Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: ZeroSlayer on May 16, 2005, 19:03:28
-
Ég ákvað að stofna hérna um prójecktið mitt, ég ætla bara að taka það fram að ég er 15 ára og þetta er mitt fyrsta "prójeckt" og er bara gert uppá funnið.
Bílinn sem ég er að vinna í er guð bíla og er með algjöra yfirburði á brautinni, hvaða bíll er þetta? jú þetta er Lada Niva 1600 (a.k.a Sport) sem er heil reykspólandi 86 hestöfl. Hann er með millikassa og háa og láa drifi sem er = að maður kemst allt á honum. Þó að hann sé bara 86 hestöfl virkar hann sem 100 útaf hvað hann er léttur( hann er vel ryðgaður og stór göt á köflum). Ég er byrjaður að vinna í paint jobbinu og er búinn að pússa og grunna húddið á honum og búinn að mála stuðarann. Endilega komið með hugmyndir um hvernig ég get kreist úr honum meira afl og aðrar sniðugar hugmyndir um að gera hann skemmtilegri. Og til allra sem eru með fulla bílskúra af bíladóti sem þið eruð ekki að nota megiði endilega gramsa í skúrnum og gá hvort þið finnið ekki gamalt kraftpúst þarna falið eða gamla kraftsíu eða eitthvað annað sniðugt og senda mér einkapóst og segja mér hvort þið eruð til í að gefa þetta eða selja ódýrt til að styrkja mig í þessu PROjekti. Ég læt hér með fylgja nokkrar myndir(ég afsaka stærðina á þeim):
-
350 oní :D
þá ertu í góðum málum
-
350 oní :D
þá ertu í góðum málum
ef þú reddar mér 350, skiptingu og festingum þá er ég game
-
Menn hafa oft sett ofaní þetta gamlar Fiat 2 lítra vélar, þær passa nefnilega á gírkassann í lödunni.
-
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&rd=1&item=7974995557&category=33615&sspagename=WD2V
Senda með shopusa,þetta er jú í næsta nágrenni
HR
-
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&rd=1&item=7974995557&category=33615&sspagename=WD2V
Senda með shopusa,þetta er jú í næsta nágrenni
HR
hvað er svona vél að skila? ég ætla líka bara minna á að ég er bara 15 ára(fæddur 1990)
-
það er ein svona lada sport hérna á neskaupstað með vél úr fiat uno turbo. búinn að standa inní skúr í mörg ár.. vantar og hefur bara alltaf vantað eitthvað eitt stykki til að koma henni á götuna
-
hvað þarf maður til að festa húddskóp á húdd?
-
Límkítti. Ekkert annað... Setur lím á skópið, leggur það á húddið og bíður í eina mín og þá er það sest. leyfa því að þorna í klukkutíma áður en farið er af stað...
-
skera toppin af aftan við hurðir sprauta hann gulann, setja á hann boga , láta sauma fyrir þig hvita blæju, hækka hann pínu upp, og troða í hann lítilli áttu 8) 8) þá verðuru flottastur.
-
skera toppin af aftan við hurðir sprauta hann gulann, setja á hann boga , láta sauma fyrir þig hvita blæju, hækka hann pínu upp, og troða í hann lítilli áttu 8) 8) þá verðuru flottastur.
:lol:
Bóndi sem ég var að vinna hjá í þykkvabænum var með eina sem var geggjuð
Hann hafði skorið 8 tommu rör í 5 cm stubba og soðið einn á hverja felgu, síðan tekið aðrar felgur og soðið öfugar á stubbana
Sem sagt kominn með 8 hjóla mýrarrottu sem fór allt. 8)
-
flottur hafiði séð þennan sem er á 44\" dekkjum hann er með volvo b23 vél held ég og svínvirkar
-
Ertu að meina þessa. ATH fengið í láni frá www.f4x4.is
-
nei þessi sem ég er að tala um er á íslandi og er hvít
-
svo er einn lengdur é egilstöðum eða einhverstaðar fyrir austan 8)
-
svo er einn lengdur é egilstöðum eða einhverstaðar fyrir austan 8)
Mætti honum nú í kópavogi í gær
-
Sælir, ég var að lakkleysa málinguna af hoodskúpinu mínu og það eru sumstaðar komin göt á húðina og trefjaþræðirnir standa út... Hvað læt ég á það? þetta er bara þunn húð sem hefur brotnað af á sumum stöðum
-
Sælir....
Ég á nú nokkrar Lödur og þar á meðal Lödu Sport sem er alveg meiriháttar og nú er ný kúpling á leiðinni í hana og hún er alveg mögnuð og ég er búinn að mixa gamalt Bronco púst undir hana og hún er alveg djöful mögnuð með það 8) en varðandi þetta húddskóp þá skaltu ekki vera að veltast með eitthvað trefjadrasl heldur skaltu fá þér annað Lödu Sport húdd og skera það í tvennt það er að segja þvert yfir og mjókka það allverulega og nota stefnuljósagötin í húddinu sem göt og þegar þú ert búinn að skera þetta nógu mikið til þá er bara að festa þetta saman aftur og loka því að aftan og þá ertu kominn með alveg svakalega flott húddskóp með tveimur götum þetta er alveg rosalega flott :wink:

það er aldrei að vita nema maður geri þetta varðandi húddið, en hvernig er að virka að hafa bronco púst undir honum, ég á eimmit púst undan Bronco