Kvartmílan => Muscle Car deildin og rúnturinn. => Topic started by: Leon on June 14, 2006, 14:46:08

Title: Krúsers hópurinn sýnir 2006 Ford Mustang SALEEN.
Post by: Leon on June 14, 2006, 14:46:08
Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna bíla á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18. Næstkomandi fimmtudagskvöld 15.06´06 kl: 20:00 verða sýndir 2006 Ford Mustang SALEEN. Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og Prins til að seðja hungrið. Að venju verður síðan farinn hóprúntur strax upp úr kl. 21:30 niður í miðbæ Reykjavíkur ef veður leyfir.

Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta!

Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.