Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Moli on July 23, 2006, 21:29:09
-
Hefur einhver orðið var við þennan bíl á götunni, blæjubíll, rauður að lit, með shelby scope á húddi, GT-350 strípur á sílsum, er/var víst á erlendum númerum um helgina. Sá hann í Rimahverfinu undir kvöldið og upphófst smá eltingarleikur en töngin hvarf mér fljótt úr augnsjónum!
Kannast einhver við þennan bíl eða veit eitthvað um hann? :shock:
-
ég sá hann rétt fyrir utan borgarnes um helgina held ég
-
Hann kom greinilega með norrænu, við gómuðum hann á Akureyri á fimmtudag
-
GÓÐUR BJÖRGVIN! 8)
Hvaðan eru þessar plötur?
-
sýnist vera frá færeyjum
-
Nei,þær eru ekki færeyskar þessar númeraplötur.
-
Færeyskar eða ekki þá er bíllinn geggjaður 8)
-
Bíllinn kom frá Noregi ekki alls fyrir löngu, og heimildir herma að hann fari aftur út.
..og ef vel viðrar á Fimmtudaginn nk. mun hann mæta á samkomu hjá Krúser að Bíldshöfða 18 8)
-
hann kom hérna uppí bílabúð benna seinasta miðvikudag og ég spjallaði aðeins við hann, eigandinn er íslendingur og býr í noregi er hérna í einhverjar 3 vikur og ég ræddi við hann um að kíkja á fimmtudaginn næsta á krúsers samkomu, hann var eitthvað efins um að hann kæmist samt afþví hann var á leiðinni á ættarmót á siglufirði og ætlaði að leggja af stað á hádegi á fimmtudeginum, ætlaði samt að sjá hvort hann gæti hliðrað til og komið.. annars mætti ég honum svo aftur í gær a´rúntinum með blæuna niðri, helsvalur.. ;)
-
hvernig vél er í honum ?
-
hvernig vél er í honum ?
það er 351 í honum