Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Krissi Haflida on March 29, 2005, 12:51:16

Title: 1/8 mila
Post by: Krissi Haflida on March 29, 2005, 12:51:16
Var að pæla að taka pulsinn á því hvort það sé einhver áhugi hérna hjá mönnum að profa að keyra 1/8
Title: 1/8 mila
Post by: Einar Birgisson on March 29, 2005, 13:28:13
Nei.
Title: Ég er til!!
Post by: stigurh on March 29, 2005, 18:18:14
Ég er til í það. Mér sýnist Einar B vera að klára bremsukaflan ásamt einhverjum öðrum. Sjálfhætt að keyra 1/4. Áhorfendavænt+keppnisvænt=tekur kannski styttri tíma.

Svo held ég að það sé erfiðara!!
Title: 1/8 mila
Post by: ilsig on March 29, 2005, 18:47:05
Einu sinni var sagt að sá sem heldur veit ekki neitt.   :idea:   :roll:

 kv.Gisli Sveinss
Title: 1/8 mila
Post by: Racer on March 29, 2005, 20:08:28
nei of stutt þó þetta er fínt kick þá er ekkert gaman að klára dæmið á undir 10 sec og flestir bílar hér eru hvað kringum 5 sec 1/8.

svo er leiðilegt að breyta 1/4 í 1/8 eða öfugt í tölvunni (þarf að vera klárað áður en menn byrja 1/4 eða eftir allar 1/4 keppnir)
Title: 1/8 mila
Post by: einarak on March 29, 2005, 20:54:19
Einhverjar humgmyndir á lofti krissi??
Title: 1/8 mila
Post by: Kiddicamaro on March 29, 2005, 20:57:07
Quote from: "Racer"
nei of stutt þó þetta er fínt kick þá er ekkert gaman að klára dæmið á undir 10 sec og flestir bílar hér eru hvað kringum 5 sec 1/8.
svo er leiðilegt að breyta 1/4 í 1/8 eða öfugt í tölvunni (þarf að vera klárað áður en menn byrja 1/4 eða eftir allar 1/4 keppnir)

ertu ekki komin aðeins of mikið framm úr þér þarna dabbi minn :roll:
Title: 1/8 mila
Post by: Heddportun on March 29, 2005, 21:16:10
þá væri 60ft svona 1,3 sec :),Það væri mjög spennandi að taka 1/8,miklu fleiri keppendur og meiri spenna
Title: 1/8 mila
Post by: baldur on March 29, 2005, 22:51:53
Quote from: "Racer"
svo er leiðilegt að breyta 1/4 í 1/8 eða öfugt í tölvunni (þarf að vera klárað áður en menn byrja 1/4 eða eftir allar 1/4 keppnir)

Þetta er bara spurning um að búa til mismunandi flokka í forritinu.
Title: 1/8 mila
Post by: Krissi Haflida on March 30, 2005, 00:02:00
Quote from: "einarak"
Einhverjar humgmyndir á lofti krissi??

Já maður er alltaf að pæla,

til ykkar sem þekkið til hefur einhverntima verið keppt hérna í 1/8? fyrir utan götuspyrnuna á akureyri og þá með alvöru keppnistækjum/bílum
Title: Sá sem ekki veit...........??
Post by: eva racing on March 30, 2005, 00:58:01
Hæ.

    Það er svona blendnar tilfinningar með 1/8 vs 1/4 mílu.    

   Það er samt svolítið skrítið að ef keppt er í 1/8 á A-eyri, þá er það æðislegt en ef minnst er á sömu vegalengd hér þá ætlar allt af göflonum að ganga.   Flestir þeir sem eru á móti 1/8 hafa aldrei eða sjaldan keppt, (EB er undantekning)  Það er nú svo, að helsta og mesta keppnin er á fyrstu  100 metrunum.  Þá er startinu lokið menn eru komnir í hæsta gír og restin er bið eftir því að komast að endalínunni. (miðað við kvartmílubíla.  Mörgum götubílum dugir ekki hreppurinn til að komast í "topp gír" sökum hlutfalls vs afl)

  Og það að flestir bílar hér séu á 5 sek 1/8 því miður er það ekki rétt, háar 6 til 7 er nær lagi.  Sléttar 6sek eru ca. sléttar 9. á 1/4  og það er ekki "flestir bílar" hér á  landi.  

    Hlutfallið er ca. tími X ,65    og hraðinn er ca 80%  T.d.  var þórður kominn í 160 mílur á 1/8 og svo 198 mílur á 1/4 á síðasta sumri.

   Það er margt sem aftur mælir með. 1/8 t.d.
1. 'Ahorfendur sjá endann, (sem ætti að vera gott.?)

2. Munur á milli bíla minnkar (sérstaklega gott á indexflokkum, Bracket og OF etc) Einnig á jöfnu starti þar sem menn eru sennilega "með á myndinni".

3. Þetta jafnar bíla í öðrum flokkum, þannig að ökumaðurinn skiftir   meira   máli. (erfiðara að vinna upp daprann dræver með meira togi.)

4. keppnir verða jafnari og meira spennandi.  

5. Hámarkshraðinn minnkar, minni slysahætta og minna um  tuskubremsunotkun. (minna ves)  

6. Fer betur með "bílinn" þú ert síðustu 200 metrana á max rpm -1000
 
           'Eg er 1/8 mílu sinnaður, en get svo sem farið í bíltúr útí sveit ef það er stemmingin. (er samt ekki svo mikill rúntari, meira svona spyrnari)
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on March 30, 2005, 01:51:44
(http://www.mahopa.de/bilder/lustige-forenbilder/this-thread-is-gay.jpg)
Title: Ubs
Post by: stigurh on March 30, 2005, 08:03:30
Þetta eru bara fordómar og ekkert annað.

Ég kem ekki til með að éta neitt sem ég hef ekki étið áður!!! Stelputal...

Það er ekki saman að jafna umferðargötu á Akureyri og griplausri kvartmílubraut í kapelluhrauni.

Að halda er ekki sama og vita ekki neitt. Það veit ég.

Ég er að gera út bíl til að hafa gaman af ! og ég læt ekki forpokast á þessu skeri. Ég vona að þið félagar látið ekki íhaldsemi hafa þannig áhrif á ykkur að þið séuð bara á móti.

Það eina sem er öruggt í þessum heimi eru breytingar...
Title: 1/8 mila
Post by: baldur on March 30, 2005, 13:36:42
Það er reyndar staðreynd einst og Valur segir að mesta actionið er á fyrstu 200 metrunum, restin er bara rúntur í efsta gír.
Title: 1/8 mila
Post by: Ó-ss-kar on March 30, 2005, 16:14:09
þannig sem ég myndi sjá þetta , þá er alveg harcore bömmer að vera á götudekkjum og vera ekki með shift converter og spyrna einhverja svona vegalengd... þá er ég að miðað við bíla í manns eigin flokki. t.d. gaman að vera hliðina á 4x4 bíl sem stendur hann í útslætti og ég að pína minn í 1900rpm og svo stekkur hann meira en bíllengd í starti frá manni...  :? finns þetta of stutt , ef það ætti að velja á milli myndi ég kjósa 1/4
Title: 1/8 mila
Post by: stigurh on March 30, 2005, 18:43:32
Hvaða flokkur er þinn flokkur?
Betri dekk+ lægra hlutfall+hærra stall= góð 60fet og miklu meira gaman
gó 4 it man
Title: 1/8 mila
Post by: ND4SPD on March 30, 2005, 19:11:05
Djöfull nenna menn að grenja hérna !! :shock:  Ég er á þeirri skoðunn að það fengjust miklu fleiri til að keppa í 1/8 mílu frekar en 1/4 mílu! það hefur bara sýnt sig hvað menn nenna að aka til Akureyrar og keppa þar!
(menn sem varla hafa komið uppá braut hér í bænum) Enda er varla bílum bjóðandi að aka þarna uppeftir  :cry:
Ps. vantar bara einhvern til að græja til götumílu hérna í bænum  :wink:

Enn þetta er mín skoðun og vinsamlega farið ekki að GRENJA yfir því!! :roll:
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on March 30, 2005, 19:38:23
Quote from: "stigurh"
Hvaða flokkur er þinn flokkur?
Betri dekk+ lægra hlutfall+hærra stall= góð 60fet og miklu meira gaman
gó 4 it man

Stígur sumir eiga götubíla limiteraða við 10.5 dekk DOT,lægra hlutfall+hærra stall+meira spól=óökufær götubíll.
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on March 30, 2005, 19:40:29
Quote from: "ND4SPD"
Djöfull nenna menn að grenja hérna !! :shock:  Ég er á þeirri skoðunn að það fengjust miklu fleiri til að keppa í 1/8 mílu frekar en 1/4 mílu! það hefur bara sýnt sig hvað menn nenna að aka til Akureyrar og keppa þar!
(menn sem varla hafa komið uppá braut hér í bænum) Enda er varla bílum bjóðandi að aka þarna uppeftir  :cry:
Ps. vantar bara einhvern til að græja til götumílu hérna í bænum  :wink:

Enn þetta er mín skoðun og vinsamlega farið ekki að GRENJA yfir því!! :roll:

Sæll,
hvaða tæki átt þú og hvað hefurðu oft keppt í kvartmílu?
Title: 1/8 mila
Post by: ND4SPD on March 30, 2005, 19:50:48
Quote from: "Trans Am"

1996 LT4 Corvette Coupe GrandSport
2002 LS1 Corvette Coupe

Hef ekki keppt of en besti árangur 2 sæti 8 cyl standart á Akureyri  :roll: og bara nokkuð sáttur við það!
Keppti líka einu sinni á 900ZX9R Ninja hér í bænum ! :wink:
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on March 30, 2005, 20:18:45
Svaka floti 8)  en heldurðu að fólk myndi hætta við að fara á Akureyri ef þeir hefðu almennilegt svæði til að keppa á og mundu þá keyra 1/4 mílu.
Það efa ég og það er ekki 1/8 míla sem er að laða menn að Akureyri heldur eru það að mínu mati einfaldar flokkareglur,flott sýning og eðaldjamm á eftir.
Annars er öllum frjálst að keppa í 1/8 ef menn vilja en því hefði ég lítinn áhuga á með mitt apparat.
Title: 1/8 mila
Post by: ND4SPD on March 30, 2005, 22:31:48
Quote from: "Trans Am"
Svaka floti 8)  en heldurðu að fólk myndi hætta við að fara á Akureyri ef þeir hefðu almennilegt svæði til að keppa á og mundu þá keyra 1/4 mílu.
Það efa ég og það er ekki 1/8 míla sem er að laða menn að Akureyri heldur eru það að mínu mati einfaldar flokkareglur,flott sýning og eðaldjamm á eftir.
Annars er öllum frjálst að keppa í 1/8 ef menn vilja en því hefði ég lítinn áhuga á með mitt apparat.

Almennilegt svæði myndi ekki duga til ! þetta yrði að vera sami streat race fílingurinn og á AEY  8) Ég hef persónulega engan áhuga á venjulegri 1/8 mílu, en myndi hiklaust taka þátt í góðri götumílu :wink:
Ps. sammalá þessu með einfaldleikan og djammið  :twisted:
Title: 1/8 mila
Post by: 440sixpack on March 31, 2005, 17:50:45
Væri til í að prófa 1/8 hiklaust. Menn sem halda að það sé eitthvað meira cool að spyrna innan um ljósastaura, hafa litla reynslu og lítið vit.

PS. Feikilega góð mynd af Frikka hér að framan eftir að hann fór þarna út í EXTREME-MAKEOVER :wink:

Mannskepnan eru á móti breytingum, jú vegna þess að hún er hrædd við það sem hún þekkir ekki.
Title: Stóridómur fallin hjá Trans Am. Sjáið ljósið
Post by: stigurh on March 31, 2005, 18:42:24
stigurh skrifaði:
Hvaða flokkur er þinn flokkur?
Betri dekk+ lægra hlutfall+hærra stall= góð 60fet og miklu meira gaman
gó 4 it man

Stígur sumir eiga götubíla limiteraða við 10.5 dekk DOT,lægra hlutfall+hærra stall+meira spól=óökufær götubíll.

Stelpur hættið að tjúnna bílana, þið endið með óökufæra götubíla. Betra að vera stock. Já miklu betra.
Title: Re: Stóridómur fallin hjá Trans Am. Sjáið ljósið
Post by: 1965 Chevy II on March 31, 2005, 23:23:16
Quote from: "stigurh"
stigurh skrifaði:
Hvaða flokkur er þinn flokkur?
Betri dekk+ lægra hlutfall+hærra stall= góð 60fet og miklu meira gaman
gó 4 it man

Stígur sumir eiga götubíla limiteraða við 10.5 dekk DOT,lægra hlutfall+hærra stall+meira spól=óökufær götubíll.

Stelpur hættið að tjúnna bílana, þið endið með óökufæra götubíla. Betra að vera stock. Já miklu betra.

Það er ekki verið að tala um tjúnninguna Stígur heldur hlutföllin sem henta einum áttunda 5 eitthvað og uppúr,ekki gott á götubíl.
Title: Skyrslettingar
Post by: eva racing on April 01, 2005, 01:20:57
Hæ.

    Oftast eru það annað af tvennu, menn sem eru ekki með mikið afl, og ná þess vegna ekki hraða á 1/8 og ætla að bæta aflskortinn með lengri vegalengd,  eða menn sem eru með "stóra" mótora sem ætla að nota seinni hlutann til að draga upp minnimótoramenn sem aftur voru kannski betri á ljósonum og kannski búnir að vinna í trakkinu (af því þeir eru með minni mótor).  

   Það kemur oft upp sú hugmynd að kraftminni vélar séu betri af stað,....   Það er náttúrulega Lundareykjarbull einsog það gerist best.
  'A móti kemur að ef hjólbarðar eru takmarkaðir getur verið verra að halda stórum vélum á "spóllausa" svæðinu,

  Þetta var nú svona útúrdúr hjá mér,

   Eruð þið nokkuð að komast á GR'ATT svæði með "yfirlýsingamyndum" ?????????      Gæta skal hófs...........
Title: Spól hjá óökufærum götubíl
Post by: stigurh on April 01, 2005, 08:10:41
Kæri Transi

Mundi þetta þá ekki vera tjúnning ? Bara leið í meira spól, HAAAA...Er í alvöru betra að skifta yfir í Subaru impressive. If you cant beat them...and so fourth into overdrive.
Ef sssstelpa vill halda í við 4x4 þá skal hún gera hvað ?  
Og eru þá ekki til góð DOT dekk með overdrive ?

Ein forvitin.

Ps.Og svo ekki hvetja félagana út í ófærur :twisted:
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 01, 2005, 10:58:55
(http://www.mahopa.de/bilder/funny-forum-pictures/why-did-i-click.jpg) :?
Title: Hver á 700 hp "götubíl" á DOT dekkjum
Post by: stigurh on April 01, 2005, 18:37:03
Kæri Transi
Hvað er í skúrnum hjá þér ?
Það skyldi þó ekki vera 700 hp "götubíll" á DOT dekkjum
Fer kannski á númer líka ? Ha..hvað ..ókeyrandi.. með fjölskylduna á rúntinn.

Fyrirgefðu mér ósvífnina, kæri Transi.

Hlutföllin eru fyrir kvartmílu, er það ekki?
þá er þetta víst í lagi.

"Gerið eins og ég segi, ekki eins og ég geri"
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 01, 2005, 19:18:32
Quote from: "Trans Am"

Annars er öllum frjálst að keppa í 1/8 ef menn vilja en því hefði ég lítinn áhuga á með mitt apparat.

Stígur minn er ekki allt í lagi!
Þetta er mitt álit á einum áttunda,höfundur þessa pósts er að spyrja um áhuga manna að keyra 1/8,þetta er mitt álit,nei takk.

Já það er rétt hjá þér það er 700hö götubíll í skúrnum og hann fer á númer og fjölskyldan fær bíltúr líka enda á fínu 3.90 drifi.
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 01, 2005, 21:10:21
Ákvað að breyta fyrir þig notenda nafninu mínu,sá að þetta var eitthvað að rugla þig í rýminu.
Title: Hafðu þökk fyrir
Post by: stigurh on April 02, 2005, 08:13:10
Kæri Friðrik D

Það var ekki þitt álit á vegalengdinni sem stóð í mér heldur eitthvað annað. Ég læt vera að fara út í þá sálma þar sem það ruglar þig bara. :roll:  

Mér finnst nýja notendanafnið þitt betra en það gamla. Virkar eldri og reyndari, sem er gott.
Title: 1/8 mila
Post by: stigurh on April 02, 2005, 08:32:02
Hver er munur á 60ft tíma hjá 5sek tæki m/v 1/8,  2000-2500lbs 1/8----1/4

Smá reynsla: við keyrðum OF 1/8 síðasta sumar og ég átti í raun möguleika á að vinna ferð, það gerðist ekki en samt !! Þegar 1/8 var náð var ég skilinn eftir, svona eins og Coyote. Mun erfiðara að vinna 1/4.
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 02, 2005, 10:22:07
Það má vel vera að það sé fínt að keyra 1/8 á þínu tæki,ég hef ekki áhuga á að vera á 5.13 drifi eða þaðan af lægra,ef það er skyndilega betra að vera með hátt drif á bíl á 29" dekki í 1/8 þá væri gott að vita af því.
Title: Re: Hafðu þökk fyrir
Post by: 1965 Chevy II on April 02, 2005, 10:36:14
Quote from: "stigurh"
Kæri Friðrik D

Það var ekki þitt álit á vegalengdinni sem stóð í mér heldur eitthvað annað. Ég læt vera að fara út í þá sálma þar sem það ruglar þig bara. :roll:  

Mér finnst nýja notendanafnið þitt betra en það gamla. Virkar eldri og reyndari, sem er gott.

Endilega ekki gefast upp miðlaðu visku þinni áfram þó að það gæti ruglað mig.
Title: 1/8 mila
Post by: Kiddi J on April 02, 2005, 15:10:48
(http://www.cientifica.com/archives/grump.jpg)
Title: 1/8 mila
Post by: Kristján F on April 02, 2005, 15:52:41
Sælir er ég að misskilja þetta, er ekki bara verið að taka púlsinn á því hvort vilji sé fyrir því að halda eina til tvær svona keppnir ekki breyta öllu keppnisfyrirkomulaginu. ? Svo er aftur kannski annað mál með drifhlutföll í þeim bílum sem verða með í þessu hvort þau henti eða ekki. En fyrir þann sem horfir á er þetta virkilega sniðugt. Skoðiði vel það sem Valur taldi upp.

                                Kristján F
Title: 60 feta tímar
Post by: stigurh on April 02, 2005, 16:48:03
Hver er munur á 60 feta tíma hjá 5 sekúndna tæki, miðað  1/8 úr mílu, 2000-2500lbs að þyngd 1/8 úr mílu eða 1/4 úr mílu ?
Ég er að spá í gírhlutfallið og svoleiðis.
Einhver?

Fyrirgefðu mér Friðrik D. Ég skal ekki gera þetta aftur. Ég er búin að blása.
Þinn vinur stigurh
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 02, 2005, 17:08:17
Kiddi.....góðuuur :lol:

Það er gott að blása Stígur minn þó sumir vilji sjúga.
Ekki veit ég muninn á tímanum en ef bílnum er breytt,hlufalli og fl. ef þarf þá myndi ég halda (þó sumir segi að halda sé sama og vita ekkert sem ég er ekki sammála) að hann færi töluvert betri 60 fet EF hann hefur gott grip eða lítið power.
Það er mjög gaman að horfa á 1/8 sérstaklega í sjónvarpi,miðað við kvartmílu í sjónvarpi, og DVD diskarnir í klúbbnum eru mjög góðir 1/8 mílu dæmi.
Það er að sjálfsögðu hægt að koma á bíl settum upp fyrir 1/4 mílu og keppa í 1/8 en til að ná optimum tímum þarf breytingar sem gera bíla eins og minn td ekki skemmtilegann á götu.
Þess vegna myndi ég ekki vilja 1/8 eingöngu en ef það ætti að keyra eina tvær keppnir for fun þá er ég með.

P.S Kiddi....ég er enn að hlæja að myndinni....snilllldar inlegg :lol:  :lol:
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 02, 2005, 17:20:03
Annað sem ég er að spá (allt á góðu nótunum) Valur segir að mesta keppnin gerist á fyrstu 100 metrunum,Baldur vitnar í þá grein og breytir því reyndar í 200 metra báðir vilja meina að restin sé bara bið eftir endalínu
(hvað ætli Nóna púller finnist um það) og Stíg finnst erfiðara að vinna í 1/4 mílu,smá þversagnir eða ágreiningur á ferð!
Title: 1/8 mila
Post by: baldur on April 02, 2005, 18:26:58
Það sem ég var bara að segja er að það þarf aðeins meiri heimavinnu til að gera góðan 1/8 bíl heldur en góðan 1/4 bíl, ekki nóg að vera bara með helling af hestöflum. (Minna pláss til að bæta upp lélegt launch með sudda poweri) En eins og hefur oft verið sagt: A good street car makes a poor race car and vice versa.
Vissulega er skemmtilegra að geta staðið græjuna í botni lengur, keppnin er bara harðari á styttri vegalengd.
Title: 1/8 mila
Post by: 1965 Chevy II on April 02, 2005, 18:37:03
Akkurat,ég "held" nefnilega líka að það sé erfiðara að vinna 1/8 en ekki auðveldara,kannski prentvilla hjá Stíg.
Svo er gaman að fara hratt svo 1/4 er minn skítur.
Title: 1/8 mila
Post by: Kiddi J on April 02, 2005, 21:17:22
Quote from: "Friðrik D."
Kiddi.....góðuuur :lol:

Það er gott að blása Stígur minn þó sumir vilji sjúga.
Ekki veit ég muninn á tímanum en ef bílnum er breytt,hlufalli og fl. ef þarf þá myndi ég halda (þó sumir segi að halda sé sama og vita ekkert sem ég er ekki sammála) að hann færi töluvert betri 60 fet EF hann hefur gott grip eða lítið power.
Það er mjög gaman að horfa á 1/8 sérstaklega í sjónvarpi,miðað við kvartmílu í sjónvarpi, og DVD diskarnir í klúbbnum eru mjög góðir 1/8 mílu dæmi.
Það er að sjálfsögðu hægt að koma á bíl settum upp fyrir 1/4 mílu og keppa í 1/8 en til að ná optimum tímum þarf breytingar sem gera bíla eins og minn td ekki skemmtilegann á götu.
Þess vegna myndi ég ekki vilja 1/8 eingöngu en ef það ætti að keyra eina tvær keppnir for fun þá er ég með.

P.S Kiddi....ég er enn að hlæja að myndinni....snilllldar inlegg :lol:  :lol:

(http://us.ent4.yimg.com/movies.yahoo.com/images/hv/photo/movie_pix/universal_pictures/american_wedding/seann_william_scott/americanwedding2.jpg)
Title: 1/8 mila
Post by: ÁmK Racing on April 04, 2005, 13:18:59
Hæ strákar er ekki allt í lagi ef  tími og áhugi geft til að prófa að þeysa 1/8.Nota þá bara þá flokka sem eru í gangi.Gæti verið gaman.Bið að heilsa Árni már Kjartansson
Title: Þversögn
Post by: stigurh on April 05, 2005, 13:53:19
Ég vildi sagt hafa að það væri erfiðara !! en það er bara aldrei auðvelt að vinna eitt eða neitt.
Mikið erfiðara að vinna 1/4 vegna kraftleysis og erfiðara að vinna 1/8 vegna samkeppni  !! Þannig var það hjá mér...