Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Trans Am '85 on February 27, 2006, 03:37:32

Title: Stilling á kveikju í nýuppgerðri vél
Post by: Trans Am '85 on February 27, 2006, 03:37:32
Þannig er mál með vexti að ég var að taka upp 350 vél sem var í Trans aminum mínum og hef eiginlega lent á vegg með að koma henni í gang.  :(
  Virðist allt ætla að stranda á kveikjunni. Búinn að vera með ýmsar bækur fyrir framan mig og reyna að stilla hana sjálfur en aldrei fer bíllinn í gang.
 Er kominn núna á það stig að gefast bara upp og henda honum á verkstæði.
 Vitið þið um einhver verkstæði hérna sem gætu gert þetta fyrir mig, eða jafnvel ef einhver góðviljaður bílamaður hérna gæti komið og kíkt á þetta hjá mér.
 Myndi auðvitað þá borga fyrir ómakið að sjálfsögðu. Annars væru líka bara allar upplýsingar vel þegnar...
Title: Stilling á kveikju í nýuppgerðri vél
Post by: 1965 Chevy II on February 27, 2006, 03:46:26
Nafn og sími hjálpar mönnum að ná sambandi við þig :wink:
Title: Stilling á kveikju í nýuppgerðri vél
Post by: Trans Am '85 on February 27, 2006, 12:14:27
Hehe, já það er víst rétt hjá þér. Nafnið er Bjössi og náið í mig í síma 6613384  :wink:
Title: Stilling á kveikju í nýuppgerðri vél
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 27, 2006, 17:54:32
Ég mæli með MÓTORSTILLINGU þeir eru snillingar í þessu.