Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Kiddi J on August 19, 2005, 20:12:27

Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: Kiddi J on August 19, 2005, 20:12:27
Þetta er algjört möst.... það var svo mikklu skemmtilegra í fyrra á þessum æfingum.
Legg til að það verði reynt aftur að gera þetta svona skemmtilegt.
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: Racer on August 19, 2005, 22:35:07
my coin said yes three times so yes.

annars með að hafa þetta á fimmtudögum þá losnum við við áfengi af svæðinu og allt sem fylgir því... annars hefur maður séð að bílamenning undarfarins árs hefur færst frá föstudagsrúnti yfir á fimmtudagsrúnti hjá I4 og I6 drengjunum.
Annars gætu menn verið loksins komnir með aldur ;)
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: Jón Þór Bjarnason on August 19, 2005, 23:33:17
Sambandi við áfengi þá er bara umm að gera að setja upp skilti sem segir að þetta sé vímulaus staður og fá þá sem eru í klúbbnum til að hjálpa til með að framfylgja því.
Title: áfengi
Post by: Ziggi on August 20, 2005, 00:50:25
Davíð og Ingó eru nú í þjáflun við að bösta fólk að drekka :wink:
Title: Re: áfengi
Post by: ingo big on August 20, 2005, 12:00:42
Quote from: "Ziggi"
Davíð og Ingó eru nú í þjáflun við að bösta fólk að drekka :wink:



Já sko þjálfun , hún er búin og við erum búnir að vera að þessu síðustu árin , báðir erum við dyra verðir , en hvað með það , við kæmumst lítið upp á braut á föstudögum nema til kl 22 því að þá tekur annað við og fimtudagar eru betri fyrir meðlimi hef ég heyrt á flestum , það er alveg satt að drykkjan sást á fólki í fyrra og það er ekki gott fyrir klúbbin , jú ef að AÐRIR klúbb meðlimir mundu aðstoða við að halda þessu af brautini þá mundi þetta ganga vel en það er bar því miður ekki hægt

ég persónulega mundi ekki vera á móti því að vera þarna á föstudögum , en þá þyrfty helst að vera með blásturs mæla  :? en það væri bara til að fæla frá aðra
Title: Re: áfengi
Post by: gtturbo on August 20, 2005, 19:36:30
Þetta var MIKLU betra þegar þetta var á föstudögum. Þetta er alveg búið að vera dautt síðan þetta var fært yfir á fimmtudaga. Beint yfir á föstudaga aftur og þá mætir fleira fólk bæði til að keyra og horfa sem hlýtur að skila klúbbinum meira í kassann.
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: JHP on August 20, 2005, 19:55:50
Hvaða drykkju er verið að tala um?
Eina sem ég sá í fyrra var einn og einn maður sem hélt á bjór og ekki var ég var við neina ölvun.
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: 1965 Chevy II on August 20, 2005, 22:42:23
Þið verðið að ath að Íslendingar eru svo kúltíveraðir,það má ekki drekka bjór á almannafæri hvað þá á kvartmílukeppni jeminn eini :shock: allstaðar í heiminum er seldur bjór á keppnum af ýmsu tagi (meir að segja Formúlu 1)í ómældu magni til að styrkja félöginn,en á hinu frábæra Íslandi onei nei mátt ekki einu sinni koma með þinn eiginn án þess að liggja undir ámælum.
Skál.
(http://images10.fotki.com/v209/photos/5/533204/2532018/IMG_0007-vi.jpg)
Title: Re: áfengi
Post by: Racer on August 21, 2005, 08:26:28
Quote from: "Ziggi"
Davíð og Ingó eru nú í þjáflun við að bösta fólk að drekka :wink:


það gekk svoldi illa þessi þjálfun miðað við eina helgi á ári bönnum við mönnum að drekka og hinar mælum við með drykkju þó það skiptir voða litlu fyrir okkur.. við fáum samt jafn mikið borgað fyrir vinnuna :D en auðvita er skemmtilegra að stoppa slagsmál og fleygja fólki út á gangstéttina eða hirða áfengi við aðkomu á skemmtistað :D

verið er að ræða um menn og keyra drukknir.. lögreglan var ekki fljótt að mæta í fyrra í þessi 2 eða 3 skipti sem grunur lék á drukknum ökumanni.. kannski ekki grunur þar sem ökumenn sáust drekka drykk merktan þekktu bjór fyrirtæki.

menn mega auðvita koma með kaldan ef þeir hafa driver og fleygja ekki flöskum og bjórdósum niður.. auðvita hafa menn sést drekkandi uppá braut á þessu ári.. ég tók mig til og fór í dósasöfnun fyrir 2 vikum og fann 5 bjórdósir :D .. 9x5 = bensín til að keyra :D

p.s. meira segja er pilsner uppá braut til sölu en menn eru voða hræddir að versla þannig í þessari ágætu sjoppu okkar hehe.
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: firebird400 on August 21, 2005, 16:49:30
Ég man ekki betur en að það hafi alltaf verið krakkar á fullri ferð að hirða upp dósir eftir menn þegar það bar sem mest á drykkju þarna, hvort sem það var undan áfengum drykkjum eða gosdrykkjum, og höfðu þeir bara gott og gaman af því.

Burt séð frá því hvort að við komun til með að fá ólátabelg eða hálvita með víni inn á milli þá verðum við fyrst og fremst að hugsa um aðsóknina

Það var betri aðsókn á föstudögum og við verðum ekki að keppa um ath manna við ak-inn svokallaðann eða aðrar samkomur sem hafa verið haldnar á fimmtudögum hingað til.

Fyrir minn part þá eru föstudagar líka hentugri vegna þess að ég klára vinnu fyrr þá en ég geri á fimmtudögum. Það er vonlaust að vera að vinna til 19-20 og ætla þá að fara koma sér upp á braut :?

Föstudaga, ekki spurning :D
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: gstuning on August 21, 2005, 21:05:37
Fun Fridays eða
To old Tusedays?

Föstudagar án efa,
ekkert skemmtilegra en að fara á brautina seint á kvöldi og leika sér og rúlla svo niður í bæ og rúnta,

í stað þess að fara á brautin og svo beint heim í kef að sofa fyrir vinnu daginn eftir.

Að drekka bjór/áfengi þarf ekki að haldast í hendur við ölvun!
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: Mustang Fan #1 on August 22, 2005, 02:19:50
er ekki bara spurning að færa þetta á Miðvikudaga þá getur maður náð bæði upp á braut og á rúnt daginn eftir
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: Racer on August 22, 2005, 03:19:04
eigum við ekki bara að hafa þetta á hverjum degi?

farinn að pakka saman og flytja uppá braut ;)
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: ingo big on August 22, 2005, 07:59:36
Quote from: "Racer"
eigum við ekki bara að hafa þetta á hverjum degi?

farinn að pakka saman og flytja uppá braut ;)



jibbý

eru menn ekki til í það ??? :twisted:
Title: Æfingar á föstudaga..
Post by: ingo big on September 10, 2005, 21:49:26
Quote from: "tuscan"
Online Proxy Checker: check HTTP proxies, check socks 4 / 5 proxies, socks proxy checker: http://www.socksproxylist.com



banna þennan vírus