Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Anton Ólafsson on December 04, 2007, 08:42:19
-
Jæja bíll dagsins að þessu sinni er GTS 98177298 hann er nú reyndar farinn yfir móðuna miklu.
Hérna er grein eftir Jak sem birtist í Bíla blaðinu í nóvember 1977.
(http://farm3.static.flickr.com/2136/2083412445_be6eb0bf86_b.jpg)
(http://farm3.static.flickr.com/2010/2084204296_8d88f8d287_b.jpg)
Hérna er hann svo á sýningu B.A 1979,
(http://farm3.static.flickr.com/2262/2083387643_04e8fa54d0.jpg)
Hérna er S.Andersen kominn með hann. (Myndir af bílavef)
(http://farm3.static.flickr.com/2003/2084173848_3649973475.jpg)
(http://farm3.static.flickr.com/2197/2083387255_65395cf2ab.jpg)
Ég held að þetta sé hann (mynd af bílavef)
(http://farm3.static.flickr.com/2369/2083397545_114f67e2cd.jpg)
Hérna er hann svo sumarið 98 hjá Gulla.
(http://farm3.static.flickr.com/2206/2083396883_0ca2bda92e.jpg)
Ég á reyndar ekki mynd af honum eftir að hann var rifinn, en í hinni epísku margumræddu költ stórmynd í Skúr Drekans sést S.Andersen máta sigí "restinni".
30.11.1989 Guðmundur Árni Ágústsson Austurbrún 6
16.04.1989 Sveinn Steinar Guðsteinsson Raufarsel 13
23.10.1988 Haraldur Pétursson Noregur
15.10.1987 Ágúst Jóhannsson Vesturberg 72
11.12.1986 Hafdís Jónsdóttir Tröllateigur 26
16.08.1986 Sigurður Þórarinn Árnason Tröllateigur 26
20.06.1984 Garðar Ólafsson Breiðvangur 28
18.06.1980 Ólafur Sigurjónsson Hólagata 5
04.01.1980 Erling Sigurjón Andersen Einiberg 25
06.07.1979 Kristinn Björnsson Einholt 10c
31.01.1978 Birgir Ólason Hraunbær 12a
31.10.1975 Halldór Hreinsson Hlíðarvegur 3
19.12.1986 X2186 Gamlar plötur
23.11.1984 Ö6647 Gamlar plötur
19.06.1980 G13407 Gamlar plötur
04.01.1980 G5477 Gamlar plötur
06.07.1979 A1959 Gamlar plötur
31.01.1978 F142 Gamlar plötur
31.10.1975 Y428 Gamlar plötur
-
Er vitað hvað varð um mótorinn úr honum?
-
mér finnst þessi mynd algjör snilld
(http://farm3.static.flickr.com/2197/2083387255_65395cf2ab.jpg)
-
Snilldar grein hjá JAK. Veit að hann er að koma með flotta grein í næsta Bílar & Sport um ólöglegar spyrnur...... fullt af myndum úr Kollafyrðinum.
-
allt saman Mopar, hvað er mustanginn að þvælast þarna :lol:
-
Já herrar mínir og frúr
Hér er þetta eðaltæki fyrir utan hina alræmdu Moparstaði við Akureyri á júníkvöldi c.a. 1978. Moparpabbi bograr borginmannlegur yfir 340 vélinni og við hlið hans eru Maggi Einarss og Biggi Arnarss en Örn Brautryðjandi faðir hans flutti m.a. inn 400 ´73 Chargerinn bláa og svo Akureyrarkorvettuna svonefndu.
Þær fá nú aldeilis að njóta sín Varmahlíðarrendurnar á þessari mynd :oops:
Vek athygli á að í greininni ágætu hér að ofan er að sjálfsögðu vísa sem ljær henni ómumræðanlega menningarsögulegt gildi :D
-
Held að það sé þessi sem ég keypti úr Álfheimum passar við græna plussið var orðinn mjög dapur vélin úrbrædd ofl seldi hann fljótlega aftur en ég veit um mótorinn og það er allt nýtt í honum nema stiplarnir,68 árgerð af 340
-
Þessu kvöldi man ég eftir :)
Þetta umrætt kvöld, barst sú saga á rúntinum í Keflavík að það væru nokkrir bílar á leið úr Bænum til að spyrna á Garðsvegi og þar sem til stóð að okkar menn úr Garðinum, (Ingi í Lindartúni á Charger og Keli á Rafnkelsstöðum á 340 GTS) ætluðu að keppa, var ekki um annað að ræða að mæta á staðinn. Var farþegi með öðrum þar sem ég var ekki búinn að ná bílprófsaldri.
Upp úr miðnætti (ábyggilega á sunnudagskvöldi) byrjaði fjörið en þar sem að margir áhorfendur voru komst ég ekki á nógu góðan stað til að sjá vel hvernig gekk hjá mínum mönnum. Mig mynnir að Keli hafi verið búinn að vinna einhvejar spyrnur áður en að Chargerinn og græni GTS-inn tókust á.
Kom ekki önnur grein um þetta atvik í Samúel með myndum af vetvangi?
Eins og mig rámi í það.
Keppnin leystist upp eftir að sá græni bræddi úr sér, þó getur verið að einhverjir Suðurnesjamenn hafi áfram reynt með sér.
Seinna tók Ingi upp vélina í Chargernum og hresti hana eitthvað við og spyrnti við Kela á GTS-inum en menn gátu ekki ákveðið hvor hefði unnið, svo jafnir voru þeir.
Kv. Gunnar B.
-
Flott mynd Ragnar, rendurnar njóta sín einstaklega vel á myndinni, og ánægðastur er ég nú með það að bensínlokið hafi ekki verið skilið útundan.
Ég er annars búinn að bíða spenntur eftir því hvort enginn mundi kommenta á stökuna,
-
Þessi halldór sem er getið þarna í greininni,
var hann ekki að vinna í Vökli á þessum tíma :?:
Ég þekki einn náunga sem var að vinna með honum
frá "75 til "77 og átti "69 Barracudu með 318.
-
Jæja vegna mikillar eftirspurnar eru GTS-ar væntanlegir á söluna.
(http://farm4.static.flickr.com/3156/3019276309_ca73230d4a.jpg)
-
Jæja nokkrar glóðvolgar af akureyrartækinu,
(http://farm4.static.flickr.com/3183/3027931495_009b33c7e2.jpg)
(http://farm4.static.flickr.com/3141/3027931499_823c96b03a.jpg)
Þessir Challa stólar eru enn til, skoðaði þá um síðustu helgi,
(http://farm4.static.flickr.com/3178/3027931507_5b02742714.jpg)
-
þessi er nú með þeim ljótari sem maður hefur séð :D
-
Ein ný skönnuð.
(http://farm4.static.flickr.com/3181/3053016072_0c4f5eed90_o.jpg)
-
Hehe.. flott auglysing
Street heavy hemy, tucker millihead, brane undirlyftur, Mally kveikja, djúpbólstraður
ókeypis aðgangur, börn í fylgd með fullorðnum :D
-
(http://farm4.static.flickr.com/3299/3568963090_ec6fd03ec2.jpg)
(http://farm4.static.flickr.com/3334/3568970998_abe4a0d431.jpg)
-
Sæll Anton
Hér eru 2 myndir af þessum sem að ég fann
-
Sæll, seinni myndin er A 5050, 1968 Charger.
kv
Björgvin
-
Úpps,var of fljótur á mér :oops:
-
Sælir félagar.
Gaman að þessari GTS umfjöllun.Þessi mynd sem Bjögvin setti inn
við hliðina á bárujárnsskúrnum er tekin rétt eftir að ég kaupi hann tjónaðan
vinstra megin að framan.Ég var fljótur að gera við hann og taka þessa hörmulegu málningu af.
Ég lét mála hann grænan aftur og tók hann allan í gegn.
Það eru til nokkrar myndir af honum í fjöskyldualbúminu sem ég
skal reyna að koma inn.
K.V.
S.Andersen