Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Krissi Haflida on December 08, 2006, 19:07:32
-
Verður kvartmílan eitthvað sjónvörpuð næsta sumar??
-
nei öruglega ekki :evil: það er bara tofæra og rall það er vist það eina sem er sjónvarps vænt :!: það segir allavega Biggi Braga :evil:
-
Það er nokkuð rétt hjá honum,þegar mílan er tekin upp af amatörum þá verður hún lítt spennandi sjónvarpi.
-
Verður kvartmílan eitthvað sjónvörpuð næsta sumar??
Það er búið að skoða þetta aðeins og búið að setja menn í málið og vonandi fáum við eitthvað út úr því. Annars geri ég mér ekki miklar væntingar um þetta.
Nóni
-
en úr því að menn eru að spyrja stjórnina... Hvar er þá tímaskiltið sem Shell ætlaði að splæsa?
-
en úr því að menn eru að spyrja stjórnina... Hvar er þá tímaskiltið sem Shell ætlaði að splæsa?
Á leiðinni 8)
Nóni
-
Allar keppnir innan LÍA eru sýndar í sjónvarpi.
-
Það er alveg greinilegt að spjallborðstjórnendur hérna á KK spjallinu bera sig alltaf vel og sýna almennan þroska.
Þess má geta að stjórnendur þessa spjallborðs hafa nú sett upp orðaeftirlit sem gerir það að verkum að alltaf þegar þú skrifar (http://lia.is/58899.jpg) inn á spjallið þá er því sjálfkrafa skipt út fyrir Fúsk Ehf. Ég kemst hér frammhjá því með því að nota myndir í stað þess að skrifa (http://lia.is/58899.jpg)
.Með þessu er greinilegt að þessir stjórnendur hafa eitthvað á móti því að ég sé að tjá ykkur hvað (http://lia.is/58899.jpg) hefur að bjóða fyrir félaga sína. (http://lia.is/58899.jpg)
sér um framleiðsluna á Mótorsport þættinum og allar greinar innan (http://lia.is/58899.jpg) eru sýndar í sjónvarpi. Ég hélt að allir vissu þetta en þetta er augljóslega eitthvað sem stjórnendur KK vilja fela fyrir ykkur.
Þeir sem hafa áhuga á að fræðast meira um sjónvarpsmálin fyrir næsta sumar og stöðuna þar eru hvattir til að mæta á næsta aðalfund (http://lia.is/58899.jpg)
Staðsetning: ÍSÍ, Laugardalur
Dagsetning: 27.desember 2006
Fundur settur kl: 20.00
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkv. lögum (http://lia.is/58899.jpg)
-
Sá sem gerði þetta fær allavega 10 fyrir húmor :lol:

ég spurði einhvern tímann að þessu og fékk engin svör innan félaga hérlendis.. þar sem nokkrar sjónvarpsstöðvar hafa sprottið upp eftir þennan ævilanga samning var gerður er þá ekki hægt að semja við aðrar sjónvarpsstöðvar sem þessi ákveðni samningur nær ekki til?
fékk ekki Líbertí Internatual Anticrist bara samning til eins árs og þá yrði þetta endurskoða þessi keppnisdótl
-
Nú skil ég ekki alveg.
Hvaða samning?
Endurskoða hvaða keppnisdót?
-
Bíddu hvað er í gangi hérna
LÍA
Bara að ath hvort þetta sé rétt hjá þér
L.Í.A.
-
Nú skil ég ekki alveg.
Hvaða samning?
Endurskoða hvaða keppnisdót?
sjónvarpssamninginn endalausa hjá þessu fyrirtæki sem lía á/átti.. man ekki nafnið á því í augnablikinu , keppnisleyfinn fyrir öll mótorsport sem blessaða dómsmálaráðneyti hætti með og gaf einum mótorsport aðila grænt til að gefa þau út í stað dómsmálaráðneytis
-
Þetta verður lagað
Burt séð frá samskiptum okkar og landsambandsins í fortíðinni þá veit ég ekki til þess að það séu nein illindi lifandi í dag meðal þeirra sem hafa einhvað með stjórnum klúbbins að gera.
Þetta er barnalegur biturleiki einhvers stjórnanda hér á spjallinu og engann veginn álit eða viðhorf stjórnarinnar
Við í stjórn klúbbsins viljum það eitt að samstarf okkar við aðra sé á góðum nótum og unnið af hreinskilni og trú, þar á meðal við Landsambandið.
Þetta verður skoðað og vil ég biðjast afsökunar á þessu fyrir hönd okkar hér í Kvartmílu Klúbbnum.
-
Lagað.
-
Djöfull eruð þið viðkvæmir.
-
Djöfull eruð þið viðkvæmir.
:lol:
-
Hvaða plön er klúbburinn með á prjónunum til að koma sér á framfæri næsta sumar, svo hann verði sýnilegri???
-
Verður maður að vera í Lía til að komast inn á aðalfund Lía ?
stigurh
-
Nei þarft ekki að vera í LÍA til að komast inn á aðalfundinn.
-
Hvaða plön er klúbburinn með á prjónunum til að koma sér á framfæri næsta sumar, svo hann verði sýnilegri???
Hvað segir stjórnin???
-
Hvaða plön er klúbburinn með á prjónunum til að koma sér á framfæri næsta sumar, svo hann verði sýnilegri???
búum til dagatal þar sem við synum slátrið 8)
-
Ég keypti póler tork í dag, vill einhver tissjú? :D Og já, sá sem gerði þetta lía fúsk ehf replace dót fær 10 í einkun fyrir húmor, en 0 fyrir flest annað því tengdu.
En afhverju fannst mér ég hafa séð eitthvað um kvartmíluna í sjónvarpi í sumar? Eða var það bara blaðagrein? Ég man allavega eftir blaðagrein.
Allavega þarf að auglýsa keppnirnar betur til að fólk hreinlega viti af þeim. Það fór oft framhjá mér í sumar að það væri keppni, þótt ég skoðaði spjallið reglulega og hef það fyrir reglu að taka fréttablaðið með mér í vinnuna og renna yfir það á hverjum degi. Hvað kostar heilsíðuauglýsing á þokkalegum stað?
-
Með hraðaksturinn, hvernig væri það að kvartmíluklúbburinn færi að einbeita sér meira að því slagorði sem þeir hafa gengið á öll þessi ár "Hraðakstur af götum borgarinnar". Það vantar ekki tækifærin til að koma þessu á framfarir (og ekki fara að tala um kostnaði hérna), það eru nægilega margir sem væru pottþétt til í að leggja þessu lið. Það þarf með ÖLLUM tiltækum ráðum að koma þessu til fjölmiðla t.d í sjónvarp, dagblöð og aðra miðla.
Það væri ráð að opna brautina fyrir fólk, ókeypis daga til að leyfa fólki að keyra og sjá hvernig sportið er. Prófa bílana til fulls og án vafa væru eigendur og ökumenn aflmestu bílana til í að koma til að sýna hvað klúbburinn gerir líka.
Endilega kommentið.....
-
Held t.d. að það væri ráð að kynna keppnirnar betur, er ekki yfirleitt bara smáauglýsing í fréttablaðinu sem tilkynnir keppni, þyrfti að vera flott auglýsing með mynd af einhverjum græjum í burnout t.d. held að það sé eitthvað sem heillar, kostar sjálfsagt eitthvað líka að setja svona auglýsingu, en kannski kemur þá á móti að það koma fleiri áhorfendur!
-
Held að fréttablaðið birti greinar ef þeir fá þær tilbúnar, svo það vantar einhvern "kynningarfulltrúa" sem getur farið í kastljósið og rætt málin sem og "blaðafulltrúa" sem sér um greinar og myndir.
Það væri mikið atriði fyrir klúbbinn að sinna því eins og Krissi sagði koma slagorðinu aftur meðal fólksins, því það virðist hafa "gleymst" hvernig komið er fyrir ungdómnum í umferðinni, td, var ekki einn hirtur á Sæbrautinni á 150 með einum of marga í bílnum, það þarf að ná til þessara púka og þeir hlusta frekar á akstursíþróttamenn en á mömmu, pabba og lögregluna.
-
Jæja :roll:
Er stjórn KK virkilega svona miklir pappakassar að þeir þora ekki að svara mjög svo málefnalegum umræðum um Klúbinn og starfsemi hans????
Það verður gaman að sjá svarið frá stjórnarmönnum kk hér á spjallinu ef þeir þora :roll:
Oftast þegar er verið að spyrja stjórnina um þeirra verk og "afrek" þá fara þeir í vörn og annaðhvort spyrja menn um nafn svo þeir viti hver er óánægður með þeirra verk eða spyrja á móti hvað hafa menn gert fyrir klúbbinn :roll:
Þeir sem eru í stjórn klúbbsins eiga að vinna sjálfir vinnuna eða allavega skipuleggja hana,veit að nokkrir menn komast ekki yfir allt en það er lágmark að vera búinir að skipuleggja það sem þarf að gera svo að sjálfboðaliðar geti gengið hreint til verks þegar það þarf
Hvar er hægt að nálgast drög að starfsemi KK,fundarstörfum og stefnum hans?
Eru fundargerðir ekki settar á netið eða prentaðar og gerðar opnar allmeningi eða allavega klúbbsmeðlium sem ekki geta mætt á fundi KK
sem OFTAST eru auglýstir með stuttum fyrirvara
Þetta er mitt álit,ef stjórnarmenn kk þora ekki að svara og þeirra eina svar er að banna mig,So Be It en það lýsir þá þeim sjálfum
Ekki allir stjórnamenn KK eru pappakassar bara sumir :D
kv og ég ætla ekki að skrifa undir nafni því það skiptir ekki máli hver er að segja hlutina helfur að þeir séu sagðir!!!!!!
Og hana nú!!!!!!
-
Með hraðaksturinn, hvernig væri það að kvartmíluklúbburinn færi að einbeita sér meira að því slagorði sem þeir hafa gengið á öll þessi ár "Hraðakstur af götum borgarinnar". Það vantar ekki tækifærin til að koma þessu á framfarir (og ekki fara að tala um kostnaði hérna), það eru nægilega margir sem væru pottþétt til í að leggja þessu lið. Það þarf með ÖLLUM tiltækum ráðum að koma þessu til fjölmiðla t.d í sjónvarp, dagblöð og aðra miðla.
Það væri ráð að opna brautina fyrir fólk, ókeypis daga til að leyfa fólki að keyra og sjá hvernig sportið er. Prófa bílana til fulls og án vafa væru eigendur og ökumenn aflmestu bílana til í að koma til að sýna hvað klúbburinn gerir líka.
Endilega kommentið.....
Kæri Kristján,
finnst þér brautin hafa verið lítið opin síðastliðið sumar? Nú eða síðastliðin ár?
Allavega er það þannig að það hefur verið töluvert álag á okkar góðu starfskröftum og það vantaði ekki nema svona 4-5 föstudagskvöld inn í þetta hjá okkur og það vegna bleytu.
9 keppnir voru haldnar og ein sandspyrna, það er nú meira en oft áður.
Ég er sammála því að það þurfi að koma þessu meira á framfæri og auglýsa betur, við erum byrjuð á þeirri vinnu með að koma þessu í útvarp og víða á framfæri. Það er samt allt í lagi að tala um kostnað vegna þess að það þarf jú að reka klúbbinn líka.
Ég veit ekki betur en að við höfum verið að reyna að koma þessu slagorði (hraðaksturinn af götunum og inn á lokað svæði) að hvar sem er og hvenær sem er, og reynt að kynna okkur sem klúbb fyrir unga fólkið. Ég get sagt með góðri samvisku að um eða jafnvel yfir 50% meðlima eru nýtt fólk sem einmitt kemur aðallega til að prófa bílana sína á föstudögum.
Það stendur ýmislegt til hjá okkur í sumar en vegna þess að sumt er styttra á veg komið en annað er ekki hægt að tala um það í bili. Svo er það líka þannig að ef maður opnar munninn um eitthvað sem þyrfti að gera eða eitthvað álíka er það kannski rekið upp í nefið á manni seinna og þá er komin veruleg skítalykt af málinu. :lol:
Hittumst öll á næsta fundi og komum einhverju í verk, fáum sjálfboðaliða í starfið, bjóðum okkur fram í þá vinnu sem fyrir höndum er og látum ekki okkar eftir liggja.
Kv. Nóni
-
Jæja :roll:
Er stjórn KK virkilega svona miklir pappakassar að þeir þora ekki að svara mjög svo málefnalegum umræðum um Klúbinn og starfsemi hans????
Það verður gaman að sjá svarið frá stjórnarmönnum kk hér á spjallinu ef þeir þora :roll:
Oftast þegar er verið að spyrja stjórnina um þeirra verk og "afrek" þá fara þeir í vörn og annaðhvort spyrja menn um nafn svo þeir viti hver er óánægður með þeirra verk eða spyrja á móti hvað hafa menn gert fyrir klúbbinn :roll:
Þeir sem eru í stjórn klúbbsins eiga að vinna sjálfir vinnuna eða allavega skipuleggja hana,veit að nokkrir menn komast ekki yfir allt en það er lágmark að vera búinir að skipuleggja það sem þarf að gera svo að sjálfboðaliðar geti gengið hreint til verks þegar það þarf
Hvar er hægt að nálgast drög að starfsemi KK,fundarstörfum og stefnum hans?
Eru fundargerðir ekki settar á netið eða prentaðar og gerðar opnar allmeningi eða allavega klúbbsmeðlium sem ekki geta mætt á fundi KK
sem OFTAST eru auglýstir með stuttum fyrirvara
Þetta er mitt álit,ef stjórnarmenn kk þora ekki að svara og þeirra eina svar er að banna mig,So Be It en það lýsir þá þeim sjálfum
Ekki allir stjórnamenn KK eru pappakassar bara sumir :D
kv og ég ætla ekki að skrifa undir nafni því það skiptir ekki máli hver er að segja hlutina helfur að þeir séu sagðir!!!!!!
Og hana nú!!!!!!
Af hverju ertu svona reiður? Þegar þú spyrð hvort að við þorum ekki vegna þess að við séum svo miklir pappakassar, þá ætti maður auðvitða alls ekki að svara vegna þess að þú ert auðsýnilega bara að reyna að ná okkur niður á þitt lága plan, ég tek skrefið núna bara til þess að róa þig aðeins niður. Ég get líka sagt þér að það er mjög misjafnt sem menn kalla málefnalega umræðu, líka réttmæta gagnrýni. Þetta er bara svona vinkill hjá mér, ég veit ekki hver þú ert en þegar þú notar orð eins og pappakassar um fólkið sem er í stjórn félagsins í einni setningunni og málefnalegar umræður í hinni setiningunni þá segir það töluvert.
Það hefur mjög oft sýnt sig að það er mikið áhrifaríkara að koma á fundi og tala um málin við viðkomandi aðila heldur en að vera að skeiða um á ritvellinum svolítið breiður með sig.
Varðandi fundina þá hefur verið lítið um þá í haust en við höfum hittst 2svar í Álfafellinu og í fyrra skiftið var 3ja daga fyrirvari en í seinna skiftið var 2ja vikna fyrirvari á forsíðunni. Við ætlum að hittast aftur miðvikudaginn 27. og vonandi verður þú búinn að taka gleði þína yfir jólin og kemur og hittir okkur þá. Við verðum á 2ja vikna fresti, annan hvern miðvikudag kl.20:30 í Álfafelli.
Með nafnleyndina, mér finnst afar leitt ef menn treysta sér ekki til að skrifa undir nafni, sérlega þegar menn eru að gagnrýna. Jæja það er sennilega bara þeirra kjarkur. Ég veit ekki um neinn sem hefur farið illa út úr því að segja skoðun sína hér, (nema auðvitað Gunni garmurinn, hann var líka Bannaður :lol: ), allavega ekki ef það fylgja haldbær rök, þetta er nú ekki Kína. Einkapóstur er líka ágæt leið til að hafa samskifti hér á netinu ef maður vill síður að allir lesi það sem maður skrifar.
Með von um fyrirgefningu syndanna, Nóni (það eru nú að koma jól)
-
Nóni ég tek nú bara ofan fyrir þér fyrir að svara svona tappa eins og Basla :D
Talandu um málefnalega umræðu og það að við séum svo mikilir pappakassar í sömu setningu :roll:
EN Basli, eins og Nóni sagði meðal annars þá er bara alveg nóg að gera í öðru, við eigum okkur líf sko, og jú það eru líka að koma jól hjá okkur :roll:
Kannski það sé bara ekkert þess vert að vera að standa í þessu yfir höfuð, nóg er af fólki til að gagnrýna og nánast enginn býður fram aðstoð sína við það sem er í gangi, enda auðveldara að setjast bara niður fyrir framan tölvuna og skæla :roll:
Kv Agnar
Stjórnarmaður
enn um sinn :roll:
-
Þetta hefur alltaf verið svona ef einhver nennir að gera eithvað í stjórn þá rakka einhverjir þá sömu niður strax en það eru oftast þeir sömu og koma aldrei að keppa eða að hjálpa til :evil: þetta er alltaf svona það eru svona 2-6 kallar (konur) sem gera allt þanig að þeir sem gagnrýna mest komið bara og hjálpið til :D