Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - ABARTH

Pages: [1]
1
Leit að bílum og eigendum þeirra. / Fiat 131 Racing ?
« on: November 26, 2010, 00:04:57 »
Var að stunda smá fornleifauppgröft þegar ég fann þessa:





Ég væri alveg svakalega til í að fá að vita hvað varð um þessa bíla, og restina af þessum bílum sem voru hérna :)

Langar svakalega mikið að finna svona bíl á lífi (eða dauðvona eitthverstaðar út á túni)

Veit eitthver eitthvað um þessa bíla? Hvar þeir enduðu og hvort eitthverjir þeirra hafi ekki endað í pressunni / úr landi ? :cry:


Mbkv.

2
langar rosalega að finna eitthverja gamla (80s???) körfustóla (eða bara flotta venjulega stóla) í lélegu ástandi sem væri hægt að gera upp,
mega líka vera hálf-körfustólar eða eitthvað þannig en þurfa helst bara að vera ágætlega töff.

átt þú þannig? eða veistu um? endilega látið mig vita í tölvupóst :)

dannicool11@hotmail.com

3
Varahlutir Óskast Keyptir / Fiat TwinCam Mótor ???
« on: September 29, 2010, 02:16:09 »
Veit eitthver um svona mótor sem er falur?
Hvort sem það er 1.6 eða 2.0 eða aðrar útfærslur? :)
Væri svakalega til í að eignast auka mótor til að tjúna í Ritmoinn minn   \:D/ .

dannicool11@hotmail.com

4
Evrópskt / Fiat Ritmo 125 TC Abarth
« on: July 24, 2010, 06:56:02 »
Ákvað að búa hér til þráð um bíl sem ég og Pabbi höfum verið að dunda okkur í í dágóðann tíma :)

Þetta er semsagt 1982 módel af Fiat Ritmo Abarth (125 TC nánar tiltekið), sem kemur original með 2.0 Twincam mótor.
Hann leit sirka svona út þegar við fengum hann, fann þessa mynd á netinu frá fyrri eiganda:


Svo ein frá mér þegar við komum með hann heim


Því miður krassaði tölvan mín í vetur og tapaði ég slatta af myndum við það, er að reyna að sanka þeim að mér aftur, en svona leit þetta nokkurnveginn út í upphafi:






Svo fór þetta að ganga eitthvað og við rifum tjörumotturnar af botninum sem var alveg hræðilega leiðinlegt, en það tókst á endanum, þar leyndust nokkur göt og erum við búnir að bæta í þau flest.
Næst voru það gluggapóstarnir, fann bara eina mynd en við erum búnir báðar afturhliðarrúðurnar:



Svo skelltum við okkur í innri afturbrettin:






Svo létum við sandblása demparaturnabitana eða hvað sem það kallast nú:







Svo færðum við okkur lengra þar sem það var ryð og sparsl/trebbaklessur bókstaflega allstaðar:





Ég að sjóða  =D>




Meira ryð, jei!

Svo einn daginn vorum við komnir upp í horn á afturbrettum sem var





Partur af því sem við höfum skorið úr  :lol:

Jújú svo var haldið áfram:





Svo hér er næsta verkefni  :D


Reyni að uppfæra þetta svo að bestu getu.

Kv,Daníel.

5
Vissi ekki hvert ég ætti að setja þennann þráð en allavega, mig vantar myndir af bílnum sem ég er að gera upp með Pabba :) Jafnvel þó svo hann sjáist bara réttsvo á myndinni.

Það var rallykappi sem átti þennann bíl upprunalega og flutti inn, langar svo hrikalega að sjá myndir af honum síðan hann var nýr / nýlegur.
Minnir að hann hafi verið á Selfossi / Hveragerði.

Þetta er nákvæmlega eins bíll:




Fyrirfram Þakkir, og Gleðileg Jól!

Daníel Þór.

Pages: [1]