Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Nóni on April 27, 2005, 20:05:45
-
Allir velkomnir á æfinguna sem verður fimmtudagskvöld kl. 20:00
Stefnt er að því að hafa posa á svæðinu til að menn geti gengið í klúbbinn þá og þegar séu þeir ekki búnir að koma því í verk.
5000 krónur eru gjöf en ekki gjald fyrir að fá að spyrna allt sumarið vegna þess að við í stjórninni sáum fram á að þurfa að rukka töluvert meira fyrir æfinarnar heldur en síðustu sumur. Ákveðið verður seinna í sumar hvort þurfi að rukka líka.
Að sjálfsögðu gilda allar almennar öryggisreglur svo sem hjálmaskylda og að ökutæki sé með skoðun, endurskoðun er í lagi ef hægt er að sýna fram á með óyggjandi hætti að ekki hafi verið sett út á öryggisbúnað bifreiðarinnar.
Ef bifreiðin er komin meira en 2 mánuði fram úr skoðunartíma er hún ekki með, þú þarft hvort eð er að fara með bílinn í skoðun.
Kv. Nóni
-
Það var laglegt, :D reyni að kíkja og skoð þetta. en ég er allveg til í að hjálpa til við nýja félags heimilið :wink:
Kveðja:
Dóri G. :twisted: :twisted:
-
Ekki kostar neitt að horfa á?
ef svo er hvað kostar mikið að glápa á?
-
Allir velkomnir á æfinguna sem verður fimmtudagskvöld kl. 20:00
Stefnt er að því að hafa posa á svæðinu til að menn geti gengið í klúbbinn þá og þegar séu þeir ekki búnir að koma því í verk.
5000 krónur eru gjöf en ekki gjald fyrir að fá að spyrna allt sumarið vegna þess að við í stjórninni sáum fram á að þurfa að rukka töluvert meira fyrir æfinarnar heldur en síðustu sumur. Ákveðið verður seinna í sumar hvort þurfi að rukka líka.
Að sjálfsögðu gilda allar almennar öryggisreglur svo sem hjálmaskylda og að ökutæki sé með skoðun, endurskoðun er í lagi ef hægt er að sýna fram á með óyggjandi hætti að ekki hafi verið sett út á öryggisbúnað bifreiðarinnar.
Ef bifreiðin er komin meira en 2 mánuði fram úr skoðunartíma er hún ekki með, þú þarft hvort eð er að fara með bílinn í skoðun.
Kv. Nóni
Semsagt, það kostar 5000kr að vera í klúbbnum og fríar æfingar þangað til annað kemur í ljós?
-
Ekki kostar neitt að horfa á?
ef svo er hvað kostar mikið að glápa á?
Góð hugmynd hjá þér, við förum kannski bara að rukka inn. Svo verður þetta bara ruglað og þeir sem neita að borga fá ekki afruglunargleraugu.
Nei þetta var nú bara létt grín hjá mér, það kostar ekkert inn og við ætlum ekki að rukka heldur fyrir að fara brautina.