Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: HK RACING2 on March 18, 2006, 10:23:39

Title: Flokkarugl
Post by: HK RACING2 on March 18, 2006, 10:23:39
Jæja fyrst búið er að fokka í þessum flokkum eina ferðina enn spyr ég eins og fífl í hvaða flokk fer ég með imprezu sem er ekki götuskráð og ekki á númerum?Ætlaði í 12,90 flokk sem var talað um að yrði og er byrjaður að smíða bíl en var að sjá að hann verður ekki keyrður,er þetta endanlegt eða má ég búast við að þessu verði breytt aftur á miðju sumri?

HK RACING
S 822-8171
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 18, 2006, 13:29:58
Sæll. Þú hefur um þrjá flokka að velja um þar sem um númerslausa bifreð er að ræða 14.90-13.90-GF.

kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: firebird400 on March 18, 2006, 13:36:10
Himmi ertu ekki til í að leyfa okkur að sjá græjuna sem þú ert að smíða, og fá kannski smá infó um hana
Title: Flokkarugl
Post by: cv 327 on March 18, 2006, 13:43:10
Samkvæmt reglunum þarf hann númeraplötur í GF, ekki satt?
Kv Gunnar B
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 18, 2006, 14:19:48
A sorry það er rétt. Ég er að verða gamall maður.
Ein mistök sem gerð voru í reglubreitingum að mínu mati (þó ég hafi verið sammála því þá) sem vonandi verða leiðrétt á næsta aðalfundi.
Eins og margoft hefur sannast varðandi flokkabreitingar hjá okkur og sjálfsagt í flestum motorsportum að þegar verið er að breyta til aðlaga eitt vandamál,skapast önnur.

En úrvalið er meira ef þú setur á númer, RS var sérstaklega smíðaður með  Imprzur í huga en því miður ekki númerslausar.

Kv.
Aggi
Title: Flokkar
Post by: Nóni on March 18, 2006, 14:45:34
Flokkarnir með fasta indexinu voru flottir, kepptir alltaf við sambærilega fljóta bíla, sama hvort þú værir með fimm felgubolta eða númeraplötur.

Það er búið að loka númerslausa bíla sem keyra hraðar en 13.90 úti, eini kosturinn er OF.

Himmi, ég hvet þig allavega til að koma á æfingar og sjá hvort að það er grundvöllur fyrir því að fara í eitthvað annað, nú eða ef fleiri óska að þá er ekkert að því að athuga með 12.90.

Kv. Nóni
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 18, 2006, 18:41:56
Þetta er frábært það hlýtur að verð fábær mæting í gömlu góðu flokkana sérstaklega fyrst að þeir eru óbreyttir.Það er greinilegt að þessi stjórn hefur ekki kjark til að taka á breytingum í gömlu flokkunum frekar en fyrri stjórn.

Ingó.
Title: Flokkarugl
Post by: Davíð S. Ólafsson on March 18, 2006, 19:04:19
Sælir félagar.
 Það er gaman að sjá að þeir menn sem gátu ekki svarað fyrirspurnum hér á netinu síðastliðin ár eru allt í einu farnir að tjá sig og er það hið besta mál.

Varðandi breytingar í flokkum þá þarf að leggja það fyrir aðalfund og afgreiða þær breytingar þar, þ.e.a.s. ef við eigum að fara eftir lögum KK.

Frá mínum bæjardyrum séð þá voru flokkarnir sem keyrðir voru í fyrra ekki til þess að bæta keppendafjölda í keppnum.
Ef ekki eru keppendur þá verða engir áhorfendur.

Er ekki málið að vinna saman í að efla klúbbinn og fá inn nýtt blóð.

Kveðja Davíð.
Title: Flokkarugl
Post by: HK RACING2 on March 18, 2006, 19:12:20
Quote from: "firebird400"
Himmi ertu ekki til í að leyfa okkur að sjá græjuna sem þú ert að smíða, og fá kannski smá infó um hana

Þetta er bara 2000 árgerð af Turbo Imprezu sem ég keypti tjónaða og er að færa allt gramsið yfir í annað boddý og var ætlunin að hafa hann léttan og ekki götuhæfan,en sé til hvað ég geri nú,nota hann kannski bara í rallið frekar ef það er enginn flokkur til að keppa í,er ekki að tíma að borga tryggingar og bifreiðagjöld á bíl sem ég nota 5 sinnum á ári!

HK RACING
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 18, 2006, 19:22:00
"Þetta er ágætis könnun en hvernig menn ná að reikna út 42 atkvæðum frá 15 keppendum er mér hulin ráðgáta . Nokkrir af þeim sem svara hafa ekki sést á brautinni í langan tíma. Ég gæti alveg hugsað mér að mæta og get valið um nokkra bíla / tæki til að keppa á .Ég hef ekki áhuga á að keppa ef þátttaka er undir 4 keppendum . Gömlu flokkarnir eru gallaðir og þá þarf að laga. Og þá er fátt eftir eða 8,9-14,9 sem ég mæli með þó að mér finnist þeir flokkar frekar leiðinlegir.Ég vona að stjórn KK hafi kjark til að taka á málinu og gangi í það að laga til í gömlu flokkunum sem voru ágætir þegar þeir voru stofnaðir.

Ingó."

MC er kominn í upprunalegt horf.
Ég er sammála því að það má laga ýmislegt.
En það er ekki hægt nema á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða svo almenn sátt verði um.
Ef rétt er farið að hlutunum samhvæmt lögum félagsins getur enginn farið í fílu.
Jú Jú við getum verið óskaplega kjarkaðir og breitt helling af reglum og brotið helling af lögum en þá eigum við það líka á hættu að hellingur fari í fílu og hellingur er stór biti fyrir KK.

Kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: Davíð S. Ólafsson on March 18, 2006, 19:44:11
Það má benda á að það er tryggingarfélag sem heitir Elísabet (TM) þar  sem þú getur tryggt bílinn þinn í þessar fimm keppnir  og málið er dautt. Þá þarf ekki að breyta flokkum fyrir þig ? :idea:
Title: Flokkarugl
Post by: Nóni on March 18, 2006, 20:12:01
Quote from: "Suzuki"
Sælir félagar.
 Það er gaman að sjá að þeir menn sem gátu ekki svarað fyrirspurnum hér á netinu síðastliðin ár eru allt í einu farnir að tjá sig og er það hið besta mál.

Varðandi breytingar í flokkum þá þarf að leggja það fyrir aðalfund og afgreiða þær breytingar þar, þ.e.a.s. ef við eigum að fara eftir lögum KK.

Frá mínum bæjardyrum séð þá voru flokkarnir sem keyrðir voru í fyrra ekki til þess að bæta keppendafjölda í keppnum.
Ef ekki eru keppendur þá verða engir áhorfendur.

Er ekki málið að vinna saman í að efla klúbbinn og fá inn nýtt blóð.

Kveðja Davíð.

Flokkunum var aðeins gefið eitt sumar og það getur ekki talist mikið, þegar svo koma menn sem hafa verið að græja bíla í þessa flokka vegna þess að þeir sáu þá síðasta sumar er þeim gefið langt nef. Þetta er miður.

Kv. Nóni
Title: Flokkarugl
Post by: HK RACING2 on March 18, 2006, 20:33:32
Var að spurja um þennan flokk fyrir heilum mánuði síðan og það hefði einhver mátt ropa því útúr sér þá að flokkurinn yrði ekki keyrður!
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=14369

HK RACING
Title: Flokkarugl
Post by: 1965 Chevy II on March 18, 2006, 20:42:48
Sæll Himmi þú getur keppt í OF,veit ekki hvernig það kæmi út í forskoti en Valur kann á það.
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 18, 2006, 20:58:14
Quote from: "Suzuki"
Sælir félagar.
 Það er gaman að sjá að þeir menn sem gátu ekki svarað fyrirspurnum hér á netinu síðastliðin ár eru allt í einu farnir að tjá sig og er það hið besta mál.

Varðandi breytingar í flokkum þá þarf að leggja það fyrir aðalfund og afgreiða þær breytingar þar, þ.e.a.s. ef við eigum að fara eftir lögum KK.

Frá mínum bæjardyrum séð þá voru flokkarnir sem keyrðir voru í fyrra ekki til þess að bæta keppendafjölda í keppnum.
Ef ekki eru keppendur þá verða engir áhorfendur.

Er ekki málið að vinna saman í að efla klúbbinn og fá inn nýtt blóð.

Kveðja Davíð.

Sæll Davíð.

Það er gaman að sjá formann KK tjá sig. Ég get ekki séð að KK hafi efni á því að hafa keppnisflokka í ólestri eitt sumarið í viðbót. Það eru sum atrið svo augljós að ætti að vera minnta mál að lagfæra þessi atriði þannig að sátt náist. Ég veit ekki til þess að það sé nein stjórnarandstaða þetta árið.

Ingó.

p.s. Ef  það er vilji á eru leiðir.
Title: Flokkarugl
Post by: Nóni on March 18, 2006, 21:10:15
Quote from: "Trans Am"
Sæll Himmi þú getur keppt í OF,veit ekki hvernig það kæmi út í forskoti en Valur kann á það.

Ef hann nær presunni niður í 1100 kg sem eru sirka 2400 pund þá yrði þyngdarhlutfallið með 121 cid vél u.þ.b. 20 sem kemst ekki inn í línuritið. Auk þess sem þessi skrítna regla er í reglunum um OF.......

"1. Raunverulegt þyngdarhlutfall keppnistækja skal vera 3,4 til10,0 pund/cid"

Hann myndi fá kennitíma rétt um 9,5 sek. sem er frekar erfitt að ná án mikils tilkostnaðar.

Kv. Nóni
Title: Flokkarugl
Post by: Dodge on March 18, 2006, 21:36:45
Quote
Það má benda á að það er tryggingarfélag sem heitir Elísabet (TM) þar sem þú getur tryggt bílinn þinn í þessar fimm keppnir og málið er dautt. Þá þarf ekki að breyta flokkum fyrir þig ?  

hann fær tæplega númer á bílinn þó hann sé tryggður bara í  þessar keppnir.

maður fær engar númeraplötur afhentar nema bíllinn sé götulöglegur.
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 18, 2006, 21:52:01
Endilega tjáið ykkur og gagnrýnið harkalega ef lög eru verið að brjóta.
Það er bara af hinu góða.
Við sem í stjórn erum erum bara fólk eins og þið ég hef allavega ekki fundið það að efnasamsetning né litur blóðs míns hafi neitt breist við mína stjórnarsetur og skít heldur ekki marmara.
Svo hugmyndir og skoðanir eru bara af því góða.
Hvort það sé stjórnar andstaða,komonismi eða eithvað annað,þá er mér nokk sama svo framarlega sem menn séu ekki að skaða mannorð manna hér á netinu.

En Ingó við teljum að með þessu séum við að vinda ofan af flokka óreiðu.

kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 18, 2006, 22:10:08
Quote from: "Dr.aggi"

Sæll Agnar.

Við sem erum í KK og kjósum félaga okkar í stjórn KK og ég veit ekki betur að þessi stjórn hafi fullan stuðning félagsmanna og ég vona að þið séuð traustsins verðir. En það er á ykkar ábyrgð að félagið dafni. Það er mín skoðun og margra annar að það þurfi að lagfæra ýmislegt í flokka reglum. Það er ykkar val hvað þið gerið. Ég vona að gæfan verði með ykkur.

Ingó.  

p.s. Agnar þú hefur ekki svarað hvort það er stefnubreyting varðandi hringakstursbrautina.
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 18, 2006, 22:24:16
Sæll Ingó.
Eins og ég sagði hér að ofan er ég því algerlega sammála að ýmsu þarf að breyta, en það er ekkert endilega sjálfgefið að allir séu því sammála.

Jú við erum kosnir í stjórn og þar af leiðandi veitt bæði traust og ábyrgð en líka vinnureglur til að vinna eftir, þar að leiðandi höfum við ekki heimild til að framkvæma neitt sem lögin heimila stjórninni ekki.
Þar að leiðandi ef við höldum okkur innan þess ramma hljótum við að vera traustsins verðir.

Varðandi hringakstursbrautina þá hélt ég að ég hefði tjáð mig skýrt varðandi það.

"Sæll Kiddi:
Raunar er heljarinnar akstursíþrótta pakki í gangi,varðandi þetta svæði og komið á deiliskipulag bæjarins.
Stjórnin er að vinna í því að fá stöðuna á þeim pakka hvort að teiknivinnan sé búin eða hvar málið sé statt.
Þegar að verkfræðivinnan er búin er að sjálfsöðu næsta skref að ræða við bæjaryfivöld hvert næsta skref sé þetta er jú má seigja á þeirra könnu.
Hvort það þurfi að byggja þetta í áföngum af fjárhagsástæðum þá munum við að sjálfsögðu leggja áherslu á kvartmílubrautina sem fyrsta áfanga.
Eða hvort þetta verði boðið út í heild sinni.
Og svo hvenar hægt sé að hefjast handa."

"Eða hvort þetta verði boðið út í heild sinni"

kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: Nóni on March 18, 2006, 22:42:53
Quote from: "Dr.aggi"
Hvort það þurfi að byggja þetta í áföngum af fjárhagsástæðum þá munum við að sjálfsögðu leggja áherslu á kvartmílubrautina sem fyrsta áfanga.
kv.
Aggi

Þetta er ekki allskostar rétt Agnar, það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það í stjórn í hvað verður ráðist fyrst. Það verður að sjálfsögðu að ráðast af þörfinni og við höfum kvartmílubraut svo að það þarf ansi sterk rök til að byrja á því að laga hana. Hringakstursbraut höfum við ekki og það er að margra mati forgangsverkefni. Þetta hefur verið rætt í stjórninni og menn hafa ýmist verið sammála eða sammála eftir því hvort allir eru mættir eða ekki.

Kv. Nóni
Title: Flokkarugl
Post by: HK RACING2 on March 18, 2006, 23:13:54
Quote from: "Suzuki"
Það má benda á að það er tryggingarfélag sem heitir Elísabet (TM) þar  sem þú getur tryggt bílinn þinn í þessar fimm keppnir  og málið er dautt. Þá þarf ekki að breyta flokkum fyrir þig ? :idea:

Ég er ekkert að biðja um að láta breyta flokkum fyrir MIG,talaði aldrei þannig og fer ekki fram á það,opnaði hins vegar umræðu hér um daginn um hvaða flokkar væru keyrðir og var sagt tímaflokkar yrðu keyrðir og byrjaði að smíða minn bíl í samræmi við 12,90 flokk,svo nú 2 mánuðum fyrir fyrstu keppni kemur í ljós að þið ætlið ekki að keyra hann og að bíllinn sem ég er að smíða passar ekki í neinn annan flokk!En ég er alls ekki að segja að það eigi að smíða flokkana eftir bílum sem til eru,heldur eiga menn að smíða bílana eftir flokkum en verið þá ekki að þessu helvítis hringli með flokkana og hvað þá þegar svona stutt er í sumarið!

HK RACING
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 19, 2006, 00:36:46
Quote from: "HK RACING2"

Sæll.

Þú ert aðeins einn af mörgum sem hafa áhuga á að keppa í sumar en passar ekki í þá flokka sem á að keppa í en eins og sjá má á svörum hér að frama þá er það aukaatriði hvort flokkar henta eða ekki.

Ingó.
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 19, 2006, 00:42:36
Sælir.
Allavega á þeim stjórnarfundum sem ég hef setið hefur verið rætt um þann forgang að breikka og lengja kvartmílubrautina.
Er það ekki rétt hjá mér?

kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 19, 2006, 00:59:18
Quote from: "Dr.aggi"
Sæll Ingó.
Eins og ég sagði hér að ofan er ég því algerlega sammála að ýmsu þarf að breyta, en það er ekkert endilega sjálfgefið að allir séu því sammála.

Jú við erum kosnir í stjórn og þar af leiðandi veitt bæði traust og ábyrgð en líka vinnureglur til að vinna eftir, þar að leiðandi höfum við ekki heimild til að framkvæma neitt sem lögin heimila stjórninni ekki.
Þar að leiðandi ef við höldum okkur innan þess ramma hljótum við að vera traustsins verðir.

kv.
Aggi

Sæll Agnar.

Þú talar oft um það að það eigi að fara eftir lögum KK. Á aðalfundi KK fyrir tveimur árum var samþykkt að ef það yrði ekki keppt í viðkomandi flokkum í 2 ár í röð og veittur íslandsmeistaratitill þú ættu viðkomandi flokkar að falla út. Það hefur ekki verði veittur íslandsmeistaratitill í GF,SE og GT. Í tvö ár. Ég get ekki betur séð en að þetta virkt að vettugi.

Ingó.
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 19, 2006, 01:13:25
Quote from: "Dr.aggi"
Sælir.
Allavega á þeim stjórnarfundum sem ég hef setið hefur verið rætt um þann forgang að breikka og lengja kvartmílubrautina.
Er það ekki rétt hjá mér?

kv.
Aggi

Sæll Agnar.

Þetta er með ólíkindum að stjórn KK hafi ýtt út af borðinu fyrrum forgangs áformum um að koma upp hringakstursbraut miðað við alla þá umfjöllun í fjölmiðlum sem þetta hefur fengið.
Ég fer fram á það að stjórnin skýri það út fyrir félögum KK hver ástæðan er fyrir þessu breyttu áheyrslum.

Ingó.
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 19, 2006, 01:16:55
Sæll Ingólfur.
Hvar er þetta ákvæði í lögum félagsins ?

þannig að ef engin þáttaka verður í MC flokki í sumar verður hann lagður niður og svo koll af kolli ?
Ef mig minnir rétt þá gillti þetta ákvæði bara um amerísku flokkana, þannig voru þeir samþykktir inn og eru þar að leyðandi úti.

En ég hef verið að flétta fundargerðarbók félagsins og það hefur ekkert verið skráð í hana síðan í byrjun árs 2003 hvorki um aðalfundi né sjórnarfundi.
Þannig að hver man hvað og hver man hvað rétt?

Kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 19, 2006, 01:23:12

Þetta er ekki í lögum félagsins. Þetta er samþykkt frá aðalfundi.

Ingó.

p.s. Það hefur ekki verið leitað mikið til mín eftir upplýsingum.. Allar fundagerðir þegar ég var í stjórn eru til á tölvutæku formi
Title: Flokkarugl
Post by: Dr.aggi on March 19, 2006, 01:32:31
Sæll Ingo aftur.
Ég veit ekki kvaða misskilningur þetta er hringakstursbrautinni hefur ekki verið ýtt út af borðinu.
En mér finnst óeðlilegt ef bærinn vill byggja þetta í áföngum (það er að segja hringinn)þá finnst mér óeðlilegt að byrja á einkverri beigju úti  í hrauni.
En pakkinn er hjá bænum með hring og alles.

Kv.
Aggi
Title: Flokkarugl
Post by: Nóni on March 19, 2006, 02:38:17
Quote from: "Dr.aggi"
Sælir.
Allavega á þeim stjórnarfundum sem ég hef setið hefur verið rætt um þann forgang að breikka og lengja kvartmílubrautina.
Er það ekki rétt hjá mér?

kv.
Aggi

Það hefur ekki verið samþykkt nein ályktun um það eða ákveðið neitt sem á að beita sér fyrir fram fyrir annað, það virðist samt vera sem að hagsmunir fárra séu teknir fram fyrir hagsmuni fjöldans í þessu sambandi. Eins og ég talaði um á síðasta fundi er það beinlínis skylda Kvartmíluklúbbsins að taka á í þessum efnum og nota undirölduna sem er í þjóðfélaginu um að það vanti svæði fyrir ökumenn sem hafa hraðaþörf. Þetta var gert hér fyrir 27 árum þegar ráðist var í byggingu kvartmílubrautarinnar af hópi vaskra manna sem vildu hraðaksturinn af götunum, við þurfum að bregðast við og nýta okkur það tækifæri sem Hafnarfjarðarbær er að rétta okkur núna og breikka og stækka Kvartmíluklúbbinn sjálfan með því að fá inn í hann nýtt blóð, ný andlit, ekki bara gömlu sleggjurnar sem voru með hakann og skófluna þarna fyrir hátt í þrem áratugum síðan heldur fólk sem vill keyra ekki bara beint heldur líka beygja og bremsa. Klúbburinn gæti hæglega stækkað í 300 manna klúbb áður en þú veist af ef stofnuð yrði kappakstursdeild eða hvað hún myndi annars heita innan klúbbsins.

Kv. Nóni
Title: Flokkarugl
Post by: Davíð S. Ólafsson on March 19, 2006, 11:53:45
Sælir félagar.

Ég held að það gæti smá misskilnings varðandi akstursbraut á svæðinu okkar.
Áformum um að koma upp hringakstursbraut hefur ekki verið ýtt út af borðinu ef menn halda það.
Forgangsröðun um hvað þarf að gera á svæðinu er í góðum farvegi og höfum við í stjórn rætt þá möguleika sem við stöndum frammi fyrir. Stjórnarmenn hafa látið sýnar skoðanir í ljós á fundum og erum við að fara yfir hvað sé heppilegast að gera og í hvaða röð.

Varðandi hringakstursbraut þá er svæðið komið í skipulagskynningu.
Það kostar heljarinnar mikla vinnu og fullt af peningum að koma svona braut upp.

Hanna þarf braut, kostnaðaráætlun þarf að liggja fyrir svo það sé hægt að fara á stað til þess að finna fjárfesta sem hafa áhuga á að leggja pening í þetta verkefni.

Ef við förum í framkvæmdir á svæðinu í samráði við Hafnafjarðarbæ þá liggur fyrir að kostnaður kemur til með að skiftast 80% (hlutur bæarins) og 20% kemur í hlut KK.
Við höfum heyrt að kostnaður við að leggja góða braut og klára svæðið geti legið í allt frá 1,000 millur í allt að 1,500 millur og er það mikill peningur.

Ef við vinnum saman að þessu framtíðar verkefni þá hefst þetta að lokum.

Það er gott að fá að heyra hvað mönnum finnst um þetta verkefni og hvaða hugmyndir þið hafið.

Kveðja Davíð
Title: Flokkarugl
Post by: 440sixpack on March 19, 2006, 12:55:07
Tala bara við Halldór Ásgrímsson og fá Nato völlinn, málið dautt. hehehehe :D
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 19, 2006, 15:53:25
Davíð skrifar.

Ef við förum í framkvæmdir á svæðinu í samráði við Hafnafjarðarbæ þá liggur fyrir að kostnaður kemur til með að skiftast 80% (hlutur bæarins) og 20% kemur í hlut KK.
Við höfum heyrt að kostnaður við að leggja góða braut og klára svæðið geti legið í allt frá 1,000 millur í allt að 1,500 millur og er það mikill peningur.

Ef við vinnum saman að þessu framtíðar verkefni þá hefst þetta að lokum.

Það er gott að fá að heyra hvað mönnum finnst um þetta verkefni og hvaða hugmyndir þið hafið.

Kveðja Davíð[/quote]

Sæll Davíð.

KK hefur hingað til ekki getað sótt fjármagn til Hafnarfjarðarbæjar og ég á ekki von að því að verði breyting á því á allra næstu árum samanber forgangsröðun ÍBH. Það kostar mikið að fullgera svæðið en það kostar ekki meira en 15-20miljónir að malbika 12 metra breiða braut og 800 metra langa. Þetta gæti verið ágætis byrjun fyrir KK og ég hef trú á því að það yrði frekar auðvelt að fjármagna þetta með styrkjum og öðru slíku. Það er eina vitið fyrir KK að koma þessu af stað sem fyrst . Þetta gjörbreytir möguleikum KK til tekjuöflunar.

Kv Ingó.
Title: Flokkarugl
Post by: Davíð S. Ólafsson on March 19, 2006, 20:35:14
Sæll Ingó

Varst þú ekki á síðasta aðalfundi KK ? Ég man ekki betur en að Gunnar Svavarsson hafi sagt á fundinum að skifting framkvæmda í samráði við bjarfélagið væri 80/20 % ,eins og aðrar framkvæmdir við íþróttamannvirki í Hafnafjarðarbæ.

Getur verið að fyrrum stjórnir hafi ekki látið reyna á það hvort við sem aðilar að IBH ættum ekki möguleika á fjármagni frá Hafnafjarðarbæ til framkvæmda á vegum KK ?

Að tala um að það verði auðveldara og breyti möguleikum á að fá fjármagn inn í starfsermi KK ef við komum upp hringakstursbraut.

Mér er spurn, hvað var gert af fyrri stjórn til þess að fá fjármagn inn í klubbinn ?

Ég veit ekki betur en að ég hafi komið þér í samband við stöndugt fyritæki hér í bæ og hafi verið gefið vilyrði fyrir að kosta tíma og hraðaskilti á brautina. Hvað skeði og hvers vegna var þeim málum klúðrað?
Var það í þágu klúbbsins ?
Mér skilst að ef það hefði verið gengið frá þessum málum í fyrra þá hefðum við fengið annan styrk í ár.

Ekki hefur verið eitt  auglýsingaskilti á brautinni í nokkur ár án þess að fá greiðslu fyrir.

Hvernig á að reka KK ef ekki fæst fjármagn inn í hann ?. Leita þarf allra leiða til þess að fá fjármagn og nota þau tækifæri sem gefast.

Þú tala um að það kosti aðeins 15-20 milljónir að bæta 800 metrum við brautina svo að við getum farið að aka í hringi.

Við þurfum að huga að framtíðinni. Hætta að fara í litla hringi eins og Ragnar Reykás.(800m)
Verum stórhuga og horfum fram á veginn. Ef og þegar við förum í að byggja upp hringakstursbraut þá á að gera þetta almennilega og fara í braut sem að er allt að 5km löng. Löglega braut til keppni í akstri bíla og hjóla.  

Ég hef átt fundi með fólki sem hefur áhuga á að setja fjármagn í svona framkvæmd eins og við stefnum öll að. Ekki hefur vantað áhuga hjá sumum þeirra.
Færa hraðakstur af götunum og inn á lokuð aksturssvæði er það sem við stefnum að.

Nýja stjórnin er nú búin að vera við völd í rúman mánuð og það er ekki hægt að ætlast til þess að við geru kraftaverk á svo stuttum tíma.

Nú er að láta verkin tala og halda lífi í KK.

Það er endalaust hægt að nöldra yfir hinu og þessu sem betur mætti fara.

Af hverju er þetta flokkarugl eins og sumir halda fram sé tilkomið ?

Það var ekki tekið á þessum málum af fyrri stjórn,heldur velt yfir á þá sem taka við.

Auðveldast hefði verið fyrir fyrri stjórn að taka flokkana fyrir á aðalfundi, afgreiða og ganga frá lausum endum.

Fyrrum stjórnar meðlimur sagði við mig er við vorum að ræða kvartmíluna á seinnihluta síðasta árs að það væri sennilega best að hvíla kvartmíluna í eitt ár eða svo vegna þess að það væri engin þátttaka í keppnum.

Hvaða sjónarmið eru þetta hjá stjórnarmönnum ?

Þetta eru mínar persónulegar skoðanir og hugrennigar.

Kv Davíð
Title: Flokkarugl
Post by: 440sixpack on March 19, 2006, 22:00:03
Það er nú afar barnalegt að halda það að ef að KK útvegar 20% af einhverju sé sjálfgefið að Hafnarfjarðarbær borgi 80%, sama hve upphæðin sé há eða hvert verkefnið er. :D
Title: Flokkarugl
Post by: Davíð S. Ólafsson on March 19, 2006, 23:12:55
Sæll Tóti

Það er nú bara að lesa textann.
Ef farið er í framkvæmdir í samráði við bæjarfélagið.Svo barnalegt sem það hljómar.

Varst þú ekki á aðalfundinum ?

Kv Davíð
Title: Flokkarugl
Post by: 440sixpack on March 19, 2006, 23:21:58
Jú Davíð, og við skulum halda okkur á jörðinni, velkominn í stjórn og gangi okkur KK meðlimum vel :)
Title: Flokkarugl
Post by: Ingó on March 19, 2006, 23:23:42
Sæll Davíd

Ég ætla að leifa mér að svara þessu lið fyrir lið.

Sæll Ingó

Varst þú ekki á síðasta aðalfundi KK ? Ég man ekki betur en að Gunnar Svavarsson hafi sagt á fundinum að skifting framkvæmda í samráði við bjarfélagið væri 80/20 % ,eins og aðrar framkvæmdir við íþróttamannvirki í Hafnafjarðarbæ.

Svar : Þetta er rétt  80/20 en þá verða íþróttafélaugin að sækja framm í gegnum forgangsröð ÍBH og það getur tekið langan tíma 4-15 ár allt eftir hversu mikilvæg þau þykja. Ef sú stjórn sem ég sat í hefði ákveðið að fara þessa leið þá værum við ekki búnir að gera mikið á svæði klúbbsins.

Getur verið að fyrrum stjórnir hafi ekki látið reyna á það hvort við sem aðilar að IBH ættum ekki möguleika á fjármagni frá Hafnafjarðarbæ til framkvæmda á vegum KK ?

Svar: Maður gæti haldið að þú værir nýr meðlimur í KK. Hafnarfjarðarbær kom með heilt hús og er að koma með rafmagn og vatn einnig báru þeir í vegin upp á braut og ekki síst þá kostuðu lagningu á ottodekki á til bakabraut sem var síðan malbikuð.

Að tala um að það verði auðveldara og breyti möguleikum á að fá fjármagn inn í starfsermi KK ef við komum upp hringakstursbraut.

Mér er spurn, hvað var gert af fyrri stjórn til þess að fá fjármagn inn í klubbinn ?

Svar: Við vorum með fasta styrktaraðila héldum bílasýningar og einnig var góð afkoma af keppnishaldi á tveim af þeim þremur árum sem ég var í stjór.

Ég veit ekki betur en að ég hafi komið þér í samband við stöndugt fyritæki hér í bæ og hafi verið gefið vilyrði fyrir að kosta tíma og hraðaskilti á brautina. Hvað skeði og hvers vegna var þeim málum klúðrað?
Var það í þágu klúbbsins ?
Mér skilst að ef það hefði verið gengið frá þessum málum í fyrra þá hefðum við fengið annan styrk í ár.

Svar : Davíð þú sast eina fundinn um mál þetta og það er rétt að viðkomandi vildi styrkja KK og ég veit ekki betur en að sé að ganga eftir í sumar. En í fyrra suma voru þeir ekki tilbúnir að klára málið.

Ekki hefur verið eitt auglýsingaskilti á brautinni í nokkur ár án þess að fá greiðslu fyrir.

Svar: Þú getu þá nítt þetta tækifæri og gert betur.

Hvernig á að reka KK ef ekki fæst fjármagn inn í hann ?. Leita þarf allra leiða til þess að fá fjármagn og nota þau tækifæri sem gefast.

Þú tala um að það kosti aðeins 15-20 milljónir að bæta 800 metrum við brautina svo að við getum farið að aka í hringi.

Við þurfum að huga að framtíðinni. Hætta að fara í litla hringi eins og Ragnar Reykás.(800m)

Svar: Við búum á Íslandi og verðum að sníða okkur stakk eftir vexti. Bautinn er 900m og ef bætt er við 800m og síðan aftur 800m og aftur 800m þá er hringurinn orðin 3,2 km. Þetta er hægt að gera í nokkrum áföngum .

Verum stórhuga og horfum fram á veginn. Ef og þegar við förum í að byggja upp hringakstursbraut þá á að gera þetta almennilega og fara í braut sem að er allt að 5km löng. Löglega braut til keppni í akstri bíla og hjóla.

Svar: Ef markið er of hátt þá er það eins líklegt að við lifum ekki svo lengi til að sjá það rætast.

Ég hef átt fundi með fólki sem hefur áhuga á að setja fjármagn í svona framkvæmd eins og við stefnum öll að. Ekki hefur vantað áhuga hjá sumum þeirra.
Færa hraðakstur af götunum og inn á lokuð aksturssvæði er það sem við stefnum að.

Nýja stjórnin er nú búin að vera við völd í rúman mánuð og það er ekki hægt að ætlast til þess að við geru kraftaverk á svo stuttum tíma.

Svar:Það er ekki verið að óska eftir kraftaverki heldur er verið spyrjast fyrir um stefnu þessarar stjórnar í þessu mikilvægasta máli sem KK hefur staðið frammi fyrir.

Nú er að láta verkin tala og halda lífi í KK.

Það er endalaust hægt að nöldra yfir hinu og þessu sem betur mætti fara.

Af hverju er þetta flokkarugl eins og sumir halda fram sé tilkomið ?

Það var ekki tekið á þessum málum af fyrri stjórn,heldur velt yfir á þá sem taka við.

Svar: Það er rétt þetta lendir á ykkur. Ég vildi tak á þessu í fyrra en það eru ákveðnir aðilar sem tala alltaf  um lög og reglur og ég nennti ekki í stríð. Það eru í sumum tilfellum allir sammála um hverju þarf að breyta.

Auðveldast hefði verið fyrir fyrri stjórn að taka flokkana fyrir á aðalfundi, afgreiða og ganga frá lausum endum.

Svar: Flokka reglur eiga ekki heima á aðalfundi. Það hlýtur að vera markmið stjórnar KK að þetta sé í sem bestum farvegi þar með  á hún að sjá um þetta.

Fyrrum stjórnar meðlimur sagði við mig er við vorum að ræða kvartmíluna á seinnihluta síðasta árs að það væri sennilega best að hvíla kvartmíluna í eitt ár eða svo vegna þess að það væri engin þátttaka í keppnum.

Hvaða sjónarmið eru þetta hjá stjórnarmönnum ?

Svar: Menn hafa sínar skoðanir.

Þetta eru mínar persónulegar skoðanir og hugrennigar.

Kv Davíð

Kv Ingó.
Title: Flokkarugl
Post by: Dodge on March 22, 2006, 09:53:59
eruð þið ekki komnir undir hatt íþróttahreifingarinnar..

ég held það sé svoleiðis að þegar þið eruð orðnir fullgildir félagar innan íþróttahreifingarinna þá eigi bærinn að skaffa mannvirki til iðkunnar.

en svo er aftur hvað það tekur langann tíma :)

og annað,, hvernig ætla menn að eiða 1000 til 1500 mills í þetta..
moka stóra holu og grafa féð þar?

ef svo er þá mætti allveg láta mig vita hvar sú hola verður :)
Title: Aðeins meira um flokka.
Post by: Valiant 69 on March 25, 2006, 17:28:20
Í sambandi við þessa flokka umræðu, er þetta nokkuð mál eru það ekki keppendur sem koma sér saman um hvað þeir vilja keyra. Hvort það eru föst index eða gömlu flokkarnir.

Varðandi það sem Agnar var að tjá sig um GF þá finnst mér það frumskylirði að það séu götubílar á skrá og á númerum sem keppa í þeim gamla flokki, enda smíðaður utan um "hraðskreiða götubíla", mætti bæta því inn í reglurnar að menn ættu að koma akandi á bílunum en ekki á 350 picup bílum með dolluna í eftirdragi. Og þyrftu að aka í burt aftur undir eigin vélarafli.
                                  Smá innskot     FG.
Title: Re: Aðeins meira um flokka.
Post by: 1965 Chevy II on April 02, 2006, 19:22:09
Quote from: "Valiant 69"
Í sambandi við þessa flokka umræðu, er þetta nokkuð mál eru það ekki keppendur sem koma sér saman um hvað þeir vilja keyra. Hvort það eru föst index eða gömlu flokkarnir.

Varðandi það sem Agnar var að tjá sig um GF þá finnst mér það frumskylirði að það séu götubílar á skrá og á númerum sem keppa í þeim gamla flokki, enda smíðaður utan um "hraðskreiða götubíla", mætti bæta því inn í reglurnar að menn ættu að koma akandi á bílunum en ekki á 350 picup bílum með dolluna í eftirdragi. Og þyrftu að aka í burt aftur undir eigin vélarafli.
                                  Smá innskot     FG.

Svona eru GF reglurnar í dag þannig að allir verða að vera á númerum með fulla skoðun.
GF flokkur

ÚTBÚINN GÖTUBÍLAFLOKKUR

FLOKKALÝSING

Flokkur fyrir bíla sem geta talist hæfir til götuaksturs og ekið í almennri umferð, það er bílar með fulla yfirbyggingu og annað sem þarf til að aka megi þeim á götum. Breyta má nokkrum atriðum til að bíllinn henti betur til spyrnuaksturs, þó með þeim skilyrðum að hægt sé að breyta honum aftur með lítilli fyrirhöfn og færa hann til skoðunar á viðurkennda skoðunarstöð. Lágmarksþyngd í flokknum er 1300 kíló, með ökumanni á ráslínu. Bílar skulu auðkenndir með GF/ og númeri ökumanns. Bílar þurfa að vera á númerum, skoðaðir af löggiltri skoðunarstöð,tryggðir og skulu standast skoðun ef krafist er (fyrir utan dekk og púst).