Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Gixxer1 on May 15, 2014, 13:45:02
-
Sælir félagar.
Hvernig er það er einhver munur á keppnisgjöldum/skírteinum fyrir mótorhjól og bíla?
Ég ætla að keppa á mótorhjóli, á ég að versla AKIS skírteini? Eða er eitthvað annað?
Hvenær er planið að hafa fyrstu æfingu?
Kv Bjössi S
-
Þú keppir á vegum MSÍ og þarft því ekki AKÍS skírteini.
Keppendur á vegum MSÍ greiða 1.000 kr. til viðbótar við keppnisgjöld hverju sinni.
Fyrsta keppni er fyrirhuguð 31. maí .... um leið og nýr tímatökubúnaður verður tilbúinn - þá verður haldin æfing!
-
Takk fyrir þetta :)
Er einhver hugmynd hvenær fyrsta æfing gæti orðið? :) :)