Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: kallinn á kassanum on April 11, 2006, 20:17:02

Title: nýjustu fregnir herma
Post by: kallinn á kassanum on April 11, 2006, 20:17:02
nýjustu fregnir herma



Að Frikki hafi fengið menn til að hlaupa Apríl,, hann hafi bara alls ekkert keyrt yfir sveifarásinn.

Að Valur hafi prufað forhlaðarann heima í Mosó og kveikt sinueldinn mikla með oggulítilli forkveikingu.
 
Að Friðbjörn haldi vöku fyrir forseta vor með síendurteknum BOV prufukeyrslum á Álftanesinu.

Að gömlu gómarnir hans Dadda bíti svo fast að kryppan þurfi að fara til Englands í vindgangatest hjá Mclarenmönnum.

Að Nóni keppi ekkert í sumar, hann verði á söngnámskeiði hjá Bubba sjálfum Morthens alla laugardaga.

Að Stjáni Skjól sé með Duramax dragster í smíðum.

Að Shadowman hafi fengið spánnýjan Ipod í fermingargjöf.

Að algengasta tjúnnið í sumar sé Herbalife.

Að menn hafi gerst ástleitnari en góðu hófi gegnir á síðasta bjórkvöldi, og það hafi skilað sér á dræmri mætingu á fundinn í gær.
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: 1965 Chevy II on April 11, 2006, 20:25:43
:D snilld
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 13, 2006, 00:49:12
Talandi um fundinn hvar var fólkið, það voru bara dillandi magadansmeyjar þegar ég mætti.
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: 1965 Chevy II on April 13, 2006, 00:51:24
Quote from: "Nonni_Z28"
Talandi um fundinn hvar var fólkið, það voru bara dillandi magadansmeyjar þegar ég mætti.

og hefðirðu frekar viljað hitta sveitta kvartmílustrumpa :?  :lol:
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 13, 2006, 01:38:35
Ef að þessar magadansmeyjar væru fallegar þá væri þetta í lagi en svo er ekki. :(  :(
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: Racer on April 13, 2006, 10:04:53
ég hélt að kvartmílumenn voru ánægir með að sjá dansandi stelpur á höldurum með dillandi malla frekar en sömu gömlu karlana rífast um hver á flottasta og svo hraðskreiðasta og svo hverjir eru að keppast um skúratitilinn :D

annars leist mér ágætilega á stelpurnar þarna.

p.s. ég vil þakka Leifi Rósinberg fyrir mjög gott v8 skiptinga ráð
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: ingo big on April 13, 2006, 17:31:46
Quote from: "Trans Am"
Quote from: "Nonni_Z28"
Talandi um fundinn hvar var fólkið, það voru bara dillandi magadansmeyjar þegar ég mætti.

og hefðirðu frekar viljað hitta sveitta kvartmílustrumpa :?  :lol:




Verða þeir ekki að gera eithvað upp á braut til að verða sveittir
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: Dohc on April 14, 2006, 14:18:20
Quote from: "Nonni_Z28"
Ef að þessar magadansmeyjar væru fallegar þá væri þetta í lagi en svo er ekki. :(  :(


ég þekki stelpu sem er magadansmær....(íslensk) og hún er sko HOT!
Title: nýjustu fregnir herma
Post by: firebird400 on April 15, 2006, 00:43:45
Teitur ætlar sem sagt að sjá um skemmtiatriðin í sumar :wink: