Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Damage on May 28, 2005, 17:47:29

Title: turbo kit
Post by: Damage on May 28, 2005, 17:47:29
ég er smá n00b í þessu.
ég var að skoða greddy turbo kit og power enterprsie turbo kit

er einhver sem er til í að hjálpa mér hvort e betra.

enterprise : http://www.madpsi.net/MR2PEKit.htm
greddy : http://www.prostreetonline.com/buy/greddy_high_hp_competition_only_turbo_kits/11510015/

ég er með svona 2lítra 3s-gte sem er turbo vél í mr2 :
Title: Ertu með.......?
Post by: Nóni on May 29, 2005, 22:21:55
Halló Damage.....(ef það er það sem þú heitir).


Ertu með túrbó vél í bílnum? Og túrbínu? Hvað langar þig að fá þér, stærri túrbínu eða bara túrbínu?

Endilega komdu með einhverja meiri spekka um bíl og vél og túrbínu. Gaman að sjá að það eru einn og einn enn hugsandi. :D



Kv. Nóni
Title: turbo kit
Post by: diddzon on May 29, 2005, 22:52:20
Ég veit ekkert hvað hann er að spá, en þykir nokkuð víst að fyrst hann sé að skoða aðrar túrbínur þá sé hann að leita að einhverju sem gefur meiri kraft.

Bíllinn er framleiddur upprunalega með túrbínu.
Title: turbo kit
Post by: Damage on May 30, 2005, 12:05:49
sæll Nóni.
ég er með Mr2 Turbo sem er orginal með túrbínu og hann er að skila 200hö.
ég er að spá í stærri túrbínu í framtíðinni en ég vil ekki hafa turbo lagg eða svoleiðis.

(http://www.madpsi.net/Performance/Toyota%20MR2%20(SW20)/Power%20Enterprise%20PE1919t/PE1919t.jpg)

svona túrbínu ef hún er ekki með neitt túrbo lagg.
kv.Haffi
Title: turbo kit
Post by: Nóni on May 30, 2005, 14:14:42
Ertu búinn að láta þessa gömlu blása einhverju meiru en upphaflega er gert ráð fyrir?
Það er örugglega hægt að koma þessu apparati í 250 hestöfl með gömlu túrbínunni.

Kv. Nóni
Title: turbo kit
Post by: 1965 Chevy II on May 30, 2005, 15:01:14
Ég hef ekkert vit á þessu,en langaði í svona einu sinni og las þá að atriði eitt og tvö til að byrja á væri að fá svona "keppnis" kúplingsdisk áður en það á að tjúnna þetta.
Svo ef það eru stock stimplar í henni þá brotna þeir oft við 2nd hring.
Arias er með stimpla í þetta.
bara mín 2cent eins og kaninn segir.
Title: turbo kit
Post by: Damage on May 30, 2005, 17:24:19
Quote from: "Nóni"
Ertu búinn að láta þessa gömlu blása einhverju meiru en upphaflega er gert ráð fyrir?
Það er örugglega hægt að koma þessu apparati í 250 hestöfl með gömlu túrbínunni.

Kv. Nóni


nei. ég er ekki búinn að fikta neitt við vélina enda er ég bara að verða 16 ára :).
ég veit að það er sprunga á pústgreininni. þessi bíll lenti í tjóni þegar hann keyrði á hest fyrir austan held ég. ég ætla að reyna að koma honum á götuna í sumar.
Title: turbo kit
Post by: MALIBU 79 on June 01, 2005, 18:35:17
sæll nóni ég er einmitt líka að spá í það sama og hann Damage er með fiat uno turbo árgerð 88 hvernig fer maður að því að láta hana blása meira og fer það ekki ver með vélinna?
Title: turbo kit
Post by: Nóni on June 02, 2005, 01:15:29
Með svona Uno er ég ekkert inni í, veit hins vegar að með túrbóvélar gildir það sama og með aðrar vélar, meira loft kallar á meira bensín, ef blandan þynnist er hætta á forsprengingum. Það er hins vegar ekkert annað að gera en að auka bensínið inní vélina líka því ekki fer maður bara heim í fýlu ef maður getur ekki bara "blásið meira með túrbínunni". Hvort sem það er með auknum þrýsting bensíns eða öðrum hugbúnaði í tölvuna eða hvað sem er, þetta er allavega númer 1 og svo bætir maður við loftið. Það gerir maður svo með handvirkum þrýstistilli eða ef tölva stjórnar þrýsting er sennilegt að hægt sé að fá annan hugbúnað í hana. Einnig er skift um þrengingar í þeim rörum sem eru í þrýstistillinum og þar fram eftir götunum. Best er að lesa sér til um þetta í bókum eins og "21st century performance" eða "Maximum boost" eða sambærilegum, eða á netinu á slóðum eins og þessum..........

http://www.gnttype.org/techarea/turbo/turbopage.html

http://www.overboost.com/story.asp?id=101

http://turbochargedpower.com/Turbos%20Simplified.htm

http://www.turbomustangs.com/turbotech/main.htm


Eflaust eru margar fleiri og betri og hann google gamli finnur þetta allt fyrir mann.




Kv. Nóni