Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Siggi H on February 14, 2005, 13:30:42
-
sælir. ég er að lenda í því að á svona 140km hraða þá hristist bíllinn svoldið hjá mér. og hristist meira eftir hraðanum. getur þetta verið drifskaftið ? þessi hristingur kemur beint undir miðjustokknum inní bíl. ég hef ekkert keyrt bílinn af viti núna því ég veit það að ef þetta er drifskaftið og það fer þá sit ég uppi með ónýtan gírkassa og drifskaft og jafnvel drif líka. en endileg komið með upplýsingar sem þið gætuð haldið að þetta sé. það er samt eiginlega ekkert slit í drifskaftinu. en nægir ekki ein beygla til þess að eyðileggja drifskaftið ? hef nefnilega trú á því að það sé beyglað. ef svo er þá þarf ég að skipta um það strax. fékk bílinn svona í hendurnar fékk ekkert neitt rosa info um afhverju hann hristist svona.
Kv.
-
Held að það þurfi bara að láta balancera það ! þetta er ekki óalgengt :wink:
-
Vera bara grand á þessu og kaupa álskaft úr fjórðu kynslóðar bíl. Mér skilst að þau eigi að passa.
kv. Jón H.
P.s. það eru víst samt ekki allir 4t gen með álskaft, svo menn verða að athuga hvort þetta sé ekki örugglega álskaft.

sá á ebay um daginn,skaft úr karbon fiber,átti að þola nokkur hestöflin og kostaði líka sitt :wink:
mig langar í svoleiðis 8)
-
binni þú værir nú ekki lengi að snúa svoleiðis í sundur :wink:
-
keyrðu bara hægar, þá sleppur þetta örugglega.. mátt hvergi á landinu fara í 140 km/h nema á kvartmílubrautinni og hún er í fleiri hundruð kílómetra fjarlægð frá þér.. haltu þig bara við 90 hámarkið.. :D
-
tók nú frammúr einhverri druslu hérna um daginn. hann sagði að hann hefði verið á 200 þegar ég þrumaði frammúr í 4 gír :lol:
-
Vera bara grand á þessu og kaupa álskaft úr fjórðu kynslóðar bíl. Mér skilst að þau eigi að passa.
kv. Jón H.
P.s. það eru víst samt ekki allir 4t gen með álskaft, svo menn verða að athuga hvort þetta sé ekki örugglega álskaft.
Álsköftin komu í 98-02 F body, þ.e.a.s LS1 bílunum......