Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Dodge on February 01, 2007, 18:56:08

Title: Umhugsunarefni fyrir aðalfundi KK og BA
Post by: Dodge on February 01, 2007, 18:56:08
Það er blessaður tryggingaviðaukinn.

Nú er þetta að verða sífellt erfiðara mál, þ.e.
1. Nú eru flest tryggingafélög farin að rukka fyrir viðaukann 8000.- á ári.
2. Stöðugt vandamál er að fá viðauka á fornbíla, jafnvel hefur maður fengið þvert nei á
25 ára gamlann bíl þrátt fyrir að borga 8000 kallinn.
Og ekki heldur mögulegt að breyta í venjulega tryggingu.

Þessi atriði fara síversnandi ár frá ári.

Annað sjónarmið er afhverju, þ.e.
Ekki þarf viðauka á óskráða og ótryggða bíla, afhverju þarf þá aukatryggingu á tryggðann bíl?

Það sem ég er að spá er hvort félögin geti ekki fengið aukatryggingu á
sitt keppnishald sem bæði kemur í staðinn fyrir þennan viðauka
og væri einnig bætt trygging á ótryggðu tækin.

Þennan aukakostnað mætti þessvegna dekka með hækkun á keppnisgjaldi
ef nauðsin krefur, og tel ég að það yrði samt til sparnaðar fyrir bæði
klúbbana og keppendur.

dæmi: Fornbíll sem neyðist til að skifta í venjulega tryggingu (ef hann fær
það þá) og borga viðaukann.
Við þetta hækka tryggingarnar úr 15 til 20.000.- í 60 til 80.000.-

Þetta þykir mér leiðinlega mykill kostnaður fyrir okkur sem erum alltaf á kúpunni.

Með fyrirfram þökk, og von um að dæmið verði í það minnsta athugað.
Title: Umhugsunarefni fyrir aðalfundi KK og BA
Post by: Nóni on February 01, 2007, 21:32:30
Sæll félagi, það er stefnan að ræða við tryggingafélögin nú á næstunni til að koma einhverju viti í þetta mál. Gersamlega ótækt að þeir vinni beinlínis á móti okkur.

Kv. Nóni
Title: Umhugsunarefni fyrir aðalfundi KK og BA
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 01, 2007, 22:58:12
Nóni ég sendi þér hlýjar hugsanir í þessu máli og vonandi fara tryggingarfélögin ekki að standa gegn okkur við að reyna að koma hraðakstri af götum inná lokað svæði.
Annars væri það ágæt fyrirsögn
TRYGGINGARFÉLÖGIN VILJA EKKI HRAÐAKSTUR AF GÖTUM BORGARINNAR.
Title: Umhugsunarefni fyrir aðalfundi KK og BA
Post by: Dodge on February 01, 2007, 23:00:36
Gott að heira.
Title: Umhugsunarefni fyrir aðalfundi KK og BA
Post by: 1965 Chevy II on February 01, 2007, 23:06:16
Þetta er líka svo vitlaust,það er margfalt öruggara að vera á brautinni heldur en í umferðinni.
Ef ég er með bílinn á númerum og tryggðann, nei sorry mátt ekki keppa.
Tek hann af númerum og fer í OF,gjörðu svo vel þú ert núna tryggður. :roll:
Title: Umhugsunarefni fyrir aðalfundi KK og BA
Post by: Nóni on February 02, 2007, 19:23:18
Quote from: "Trans Am"

Einmitt!