Kvartmílan => Mótorhjól => Topic started by: Ozeki on April 18, 2005, 19:35:01

Title: Hjólagalli
Post by: Ozeki on April 18, 2005, 19:35:01
Nú er búið að loka snigla spjallinu vegna einhverra óspekta og almenns barnaskaps, svo ég prófa að pósta þessu hér.

Ég hef verið að kíkja eftir hvað er í boði ef maður ætlar að galla sig upp fyrir götuhjól.  Hef svona frekar verið að kíkja eftir ekki leðurgöllum.  Hvað hafa menn verið að kaupa í þessu . .?

Það virðist vera góðir gallar frá JoeRocket (http://www.joerocket.com/jrf/home.cfm) en svo er verið að dissa galla sem bera heiti Ballistic, sjá komment (http://www.waterjets.org/vegan_motorcyclist.html).

Motoport (http://www.motoport.com/) er svo að sérsmíða kevlar galla.
Title: Er einhver staður hér heima?
Post by: Nóni on April 20, 2005, 00:35:08
Hver er að selja galla hérna heima og á hvaða verði eru svona kevlar gallar? Er þetta eitthvað ódýrara en hjólið sjálft hérna heima?


Kv. Nóni
Title: Hjólagalli
Post by: Ozeki on April 20, 2005, 19:15:23
Ég veit að í það minnsta Suzuki umboðið er að selja eitthvað af þessu.  Vefurinn er frekar slappur í þessum málum hérna heima, það er einna helst Nitro (http://www.nitro.is/) sem er með eitthvað birt á vefnum.  En ég sá fljótlega að ég gat náð jakka, buxum, hönskum og stígvélum (JoeRocket Ballistic dótið) heim á svona 65 þús kall í gegnum ShopUsa.  Það er ekki að sjá að maður fái þetta á því verði út úr búð hér heima.
Title: Hjólagalli
Post by: Busa on April 21, 2005, 21:06:33
Pukinn á Grensás er með eitthvað, annars tek ég undir þetta með netið - það er einfaldlega ódýrara
Title: Galli.
Post by: Þórir on April 22, 2005, 10:27:24
Alger óþarfi að vera að borga shopUSA fyrir ómakið. Ég díla beint við www.denniskirk.com Það tekur slétta viku að fá dótið heim að dyrum, borgar manninum sem keyrir heim bara tollinn. Minna mál en að skjótast út í búð.
Title: Hjólagalli
Post by: pippi313 on July 08, 2005, 12:18:42
Snilld er það, Hvað kostar góður Goritex galli hjá þeim og leður
Title: Hjólagalli
Post by: Þórir on July 08, 2005, 15:11:52
Quote from: "pippi313"
Snilld er það, Hvað kostar góður Goritex galli hjá þeim og leður


Mismunandi eftir hvað þig langar í.. . . . . .  kíktu bara á þetta sjálfur.  :D
Title: Hjólagalli
Post by: oggar on July 11, 2005, 17:39:30
Ég mæli með RUKKA frá Yamaha umboðinu, er búin að vera í þannig galla í 3 ár og hann er í frábæru ástandi.  Ég er á racer og hef átt leður líka, þetta er ólíkt þægilegra í slagviðri og kulda þó að leðrið sé alltaf flottara ;)

Bæði konan og bróðir minn eiga RUKKA galla og gef ég þeim mína hæstu einkunn.  Svo sá ég að Yamaha umboðið er einnig farið að selja galla frá NAZRAN eða eitthvað þannig ásamt IXS göllum sem fluttu á Nýbýlaveginn ásamt Yamaha frá Merkúr á sínum tíma