Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: kjh on October 22, 2009, 22:15:03

Title: Frétt frá mbl.is - Stolin dekk
Post by: kjh on October 22, 2009, 22:15:03
Sá þetta á mbl, spurning hvort einhver hér kannist ekki við eigandann...


"Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á nokkur bíldekk á felgum  í Árbæ um miðjan dag í gær. Dekkin höfðu verið auglýst til sölu á netinu en talið er að þeim hafi verið stolið.

Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsóknina en hann sagðist nýlega hafa fundið dekkin í öðru hverfi í borginni og slegið eign sinni á þau. Lögreglan leitar því réttmæts eiganda dekkjanna en sá hinn sami getur haft samband við lögregluna í síma 444-1190 á skrifstofutíma. Óskað verður eftir staðfestingu á eignarhaldi en dekkin má sjá á myndinni hér að neðan.

Þá hvetur lögreglan fólk til að hafa samband þegar þýfi er annars vegar og minnir á ábyrgð þess, þegar svo ber undir, sem kaupir þýfi.  "

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/10/22/stolin_dekk_auglyst_til_solu/

Title: Re: Frétt frá mbl.is - Stolin dekk
Post by: Belair on October 22, 2009, 22:17:13
 :D komið
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=45736.0