Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Toni Camaro on February 21, 2007, 17:07:27

Title: Monte Carlo 86
Post by: Toni Camaro on February 21, 2007, 17:07:27
veit einhver um þennan bíl
(http://memimage.cardomain.net/member_images/5/web/2573000-2573999/2573804_1_full.jpg)
Title: Monte Carlo 86
Post by: JONNI on February 21, 2007, 19:01:21
Er þessi svartur??

Það voru til 3 monte carlo ss á Íslandi.

Svartur Fluttur inn af Ólafi Péturssyni.

Dökk vínrauður sem Benni Eyjólfs flutti inn.

og einn annar Dökkvínrauður sem Pabbi átti, en var fluttur inn af Hinriki Þráinssyni.

Mig minnir að Svarti bíllinn hafi ekki verið með T Topp.

Kveðja, Jonni.
Title: Monte Carlo 86
Post by: íbbiM on February 21, 2007, 19:33:41
hvað varð um bílin sem stóð alltaf inní hafnarfirði?
Title: Monte Carlo 86
Post by: Svenni Devil Racing on February 21, 2007, 19:50:01
við erum með 1 monte carlo ss árg 87 sem kemur af vellinum frekar mikið riðgaður sko , en ef einhver veit um gott body af monte carlo má hann alveg láta mig vita svo hægt sé að færa allt á milli
Title: Monte Carlo 86
Post by: Toni Camaro on February 21, 2007, 20:02:04
er bíllinn hans óskars ekki  fínn í burnoutið í sumar  :twisted:
Title: Monte Carlo 86
Post by: Ziggi on February 21, 2007, 20:09:22
Quote from: "íbbiM"
hvað varð um bílin sem stóð alltaf inní hafnarfirði?


Ertu að tala um þennan?
(http://memimage.cardomain.net/member_images/11/web/539000-539999/539568_14_full.jpg)
Title: Monte Carlo 86
Post by: íbbiM on February 21, 2007, 20:22:28
nei ég er að tala um SS bíl, dökkan   man samt eftir þessum líka reyndar
Title: Monte Carlo 86
Post by: firebird400 on February 21, 2007, 20:42:31
Er hann að rembast í bakkgír þarna eða  :?
Title: Monte Carlo 86
Post by: Ingvi on February 21, 2007, 21:08:54
Bíllinn sem stóð í Hafnarfirði er í eigu Ingvars Jóhannssonar.
Hann er dökk vínrauður að lit eða mórauður með aðeins brúnu (erfitt að segja).
Sá bíll er 86 SS með T topp, er á Trönuhrauni og var ekki til sölu síðast þegar ég vissi.
Title: Monte Carlo 86
Post by: baldur on February 21, 2007, 23:19:58
Quote from: "firebird400"
Er hann að rembast í bakkgír þarna eða  :?


Já þetta er nú bara 305, og það í þreyttara lagi. Minnir að þessi bíll hafi verið að aka á 17 sekúndum sumarið 2003.
Title: Monte Carlo 86
Post by: JONNI on February 21, 2007, 23:39:24
Quote from: "Ingvi"
Bíllinn sem stóð í Hafnarfirði er í eigu Ingvars Jóhannssonar.
Hann er dökk vínrauður að lit eða mórauður með aðeins brúnu (erfitt að segja).
Sá bíll er 86 SS með T topp, er á Trönuhrauni og var ekki til sölu síðast þegar ég vissi.


Það er Monte SS # 3 innfluttur af Hinriki Þráinssyni.

Kv, Jonni.
Title: Monte Carlo 86
Post by: siggik on February 22, 2007, 17:36:42
Quote from: "Ziggi"
Quote from: "íbbiM"
hvað varð um bílin sem stóð alltaf inní hafnarfirði?


Ertu að tala um þennan?
(http://memimage.cardomain.net/member_images/11/web/539000-539999/539568_14_full.jpg)


hvar er þessi
Title: Monte Carlo 86
Post by: Jói ÖK on February 22, 2007, 17:45:23
Quote from: "siggik"
Quote from: "Ziggi"
Quote from: "íbbiM"
hvað varð um bílin sem stóð alltaf inní hafnarfirði?


Ertu að tala um þennan?
(http://memimage.cardomain.net/member_images/11/web/539000-539999/539568_14_full.jpg)


hvar er þessi

ég sá hann alltaf standa í kópavogi í sumar... ekki langt frá Fífunni, íþróttahúsinu :o
Title: Monte Carlo 86
Post by: Ingvar jóhannsson on March 01, 2007, 23:40:46
Smá leiðrétting.  Monte carlo-inn minn er fluttur inn af Benna Eyólfs.  Lengi vel vissi ég bara af mínum og þessum svarta (líklega þessi á myndinni).  Þessi svarti var án t-topps.  En eftir að ég keypti hann sá ég tvisvar silfraðann SS bíl sem ég veit ekkert um.  Sá hann með nokkura ára millibili og seinna skiptið var hann greinilega farinn að ryðga.  Er það bíllinn af vellinum???  Svo fór að bera á öðrum vínrauðum sem ég sá stundum lagt við borgarspítalann.  Jonni, er það bíllinn sem pabbi þinn átti?

Kv
Ingvar
Title: Monte Carlo 86
Post by: JONNI on March 02, 2007, 00:56:38
Sæll Ingvar.

Ég er nokkuð viss um að bíllinn sem þú átt sé gamli bíllinn hans pabba, annars er auðvelt að fletta þessu upp í bifreiðaskrá.

Ég man að bíllinn hans pabba var málaður seinna og ekki original ss strípurnar settar á heldur pin stripes sem eru eins og á þínum.

Annars er þetta allt farið að renna saman í eitt........hehe.

Kveðja, Jonni
Title: Monte Carlo 86
Post by: Ingvar jóhannsson on March 02, 2007, 01:05:11
Það má vel vera að pabbi þinn hafi átt bílinn en ég er nánast viss að þetta er bíllinn sem Benni flutti inn.  Á tímabili var mynd af honum í Bílabúð Benna.  En það er langt síðan ég fór yfir þessi mál.  Ég held það sé kominn tími á að yfirfara eiganda skrána til að fullyrða þetta.  Ef ég man rétt var bíllinn fluttur inn sirka árs gamall.  Ég er búinn að eiga bílinn frá sirka 1996.  

Kveðja
Ingvar
Title: Monte Carlo 86
Post by: JONNI on March 02, 2007, 01:21:08
Já það er sennilega einfaldast......hehe.

Og er ekki kominn tími til að nota hann..............eða ertu að nota hann, það eru rúm 5 ár síðan maður var á skúrarölti í firðinum.

Kveðja,

Jonni
Title: Monte Carlo 86
Post by: Ingvar jóhannsson on March 02, 2007, 01:34:34
Nei, ekkert notað hann að viti í nokkur ár.  Staða: boddý vinna en þó í biðstöðu.  En að öðru leiti í lagi :) .  Ég ætla að skoða þetta með skráninguna á morgun.  Posta því við tækifæri.
Title: Monte Carlo 86
Post by: Ingvar jóhannsson on March 02, 2007, 01:57:03
Sæll Jonni, þetta er rétt hjá þér.  Bíllinn sem ég á er fluttur inn af pabba þínum.  Ég komst inn í ökutækjaskrána gegnum rsk.  Það var lengi vel sagt að þetta væri bíllinn sem Benni flutti inn.  Ég spyr þá hvaða Carlo flutti Benni inn?
Title: Monte Carlo 86
Post by: sindrib on March 02, 2007, 02:30:21
Quote from: "siggik"
Quote from: "Ziggi"
Quote from: "íbbiM"
hvað varð um bílin sem stóð alltaf inní hafnarfirði?


Ertu að tala um þennan?
(http://memimage.cardomain.net/member_images/11/web/539000-539999/539568_14_full.jpg)


hvar er þessi


hehe massa mynd af balla frænda þarna :lol:
þessi bíll var með 305, þegar hann ´fór mílun á 17 sek, þá var hann eh vanstilltur greyjið, hann vanstilltist alltaf sjálfur, ég held samt að hann hafi fundið eh útúr því á endanum, en þetta var nú samt töff bíll
Title: Monte Carlo 86
Post by: Busli on March 08, 2007, 21:08:41
stendur þessi drappaði ekki í kóp að ryðga niður?!?
Title: Monte Carlo 86
Post by: valurcaprice on April 15, 2007, 18:22:26
ég hef ekki séð hann í kópavogi í nokkra mánuði. sá hann hins vegar í hafnafirðinum áðan á horni Óseyrarbraut og stapargötu. ég stoppaði stutt en mér sýndist eithvað búið að lagfæra hann frá því að ég sá hann í kópavogi
Title: Monte Carlo 86
Post by: Geir-H on April 16, 2007, 01:36:50
Quote from: "Ingvar jóhannsson"
Sæll Jonni, þetta er rétt hjá þér.  Bíllinn sem ég á er fluttur inn af pabba þínum.  Ég komst inn í ökutækjaskrána gegnum rsk.  Það var lengi vel sagt að þetta væri bíllinn sem Benni flutti inn.  Ég spyr þá hvaða Carlo flutti Benni inn?


Benni flutti inn bíl sem ber númerið Mc 155, skoðaði hann 2004 og þá var hann í döpru ástandi upp í grafarvogi, nokkuð viss á þessu það sem að eigandi sagði mér að Benni hafi flutt hann inn hann er dökkur á litinn
Title: Monte Carlo 86
Post by: Tóti on April 16, 2007, 21:10:21
Ein mynd af MC-155, var almálaður 2005 minnir mig, sá hann í fyrradag og hann er orðinn örlítið döpurlegur, kominn á orginal felgur sýndist mér.
Title: Monte Carlo 86
Post by: Jói ÖK on April 16, 2007, 22:43:40
Quote from: "Tóti"
Ein mynd af MC-155, var almálaður 2005 minnir mig, sá hann í fyrradag og hann er orðinn örlítið döpurlegur, kominn á orginal felgur sýndist mér.

Ég sá hann held ég líka í fyrradag :o  Var jú kominn á orginal felgur og sá svoldið á honum :(