Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Moli on November 21, 2005, 22:44:32
-
Ég fékk sendan póst frá eigenda ´68 GT500KR og ´68 GT350 bílanna, hann tjáði mér það að ´68 GT500KR bíllinn hefur núna allur verið tekinn í sundur og verður boddíið sandblásið, vél og skipting verða gerð upp frá grunni og skipt verður um alla slitfleti í bílnum og að lokum allt sett saman og sprautað í sama græna litnum sem er upphaflegi liturinn. Einnig sagði hann mér frá ´68 GT350 Shelby, eða þeim hvíta sem um hefur verið rætt hér á spjallinu, hann var upphaflega Hertz bílaleigubíll og einn af 223 slíkum sem Hertz keypti á árinu 1968. Hann er staðsettur á heimili hans í Lúxemburg.
-
Jæja, betri myndir komnar af þessum bílum, það er ekki oft sem það nást myndir af tveim GT-500 Shelby á Íslandi!
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_69_shelby_68GT500KR.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_69_shelby_68GT500KR_1.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_68_GT500KR.jpg)
Hinn bíllinn, 1968 Shelby GT350 fyrrum Hertz bílaleigubíll, staðsettur hjá eigenda í Lúxemburg.
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_68_GT350.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_68_GT350_1.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_68_GT350_2.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_68_GT350_3.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/stakir/1968_GT500KR/normal_68_GT350_4.jpg)
-
*Hrollur* Þeir eru sjúklega flottir, sérstaklega sá blái :D