu HEIM til mín til að taka upp, voru annaðhvort óheiðarlegir (þjófar) eða í einhverju rugli. Svona er þetta stundum. því miður.)

En hér eru nokkrar myndir af bílnum með þýska útfluttningsnúmerinu, úti á nesi:

(http://img.photobucket.com/albums/0903/icelandknight/EagleSS2.jpg)

... og hérna er Gróttuviti bakvið:
(http://img.photobucket.com/albums/0903/icelandknight/EagleSS_DoorsBehind.jpg)

Ég gat valið mótor í bílinn... Um var að ræða 1300, 1600 eða 2000 Cortinu mótor frammí... eða aftaní VW Bjöllu eða (sama og eigandi Eagle Cars var með) Porche vél... Þá voru "eyrun" á hliðunum opnuð til að kæla mótorinn. Ég valdi 1600 vélina... EN... loftsýjann þýddi það að risa DÆLD var á húddinu, og maður sá nú þegar, fannst mér ALLT of lítið út úr honum, þannig a' ég valdi að hafa enga loftsýju, og sjá þarmeð betur út um framrúðuna! Það bjargaði mér nokkrum sinnum. Svo þurfti oft að opna hurðina upp í loft, til að sjá hvert var verið að bakka! :)

Málið var að þetta var svo "spes" bíll að hann fékk voða lítið að vera í friði!
Árni Kópsson hafði td. áhuga á því að kaupa hann, en fannst bílinn of dýr.
(Það höfðu bæst innfluttninggjöld og fluttningur til íslands við upphaflega lánið, og var maður að reyna að minnsta kosti ná inn fyrir því!)

Að lokum keipti ég gamalt bilað Harley Davidson af lögguni, og lennti í "Hjólheima" ruglinu... - Þar sem hjólið var rifið í sundur og svo bara sagt einhver fáRÁNleg tala sem átti að greiða, eða það yrði ekki skrúfað saman aftur... og svo var endalaust stolið varahlutum úr hjólinu og sett í önnur hjól sem voru þarna, td. var verið að byggja Chopper sem fékk bestu hlutina úr mínu hjóli, og ég fékk gamla draslið úr einhverjum Norskum HD mótor sem var fluttur inn, en bara gamalt drasl.  :evil:
Mig vantaði allavega nógu mikkla upphæð, hratt, til að koma hjólinu saman, svo ég gæti farið með það á næstu sölu! Þá var einn sem hafði áhuga á bílnum fyrir konuna sína, og HÚN keipti bílinn, gegn því að greiða upp viðgerðina á Hallanum. (Þetta var nú meira ruglið.) - Allavega, þó ég hafi varað hann við, keipti Salvatore Torrini (pabbi hennar Emiliönu) gamla Harley hjólið mitt... og fór með það? Hvert haldið þið??? ... Í Hjólheima aftur! (WTF???)

Allavega... Þetta tilheyrir söguni núna.
Ánæjulegt að bíllinn er kominn í hendur á einhverjum sem ætlað að líta vel eftir honum.
Maður hefur lúmska von um að sjá bílinn á götuni einhvertíman???
Númerið á honum var "R 24824".

Kveðja,
Þorsteinn Ingason
Ef þú sérð hjólið mitt (THE ONE) á Ingólfstorgi er ég aldrei langt frá. Ekki hika við að segja HÆ!
(http://img.photobucket.com/albums/0903/icelandknight/chief_intruder/DSCN3573.jpg)
Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on July 05, 2009, 14:44:26

Ég er búin að eiga bílinn í mörg ár en því miður þá er hann ekki í góðu ástandi og var hann orðinn mjög dapur er ég eignaðist hann það þarf að endursmíða hann frá grunni ef hann á að verða góður.

Skemmtilegar upplýsingar sem koma þarna fram varðandi sögu bílsins,áttu ennþá þýsku útflutnings númerin ?

Ég hjólaði nú nokkrum sinnum með þér Þorsteinn fyrir nokkrum árum síðan ég var þá á 1100 shadow en þú áttir þannig hjól sjálfur ef ég man rétt.

Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: iceknight on July 06, 2009, 00:11:18
Aha! Gaman að heyra frá þér á nýjan leik, þá... og ánægjuleg tenging!
Ég átti Shadowinn í 6 ár, þú manst örugglega eftir honum og mér svona:

(http://img.photobucket.com/albums/0903/icelandknight/l_bda03b34e34d7a2f6f625499d25f4010.jpg)
Mynd tekin af Pólska sjónvarpinu, þegar þeir komu til að taka viðtal við nokkra íslendinga. - Þegar þeir sendu mér myndina með eMaili, sögðu þeir að þeir hefðu ekki getað notað mikið úr viðtalinu við mig... vegna umræðuefnisins! Hey! Þeir spurðu, og ég svaraði bara hreyskilnislega!
Þeir spyrðu: "Þegar þú heyrir um Póland, hvað dettur þér í hug?"
Ég svaraði: "Auglýsingar frá Pólsku kvennfólki sem er að reyna að finna karla í öðrum löndum!"
haha... Það gaf of mikið í skyn að fólk vildi fara FRÁ Pólandi til að nota í þáttinn!

En Shadowinn fór 1998, eða þegar Dossi, Bláfállavörður, lagði 1500 Intrudernum við hliðina á Shadownum við Ingólfstorg, og féll risa skuggi á Shadowinn! haha - Þá fékk ég mér 1500 Intruderinn, sem var þá bara nýkominn á markaðinn þá, en ég á enn í dag... og ég hef ekki saknað neins hjóls eftir Intruderinn! - Þó ég hafi átt nokkur auka hjól í millitíðinni.
-
En sorglegt að heyra um ástand gamla Eagle-sins... Það er nú svolítið fyndið að BÆÐI Tollstjórinn OG VÍS héldu að þetta væri "American Eagle", sem er risa station bíll, og ætluðu sko aldeilis að ræna mann!!! En svo þegar þeir sáu mynd af bílnum, ég mætti (eins og lagið segir) "með mynd - af bílnum - í vasanum!" - þá var þetta allt annað mál.

Eitt enn, sem er kannski mikilvægt: Enska grind-suðan var ekki betri en það, að þegar ég tók (ekkert svakalega) beiju inn á Esso á Ægissíðuni (nú N1), brotnaði grindin í sundur, og aftari helmingur bílsins lagðist svo gott sem á afturdekkin! Ég SKREIÐ á bílnum til Kopavogs, í iðnaðarhverfið, og þeir suðu hana saman "á íslenska vísu"... og fannst þeim gaman að gera BETRA en bretarnir! haha...

Það er að vísu svo margt meira um þennan bíl sem maður man... eins og til dæmis hvað var erfitt að sjá út úm fram rúðuna, og afi vinkonu minnar var næst um því búinn að fá hjartaáfall -þrisvar sinnum- þegar ég var að reyna að fara niður af hringbraut, áður en maður kemur að Eliðánum! Var rosa erfitt að sjá hvar afleggjarinn var, og ég snerti kantinn 3svar! - Ein lausn sem rædd var að fá stærri dekk að aftan, en varð alædrei úr því frekar en að ég skutlaði afa hennar heim aftur! (Ég vissi ekki að hann væri á hjartalifjum, og átti að forðast öll SJOKK! - Ég reyndi að snúa þessu í grín fyrst við komumsta alla leið heim til hennar, og sagði... "en -what a way to go-, í flottum sport bíl, ha?" - Þau bara horfðu á mig.
Ég vissi þá að dagar sambands míns og stelpunar voru teljanlegir.

Það væra gaman að kíkja á hann einhvertímann, ef nýji eigandinn leifir. *hint*hint*

Kveðja,
Þorsteinn

ps. eitt sinn voru þýsku númerinn úti í skúr, en það var 1989... Efast um að þau séu þarna ennþá. Því miður.  :???:
Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: Lexi Þ. on August 05, 2009, 15:59:15
þetta ætti ekki að flokkast undir bíl  :lol:

þetta er viðbjóðslegt  :shock:
Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: Gabbi on August 30, 2009, 15:55:15
djö er þetta ljott  :-& ekki moðgast
Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: ADLER on August 30, 2009, 19:46:02
djö er þetta ljott  :-& ekki moðgast

 :smt089
Title: Re: kit car á geymslusvæði
Post by: Gabbi on August 31, 2009, 02:43:06
djö er þetta ljott  :-& ekki moðgast

 :smt089
sorry þetta er bara ekki smekurinn minn :wink: