Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Kristján Skjóldal on August 11, 2006, 08:17:29
-
Jæja nú er að koma sandur hvað er metið í 0f :?: :?: :?: löglegt :roll: :roll:
-
ok þessi mynd passar hér betur
-
Já, það er eiginlega nauðsynlegt að koma því á hreint - ég hef ekki séð neina birta tíma eftir að ég hætti að brasa í þessu hérna fyrir norðan, en það seinasta sem ég á á pappír er 3,54 sek. sem Kristján Skóldal á.
Endilega uppfæra þetta, þetta er eitthvað sem verður að vera á hreinu!
kv
Björgvin

Það styttist í keppni, er öllum sama?
Ég myndi gjarnan vilja vita hver núgildandi met eru fyrir helgi!!!!
kv
Björgvin
-
Ja fólksbílametið er 5,76.
-
sælir, er það löglegt met?
-
og af hverju er það ekki löglegt met :?:
-
Ja fólksbílametið er 5,76.
Það er rétt það var 5,76 sek.
En þarf engu að síður að núllstilla - þar sem það eru breyttar dekkjareglur í dag.
kv
Björgvin
-
en hvernig er það með þessa núllstillingu á metum, á að núlla við allar reglubreytingar?
nú er það þannig í þessu tilviki að um er að ræða rýmri reglu á dekkin þ.e. dekkjastærð var stækkuð úr 29" í 33" og þarafleiðandi var einar löggildur í núverandi flokk þegar metið var sett.

Skarplega athugað, enda má það standa mín vegna.
Þetta hlýtur eftir sem áður að vera tími sem keppendur stefna að í þessum flokki, svona til að geta hætt þar sáttir og fært sig eitthvað upp.
kv
Björgvin
-
Hver var tíminn á Þórði hér um árið þegar hann tók þátt á dragganum ???
-
Hver var tíminn á Þórði hér um árið þegar hann tók þátt á dragganum ???
Var því miður ekki á staðnum þá, en það voru gefnar upp einhverjar háar 2 sek., ég bara skil ekki að menn vilji ekki hafa þetta á hreinu.
Kannski er ungmennafélagsandinn að fara með mannskapinn :roll: :shock: 8)
Met eru met og verða að vera á hreinu, að hverju eru menn annars að keppa?
kv
Björgvin
-
sammála ekki tilgangur að keppa nema að það sé eitthvað met til að hvetja menn áfram til dáða