305
« on: September 07, 2006, 00:44:18 »
Sæll Hálfdán í þessari hártogun þinni á orðalagi um dekkjareglu get ég ekki verið sammála vegna þess að það er alveg eins hægt að túlka þetta á tvo vegu í hina áttina, í reglunni stendur að dekk sem eru merkt sérstaklega soft compound eru bönnuð svo kemur hitt að inn í sviga kemu götuslikkar og þeir eru bannaðir. Ég á sjálfur nýtt par af mickey thompson et street radial sem eru hvergi merkt sem soft compound utan á en þau eru seld sem drag radial dekk og eru soft compound r2 samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda. Og eru þar af leiðandi ekki löglegir í MC. Það er náttúrulega þannig að það er ekkert sem bannar skoðunarmönnum klúbbsins að fara inn á heimasíður dekkjaframleiðanda og kynna sér þeirra framleiðslu.Ábending þín um að reglur þurfi að vera skýrar er góð og þörf ábending. Við vitum það vel sem að í þessu stöndum að reglurnar eru ekki nógu góðar margt er gamaldags og eins er ósamræmi víða í því hvað er leyft og hvað er bannað.En í sumar eru það radial dekk sem gilda í MC.
Kv Stjáni