Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: gtturbo on April 30, 2006, 21:49:55
-
Hvernig væri það nú að búa til undirskriftarlista á netinu (eins og hefur stundum verið gert) þar sem menn gætu skrifað undir nafnið sitt og sýnt með því stuðning við að fá akstursbraut í Kapelluhrauni en ekki á Akranesi. Þessi listi yrði síðan prentaður út að xx löngum tíma liðnum og afhentur Sturlu samgöngumálaráðherra. Ég er viss um að það væri hægt að fá ansi margar undirskriftir á þennan lista sem vonandi yrðu til þess að peningum yrði varið í uppbyggingu á því svæði sem skiptir okkur máli!!
Hvað finnst mönnum um þessa tillögu?? Ætli þetta myndi virka??
-
afhverju ekki það :D
-
Græjaðu þetta Úlli, nafnið mitt er klárt.
Kv. Nóni
-
http://benzincrew.com/undirskrift/
-
Eruð þið ekki til í að leyfa mér að edita textan í þessu? Þetta er alveg hrikalegt, það stendur Akranesar.
Þetta væri betra.....
"Með því að samþykkja þennan skilmála, ertu sammála því að koma skuli upp braut eða ökugerði í við kvartmílubrautina Kapelluhrauni í stað Akraness. Það mun auka notkun brautarinnar mikið meira og enn betra væri ef búin yrði til akstursbraut fyrir keppnir eða æfingar í hringakstri. Tillaga var gerð um þetta og frumdrög að akstursbraut og hana má skoða á www.kvartmila.is. Vinsamlegast fylltu út kennitölu, nafn og vefpóstfang. Takk fyrir."
Held að það verði að vera þokkalega stafsett og málfræðin í lagi svo að einhver taki mark á manni.
Kv. Nóni
-
Endilega laga textann!!!
Samþykki á að vera með 2 k, annars er óþarfi að vera með þessa samþykkisreiti, því þeir sem eru þessu ósammála sleppa því bara að fylla út.
Svo þarf að koma þessu fyrir þar sem menn taka eftir því, og senda á allt bílaliðið, stjarna, live to cruise, f4x4, motorcross.is o.s.frv.....
-
Einnig blýfót og fornbílaspjallið
Hérna stukku allir í fjölskildunni til og skrifuðu sig á listann,
-
Sælir, Ég var að vonast til að einhver mundi koma með betri texta fyrir þetta.
Þannig ég breitti honum, takk fyrir nóni ! ;)
-
Er búið að láta hina klúbbana vita?
Eru ekki einhverjir sem geta póstað inn á spjallvefina?
140 undirskriftir eru ekki nóg!!!
Ég póstaði á stjarna.is og f4x4.is þar eru góð viðbrögð.
-
Enda þarf að koma þessu á framfæri með kastljósinu eða Íslandi í dag. já og bylgjan er alltaf til í að styðja gott málefni
-
þarf mður að ver i einhverjum klubb, en eg er til
-
Fæ alltaf þetta svar þegar ég reyni að skrifa undir.
Duplicate entry '127' for key 1
Eitthvað er rangt,, kannski er þess vegna sem eiungis 125 eru búnir að skirfa undir.
-
hmm ég það sama er þetta eithvað bilað kanski?
-
Fæ alltaf þetta svar þegar ég reyni að skrifa undir.
Duplicate entry '127' for key 1
Eitthvað er rangt,, kannski er þess vegna sem eiungis 125 eru búnir að skirfa undir.
Ég er að lenda í þessu sama. Endilega laga sem fyrst. :D :D :D
-
Það hlaut að vera getur einhver lagað?
-
Shitt, ég gleimdi mér alveg maður !!
Svo virtist sem ég hafði sett færslurnar sem TinyINT sem gerir það að verkum að höndla ekki meira en 127 færslur.
ég lagaði það og núna ættu að hlaðast alveg inn undirskriftirnar !! ;)
Já KOMA SVO msnið þetta og emailið til fólks !
-
Shitt, ég gleimdi mér alveg maður !!
Svo virtist sem ég hafði sett færslurnar sem TinyINT sem gerir það að verkum að höndla ekki meira en 127 færslur.
ég lagaði það og núna ættu að hlaðast alveg inn undirskriftirnar !! ;)
Já KOMA SVO msnið þetta og emailið til fólks !
Virkar fínt núna. Takk.
-
Er ekki hægt að setja betri link á þetta svo fólk fatti hvar á að ýta . :D :D
-
Það væri fín hugmynd að byrja á því að safna undirskriftunum.
En til þess að undirskriftalistinn okkar virki þá verðum við að koma LÍA í burtu eins og það leggur sig eða stjórnendum þeirra. Málið er það sem menn sáu LÍA gera þegar Kastljós kom að taka upp fyrir þáttinn, föstudaginn 28. apríl er bara brot af ísjakanum af því sem þeir hafa gert síðastliðin ellefu ár.
Vilji menn að ég taki afrit af skjölum varðandi fundargerðir, reikninga og ýmis opinber gögn sem þessir menn hafa notað til þess að valta yfir klúbbana í landinu.
Þar sem ég skrifa þetta er vegna þess að ég er með mikla reynslu af þessum mönnum sem og gamlir kollegar mínir í mótorsportinu.
PS.
Þennan eftirfarandi tölvupóst fékk ég frá LÍA eftir að hafa sett inn pistilinn Eyðilegging LÍA á íslensku mótorsporti síðustu fimmtán ár inná opinberan vef LÍA.
Ef þú ætlar að setja útá störf annara og nafngreina fólk þar sem að þú sakar það um allskyns vitleysu, þá skaltu skrá þig rétt inn og skrifa undir með fullu nafni.
Núna er búið að eyða notandanum þínum en ef þú vilt skrá þig inn aftur skaltu koma undir fullu nafni.
Kv.
Rúnar Ingi
Vefstjóri LÍA.is
Kveðja,
Stulli
-
STULLI mér finnst líka allt í lagi að þú komir hér undir fullu nafni þar sem þú ert nýr hér á þessu spjalli.
Jón Þór Bjarnason
-
Ég heiti Sturla Jónsson og er kallaður Stulli svo einfalt er það.
Kveðja stulli
-
Ég hélt nú að allir vissu hver Stulli er. Einn af frægari keppendum í íslensku mótorsporti..
Hörður
-
Ég hélt nú að allir vissu hver Stulli er. Einn af frægari keppendum í íslensku mótorsporti..
Hörður
Veist þú hver Kalli er?
Mér finnst að þegar fólk er með skot eða staðhæfingar á einhvern að það komi undir fullu nafni en það er bara mín skoðun. Ég er ekki að búa til leiðindi og nei ég hef ekki hugmynd hver Stulli er en ábyggilega vill hann bara gott eins og við öll.
Vonandi eigum við gott ár fyrir mótorsport. 8) 8)