Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Krissi Haflida on February 27, 2014, 22:56:36

Title: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: Krissi Haflida on February 27, 2014, 22:56:36
hér er góð lesning fyrir þá sem eru að pæla með vökva á skiptinguna hjá sér
hér eru menna að pæla með glussa á tractora

http://www.429-460.com/t593-the-best-powerglide-fluid (http://www.429-460.com/t593-the-best-powerglide-fluid)
Title: Re: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: Hr.Cummins on February 28, 2014, 01:58:42
Hvað segið þið, á maður að prófa þetta á 48RE :?:
Title: Re: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: Kristján Skjóldal on February 28, 2014, 09:14:12
hvaða vökva notar þú Krissi ? ég hef alltaf notað gamla góða Dextron og ekkert brass með hann  #-o
Title: Re: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: Krissi Haflida on February 28, 2014, 22:52:23
það sem ég hef notað er dex merc valvoline vökvinn, hann hefur skilað sínu
en þegar menn eru komnir upp að vissu power leveli og er að láti berja pilunni
á transbrake-inu þá er það hitastöðullin sem verður þessum vökvum að falli
þola ekki nóg hita.

ég prufaði mig aðeins áfram í fyrra með glussa og likaði vel
það er t.d ekki buið að setja þessi bætiefni í hann eins og vökvana sem eru
seldir með þá notkun í huga að keyra út í búð.
Fann ég fyrir því, fannst skiptingarnar vera aðeins ákafari
annar fílingur á skiptingunni.
en sú skipting hélt ekki, en ekki var það vökvanum að kenna hvað það varðar.

þar sem var fjárfest í nýjum kassa í vetur er ég í töluverðum pælingum
með hvaða vökva ég ætla að nota í sumar, mikið að pæla í john deere vökvanum.

veit að henry ford (kjartan gamli) hann setti mobil glussa á hjá sér sem er fyrir
case dráttavéla skiptingarnar er með nánast sömu staðla og jón digri vökvinn.
er hann aðeins þykkari en hefðbundin sjálfskiptiolia, getur það gerst þá að sviðið á converternum þrengist
væri gaman að fá reynslu sögur af því hér.

hvaða oliu hafa menn verið að nota á kassana hjá sér?
Title: Re: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: Krissi Haflida on February 28, 2014, 23:16:34
hér er annar þráður, þar sem +eg sá hinn likinn

http://www.yellowbullet.com/forum/showthread.php?t=228247 (http://www.yellowbullet.com/forum/showthread.php?t=228247)
Title: Re: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: Hr.Cummins on March 01, 2014, 02:09:49
Vá, mér sýnist ég ætla að skoða þetta líst reyndar best á Case vökvann eftir það sem að ég er búinn að lesa, virðist vera að kæla best...
Title: Re: þráður um sjálfskipti vökva
Post by: ÁmK Racing on March 01, 2014, 09:03:45
Hæ þetta hefur komið mjög vel út í Mustangnum skiptinginn hitnar ekki mikið og er mjög ákveðinn.Við höfum reyndar ekki neinn samanburð á converternum þar sem við höfum bara keyrt þetta á glussa.Við erum að nota vökva sem heitir Mobile fluid 426 og er hann með sömu staðla og Jón Digri.Ég hef verið með bæði Shell Donax syntetec og Royal Purpul á powerglidinu hjá mér og Royal Purpul er rusl skipting er 10-12 gráðum heitari eftir ferðina á því sulli.Ég ætla að nota Mobil glussan í sumar.