Mér finnst þetta vera vandræðalegt hjá þér mixmaster2000, það hlýtur að vera smekkur manna sem hér gildir, þeirra síða, þeirra hentisemi. Þetta er heldur ekki vettvangur til að skíta yfir aðra þannig að ég mælist til þess að þú hugsir um það sem þú skrifar, við viljum ekki ófrið á spjallinu vegna einhvers bjánalegs innleggs. Ég held að það sé gott á milli KK og L2C enda engin ástæða til annars, allavega eru hér einhverjir á sveimi á þessu spjalli og þeir voru duglegir að koma á föstudagsæfingar í sumar.
Hérna inni finnst okkur til dæmis gaman að segja frá einhverju áhugaverðu sem við höfum rekist á á netinu eða sem gjarnan við kemur kvartmílu.
Hér er ágætt dæmi um það sem mér finnst áhugavert:
Import racing
http://www.cscs.ca/Mótorsportvefur í Svíþjóð
http://www.nitroz.se/Fleira mætti mætti svosem nefna en læt þetta duga, endilega póstið eitthvað sem ykkur finnst skemmtilegt að skoða og tengist kvartmílu, maður fer hingað til að skoða svoleiðis.