Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: WS6Conv. on August 27, 2009, 14:51:29
-
Langaði að forvitnast hvort bíllinn hans afa sé enn á lífi.
Dodge Coronet keyptur nýr 1966 á 251þús :) Semsagt Dodge Coronet með nr. E-160
Afi minn er frá skaganum og heitir Sigurður Hallgrímsson aka Diddi Slimm 8-)
Mynd: Sjá viðhengi.
Kv.
Davíð Minnar.
-
Myndin
-
enginn sem lumar á upplýsingum? :)
-
Sæll!
Ég átti fyrir einhverjum 30 árum síðan 66 Belvedere, rauðann með hvítum topp. Getur verið að sá gamli hafi átt hann líka?
kveðja Jói.
-
Held að hann hafi ekki átt þann bíl án þess að þora að hengja mig uppá það....kallinn átti þá nokkra veit ég, hann var leigubílstjóri á þessum tíma og var duglegur að skipta um bíla. Hann átti líka Bel air að mig minnir.

góðærið greinilega komið á þessum tíma bíst ég við :lol:

já, eitthverstaðar hlýtur það að hafa byrjað :) ..... en veit einhver um bílinn?
-
Langaði að forvitnast hvort bíllinn hans afa sé enn á lífi.
Dodge Coronet árgerð 1966, hann keypti hann nýjann. Var með nr. E-160
Afi minn er af skaganum og heitir Sigurður Hallgrímsson
Hann seldi hann á Blönduós á sínum tíma og fór hann þá á H númer...
Mynd: Sjá viðhengi.
Kv.
Davíð Minnar.
-
Sæll. Davíð. Flottur bíll sem Afi þinn átti. Eftir því sem ég best veit er bara einn 66 Dodge Coronet 4 dyra eftir á landinu, hann er ljós blár 6.cc beinskiptur í stýri. Ég á þennann bíl og geymi hann inni og bíður eftir yfirhalningu,er samt tiltulega heill á allt í hann, ætla að setja V8 273 í hann og sjálfskipt.Kveðja. Gulli.