Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: C-code on October 28, 2005, 13:38:59

Title: Stutt um sýningar KK
Post by: C-code on October 28, 2005, 13:38:59
Þakka góða sýningu og fyrir að hafa fengið tækifæri til að hitta nokkra gamla skápa (Valur, hvar varstu eiginlega?)

Mig langar að koma hér á framfæri við ykkur hugmynd að svolítið öðruvísi sýningu en hafa verið haldnar undanfarin ár.

Mikið er til af sýningarhæfum bílum og vélum sem ættu heima á mjög stórri sýningu. 200 bíla sýning er alveg gerlegt - ætti amk. að geta verið skemmtilegt markmið.

Á slíkri sýningu gætu menn gert miklu meira en að stilla upp bónuðum bílum. Með nægu plássi ætti að vera hægt að setja margt annað en bílana sjálfa. Mér finnst tæknihliðin á þessu ekki koma nógu vel fram; hve miklum peningum og vinnu margir hafa eytt í þetta án þess að það sé almennt þekkt eða metið.

Ég kom á nokkuð margar svona sýningar á búskaparárum mínum í Illinois og tel alveg tímabært að skoða það að halda svona sýningu hér og jafnvel hafa myndarlegt "swap meet" með.

GKJ
Title: Stutt um sýningar KK
Post by: 440sixpack on October 30, 2005, 10:35:22
Hafa ber í huga að sýningar á vegum KK eru fyrst og fremst fjáröflun fyrir klúbbinn, sem þýðir að sníða þarf hana eftir fjöldanum en ekki hugsjón.

Markmiðið var að fá sem flesta gesti.

Svona swapmeet og sýning var haldin úti uppá braut í fyrra og tókst með ágætum.
Title: Stutt um sýningar KK
Post by: Arnar Type-R on October 31, 2005, 00:37:33
það vantar lika fleiri að selja td ág með sölubás þarna og tómo lata þá bara borga smá fyrir að hafa básinn en það myndi gera alveg helling að hafa fleiri en bara benna að selja ;)
Title: Stutt um sýningar KK
Post by: Racer on October 31, 2005, 14:49:57
kannski þegar ÁG og Tómó eru styrktaraðilar eins og Benni.

svo finnst mér svoldi ósanngjarnt að einhver fyrirtæki útí bæ eru að auglýsa sitt dót þegar Benni lánaði húsnæðið og Benni styrkir KK en ekki þau.