Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Nóni on June 07, 2005, 23:57:57

Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Nóni on June 07, 2005, 23:57:57
Við verðum því miður að fresta sýningunni sem áætlað var að halda um helgina um óákveðinn tíma.

Í staðinn verður haldin keppni á laugardaginn 25. júní.

Við viljum biðja bílæsta menn að sýna þolinmæði og byggja upp enn frekari spennu vegna þess að þetta verður mjög flott sýning með allskonar fjölbreyttu dóti, reisgræum, sportbílum og fleiru.



Kv. Nóni
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Davíð S. Ólafsson on June 08, 2005, 08:26:36
Sæll Nóni
Er ekki keppni skráð á þessa helgi ???????????????????

Kveðja Davíð
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Racer on June 08, 2005, 08:39:56
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=9945

4. júní
25. júní
9. júlí

:lol:

meira segja keppni og sýning á sama degi :oops:
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Nóni on June 08, 2005, 12:43:18
Quote from: "Suzuki"
Sæll Nóni
Er ekki keppni skráð á þessa helgi ???????????????????

Kveðja Davíð


Jú rétt er það en stjórnin tók þessa ákvörðun í ljósi þess að það er spáð rigningu þann 25. júní. Keppni frestað, bílasýning í staðinn.


Kv. Nóni
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Davíð S. Ólafsson on June 08, 2005, 22:33:12
Ég bara trúi því ekki að stjórnin taki þá ákvörðun að fresta keppni til þess að halda bílasýningu ( hvaða tæki verða á sýningu ?)
Ef svo er af hverju er þá verið að gefa út keppnisdagatal og svo segja að það rigni þessa helgi.
Á nú endanlega að ganga frá kvartmílunni.
Ef ekki sést til sólar hjá stjórninni þá á hún að segja af sér og fá bjartsýna menn/konur til þess að stjórna klúbbnum.

Kv Davíð
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Benni on June 08, 2005, 23:07:26
Og svo er líka Landsmót Fornbílaklúbbsins á Selfossi þessa helgi, og margir, bæði bílar og bílaáhugamenn þar alla helgina....... :idea:

     Kveðja   Benni
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: 440sixpack on June 08, 2005, 23:57:22
Quote from: "Suzuki"
Ég bara trúi því ekki að stjórnin taki þá ákvörðun að fresta keppni til þess að halda bílasýningu ( hvaða tæki verða á sýningu ?)
Ef svo er af hverju er þá verið að gefa út keppnisdagatal og svo segja að það rigni þessa helgi.
Á nú endanlega að ganga frá kvartmílunni.
Ef ekki sést til sólar hjá stjórninni þá á hún að segja af sér og fá bjartsýna menn/konur til þess að stjórna klúbbnum.

Kv Davíð


Davíð minn, þú ættir nú að vita betur en svo, að til þess að halda kvartmílukeppnir, þurfum við peninga, og til þess að ná í peninga þurfum við fjáröflun.  Keppnirnar eru kostaðar af peningum sem koma m.a. af bílasýningu þar sem keppnirnar hafa yfirleitt síðustu ár verið reknar með tapi, einnig þarf að ljúka við að greiða skuldir vegna framkvæmda síðasta árs svo og koma félagsheimilinu í gang og fleira.

Þannig að það er stjórnin sem er að gera allt til þess að halda lífinu í kvartmílunni, sem sagt:  engin sýning = engin kvartmíla.

En lífið er bara þannig að sumir vilja bara njóta fyrir sig og leggja lítið sem ekkert af mörkum, þeim líður bara illa og setja út á allt sem stjórnin gerir,  en sumum líður best illa og við reynum eftir fremsta megni að taka tillit til þeirra.

Tóti
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Davíð S. Ólafsson on June 09, 2005, 09:21:56
Hér á bæ eru allir rólegir.
Til þess að halda klúbbnum gangandi þá þarf að hafa keppendur og keppnistæki er það ekki ? Ef það koma ekki keppendur þá koma engir áhorfendur og engir peningar í kassann ?
Ekki alltaf fara í vörn og taka skrifum persónulega. Ég er bara að benda á að við sem keppum erum búnir að gera plön og þá gerum við kröfur um að dagsetningar standist varðandi keppnir , nema ef veður gefur tilefni til að fresta keppni þá er það skiljanlegt en mér er það alveg óskiljanlegt að halda því fram að það verði rigning þann 25. júni og fresta þurfi keppni.
Það er búið að tala um það lengi að það eigi að halda bílasýningu og af hverju þá að velja keppnishelgi til þess ?
Við sem erum í klúbbnum vitum að það þarf að reka hann og standa við skuldbindingar.
Vinnum í því að fá keppendur á brautina og þá færist líf í klúbbinn.

Kv Davíð, rólegur og í góðum gír.
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: leifur on June 09, 2005, 12:18:50
hvað með helgina 17-19. Hafa sýninguna þá eða keppnina sem átti að vera 25.júni ?
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: 440sixpack on June 09, 2005, 19:16:24
Quote from: "leifur"
hvað með helgina 17-19. Hafa sýninguna þá eða keppnina sem átti að vera 25.júni ?


Þá verða BA strákarnir alveg brjálaðir, og segja okkur skemma Bíladagana fyrir norðan.

Svona bara er þetta og svona bara verður þetta,  Davíð sko, að það yrði rigning var bara grín hjá Nóna og svo má nú benda á að þegar eru nú búnar 3 keppnir, og er það 66% yfir meðallagi á sama tíma undanfarin ár og allt sumarið og haustið eftir.

Það er aldrei hægt að finna dagsetningu svo allir séu ánægðir.
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Kiddi on June 09, 2005, 22:07:00
Tek þetta langt fram fyrir eina keppni með 20 keppendum þ.s. svona sýning ætti að skila miklu meiri aur í kassann ef að er auglýst vel o.s.frv.
Eru komin drög að auglýsingaspjöldum eins og síðustu tvær sýningar? Gott að fá smá fréttir af þessu :roll:  :o  :wink:
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Jón Þór Bjarnason on June 09, 2005, 23:44:30
Ég er tilbúinn að dreifa auglýsingum í og við GRAFARVOG ef þið viljið fá AÐSTOÐ. Sendið mér bara einkapóst ef þið viljið.
Title: Re: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: kiddi63 on June 22, 2005, 19:06:43
Quote
Við verðum því miður að fresta sýningunni sem áætlað var að halda um helgina um óákveðinn tíma.


Jæja, er ekki málið bara að bætast í hópinn hér í Keflavík þegar ljósnótt verður haldin og slá upp stórri sýningu??
Það er varla mikið mál að finna góðan stað fyrir það.
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Jón Þór Bjarnason on August 28, 2005, 22:24:18
Jæja er eitthvað að frétta af sýningarmálum. Það væri virkilega gott að fá svör við þessari spurningu. Mér sýnist húsnæðið hjá BENNA að vera að koma til en var ekki meiningin að fá það húsnæði undir sýningu? Þetta er búið að taka svaka tíma og þetta er jú helsta fjáröflun klúbbsins.  :D  :D  :D
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: ingo big on August 31, 2005, 13:27:26
Quote from: "Nonni_"
Jæja er eitthvað að frétta af sýningarmálum. Það væri virkilega gott að fá svör við þessari spurningu. Mér sýnist húsnæðið hjá BENNA að vera að koma til en var ekki meiningin að fá það húsnæði undir sýningu? Þetta er búið að taka svaka tíma og þetta er jú helsta fjáröflun klúbbsins.  :D  :D  :D



Er engin úr stjórn hérna á spjallinu til að gefa svör ?
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: Jón Þór Bjarnason on September 01, 2005, 10:43:58
ER EKKI EINHVER HÉRNA SEM GETUR SVARAÐ MÉR EÐA HVAÐ  :evil:  :evil:  :evil:
Title: BÍLASÝNINGU FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA!!!!!!!!!
Post by: kiddi63 on September 01, 2005, 11:39:21
Það er sýning hérna í Keflavík á næsta laugardag (3 sept) í tengslum við Ljósanóttina, Fornbílaklúbburinn og fullt af hjólum fara í hópakstur um bæinn og enda svo með sýningu í gamla bænum.
Það er alveg gríðalegt líf og fjör í kring um þetta, mig minnir að það hafi komið rúmlega 70 þús hausar í fyrra, sem er þokkalegt í svona lítilli "borg".
Er ekki málið fyrir þá sem eru í stuði að skella sér suður og vera með  :lol: