Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: motors on November 24, 2006, 18:28:47
-
Hvað er besta vetrarbónið ?Er eitthvað til sem þolir helv... tjörhreinsinn?
-
frá mjöll :wink:
-
frá mjöll
sérhannað fyrir áhugamenn um tennisolnboga og sinaskeiðabólgu. :D
-
Held hann hljóti að vera grínast drengurinn, notar það örugglega ekki á sína eðal Hondu. :?
-
Rauði Autoglym svínvirkar, Super Resin polish eða eitthvað svoleiðis.
-
Held hann hljóti að vera grínast drengurinn, notar það örugglega ekki á sína eðal Hondu. :?
haha nei ertu klikkaður ég nota bara meguiars alveg fínt bón en ég veit um 1 sem notar alltaf mjallar bón á imprezuna sína eða alla bílana sína og það er virkilega gott og það virkar leingi
-
Setur mjallarbónið á en bleytir svo klút með e-h skíta bóni og tekur mjallarbónið af með því og sleppur við puðið
-
lang best að fá eitthvað gott bón fra concept, og fara svo yfir með teflon bóninu frá þeim.. það ætti að endast í 3 til 6 mánuði.. farðu bara í Gísli Jónsson í árbænum og þeir segja þér betur til ;) fín verð á bóninu og góð þjónusta 8)
-
Leist mjög vel á síðasta svar hljómar vel,fer og tala við Gísla Jóns,takk fyrir MR.GTI. 8)
-
Leist mjög vel á síðasta svar hljómar vel,fer og tala við Gísla Jóns,takk fyrir MR.GTI. 8)
gott að geta orðið að liði ;)
-
concept er mjög gott og þægilegt bón, gljáinn helst alveg eftir nokkra þvotta
hef bara notað concept á minn
(http://i78.photobucket.com/albums/j87/eric175/Saemilegarmyndir/MR2.jpg)
-
Hér er minn bíll alveg gjörsamlega óbónaður.. bara góður ljósmyndari og photoshoppari, hann Mr. Boom :)
En hingað til hef ég haldið mig við Sónax.. Ótrúlega þæginlegt bón.. og ég fílaða :)
(http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/15883-3/BMWkraftur-_25.jpg)
-
já ég var búinn að skola minn 2svar þegar þessi mynd var tekinn
bónið var alveg að hverfa
-
Ég þróaði aðferð til að vinna Mjallarbón á sínum tíma. Ég held að allir sem hafa einhvern tíma notað það geti staðfest að ekkert kemst nálægt því, enda var það fyrst framleitt sem gólfbón og þá voru menn með bónvélar sem viktuðu c.a. 20 kíló!
En hér er smá input frá því ég nenti að puða við þetta:
1. Bíllinn verður að vera algerlega þurr. Ekki þýðir að bóna sama dag eða á sama klukkutímanum og nota á þetta efni, vegna þess að um leið og vatn kemst saman við það, verður það eins og gler.
2. Bíllinn verður að vera inni í upphituðu húsi, stofuhita.
3. Tvisturinn sem notaður er við að bera á verður að vera hreinn og þurr. Ekki nota neitt annað en tvist við að bera á. Tuskur taka allt of mikið bón til sín.
4. Ekki taka stærri flöt en c.a. 30X30cm fyrir í einu. EKKI láta bónið þorna.
5 AFÞURRKUN: Taka heilan poka (meðalstóran) af tvisti og skipta innihaldinu í tvennt. Setja báða hlutana á OFN. Passa að hann sé vel heitur. Um leið og búið er að bera á fyrsta flötinn er annar tvistbunkinn tekinn og notaður við að þurrka af. Eftir fyrstu afþurrkun, taka hinn af ofninum og setja þennan á í stðinn og halda þeim heitum til skiptis á meðan bónað er yfir og fyrstu afþurrkun. Svo er farið yfir allan bílinn á eftir með hreinum tvisti.
Þessi aðferð gefur frábæra útkomu og þolir marga þvotta. En EKKERT bón þolir tjörupvott, enda á þess ekki að þurfa. Tjaran tollir ekki við þetta bón ef það er rétt sett á.
G.
-
ég notast alltaf við concept..
ég keypti Sunny-inn minn (sem er hvítur í dag) Gulan á litin..
hvíti liturinn var orðinn mattur og gulur að lit..
fyrst tók ég lakkhreinsinn frá concept (man ekki nafnið) síðan tók ég
new harrizone og bonaði hann 2sinnu me því. síðan tók ég eina umferð með encore síðan tók ég appalo (sem er teflon bón) og kláraði hann með því.. Bíllinn er orðinn ROOOSALEGA MIKIÐ hvítur að lit. og gljáir eins og hann sé nyr..
meira að segja svo góður að ég timi varla að runta á honum vegna seltunar á götunum :oops:
-
Simoniz er mjög gott,color restorer og svo svona final shine á eftir man ekki hvað það heitir er í sömu hillu,gott verð líka hjá þeim í Ellingsen.
-
Er þetta ekki bara spurning um hvað maður venur sig á, ég á tugi kílóa af bónvörum og ég mundi nota hvað sem er af þeim á daily driverinn.
Ég er mjög sáttur við það sem ég er að nota á Firebirdinn en ég mundi aldrei nenna að bóna aðra bíla þannig :lol: tekur nokkra daga :oops: :D
Sonax hardwax er fínt, fljótlegt, auðvelt í notkun, má blotna á meðan maður bónar, hreinsar einstaklega vel tjöru og annann skít.
-
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=18340