Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Lolli DSM on August 05, 2011, 13:59:03

Title: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on August 05, 2011, 13:59:03
Þessir gæjar eru að fara að reyna við 6sec um helgina.
Þetta yrði þá annað 4G63 powered tækið í heiminum til að ná því.

4G63 Dragster goes 7.04 at 190! (http://www.youtube.com/watch?v=RVurhzRQhrY#ws)
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Daníel Már on August 05, 2011, 16:04:23
Hrikalega flott !!  =D>
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lindemann on August 05, 2011, 17:47:55
helvíti væri þetta flott tæki hérna heima í OF flokkinn  :mrgreen:
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: baldur on August 05, 2011, 21:26:43
Haha þetta er svo rosalega rólegt að sjá eitthvað. Ekker drama, bara tekur þétt af stað, svo sér maður 7.04 á 190mph :D
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Kiddi on August 05, 2011, 23:39:11
Hvað ætli svona apparat sé þungt? Flottur árangur :!:
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on August 10, 2011, 10:03:19
ÞAÐ HAFÐIST!!

http://youtu.be/lA1vGgopG_U (http://youtu.be/lA1vGgopG_U)
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Daníel Hinriksson on August 10, 2011, 23:00:38
DEM! Væri til í svona 60ft. 1.07!  :mrgreen:

Þetta er frábær árangur hjá þeim og það með 2ja lítra mótor!
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on September 08, 2011, 21:57:03
Örlítil bæting og einn mótor dáinn :)
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Shafiroff on September 09, 2011, 11:50:35
Tveggja lítra ha hvernig fáið það út.Hvað er bústið,er það ekki málið...............En gott samt.
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on September 14, 2011, 22:08:55
Mótorinn er 2lítra, sama hvaða snígill hangir í pústinu á honum. En þessir eru ekkert að boosta svo mikið... bara e-ð rétt í kringum 40psi :)
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: eva racing on September 15, 2011, 15:32:58
Hæ.
  ef notuð er einföld margföldun þá gera 2 l og 45 psi ca 6 lítra og þá er niðurstaðan svipuð í svona dragga.
Þetta er alveg stórgott ef hann væri með eitthvað hallærislegt einsog V-8 og turbo (jafnmargir ventlar)væri hann sennilega að drullast í 5,50  Hver nennir svoleiðis hangsi...
en flott græja...
kv Valur Vífilss þrýstingsaðdáandi....
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on September 16, 2011, 22:07:01
Það er engin einföld marföldun til sem segir að x psi = x mörg cid Valur. Það eru margar aðrar breytur sem koma inní eins og þjappa mótors, eldneyti og kveikja.

Hvað varð um einföldu 1.7 x L = uppreiknuð vélarstærð. Sem breytir samt engu. Mótorinn er ekkert að stækka....
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: 1965 Chevy II on September 16, 2011, 22:43:47
ÞAÐ HAFÐIST!!

http://youtu.be/lA1vGgopG_U (http://youtu.be/lA1vGgopG_U)
Flottur árangur hjá þeim með svona lítinn mótor.
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: eva racing on September 21, 2011, 17:39:23
Hæ.
já þetta er frábær árangur...
      .....dísis kræst kvað þið eruð tötsí.....
En Lolli minn þú þarft samt aftur að kíkja í eðlisfræði 101.  vél sem er einn lítri tekur einn lítra af lofti við andrúmsloftsþrýst. ef þú tvöfaldar þrýstinginn inná hana þá (þeóríst) tekur hún helmingi meira. ef þú ferð í þrefaldann andrúmsloftsþrýsting þá ......  alveg rétt hjá þér....Rétt hjá þér líka,  það spilar samt margt inní t.d snúnigur jarðar, staða himintungla,  litur á sokkum, etc..

Kær kveðja
Valur Vífilss sérlegur áhugamaður um þrýstihópa....


PS. nei ég ætla ekki að rífast um þetta..
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: ElliOfur on September 28, 2011, 22:06:17
Já alveg rétt, nú man ég afhverju ég kíki svona sjaldan hérna á þennan sandkassa, hér er umtalsverður skortur á kurteisi.
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Hr.Cummins on September 28, 2011, 23:58:02
Án gríns ?? eru menn virkilega að blammera þetta...

Mér þykir þetta GEÐVEIKUR árangur !!!
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on October 01, 2011, 09:22:32
Sælir, þetta hefur ekkert með sandkassaleik eða að vera "tötsí".

Mig einfaldlega langar bara að leiðrétta útbreiddan misskilning um turbofræði meðal margra og þá sérstaklega meðal margra kvartmílumanna á íslandi.
Það að vera með 1L vél við eitt bar (1athm) gerir hana ekki að 2L við 2bör (2athm) og svo framvegis. Það er FLÆÐIÐ ekki þrýstingurinn sem skiptir máli. Túrbína sem flæðir ekki nóg og vél sem er með lága nýtni nær aldrei að auka rúmtakið á lofri um tvöfalt við að tvöfalda þrýstinginn.
Túrbínur eru með mismunandi nýtni og VE (volumetric efficiency) véla er mismunandi. Svo eru auðvitað fullt af öðrum breytum sem allir þekkja (t.d. hæð yfir sjávarmáli, virkni intercoolers, eldsneyti, lofthiti og litur á sokkum ökumanns)

Turbo er bara málið! Allir að fá sér.

Kveðja, Lolli
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Hr.Cummins on October 01, 2011, 10:47:19
Sælir, þetta hefur ekkert með sandkassaleik eða að vera "tötsí".

Mig einfaldlega langar bara að leiðrétta útbreiddan misskilning um turbofræði meðal margra og þá sérstaklega meðal margra kvartmílumanna á íslandi.
Það að vera með 1L vél við eitt bar (1athm) gerir hana ekki að 2L við 2bör (2athm) og svo framvegis. Það er FLÆÐIÐ ekki þrýstingurinn sem skiptir máli. Túrbína sem flæðir ekki nóg og vél sem er með lága nýtni nær aldrei að auka rúmtakið á lofri um tvöfalt við að tvöfalda þrýstinginn.
Túrbínur eru með mismunandi nýtni og VE (volumetric efficiency) véla er mismunandi. Svo eru auðvitað fullt af öðrum breytum sem allir þekkja (t.d. hæð yfir sjávarmáli, virkni intercoolers, eldsneyti, lofthiti og litur á sokkum ökumanns)

Turbo er bara málið! Allir að fá sér.

Kveðja, Lolli

Ætla að fá mér :)

En já, svo dæmi sé tekið þá var ég einmitt að standa í svipuðum þrætum á öðru spjallborði um daginn...

Þar snéri dæmið að því að VAC motorsport væru ekki að framleiða nógu góða vöru með þau hedd sem að þeir voru að bjóða uppá við V12 M70 BMW mótor...

Samt var sannaður og sýndur árangur þar sem að menn voru að taka út 1100hp @ 2.9bar, skiptu um hedd og voru allt í einu að taka út 1300hp @ 2.1bar!

Er þá umræddur mótor "slagrýmis-minni" eftir að heddin voru betrumbætt og látin flæða meira ? Turbo er klárlega málið.... capische ?
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Kiddi on October 01, 2011, 11:35:42
Aaaahhhh... Jæja strákar  :lol: :lol:
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: 1965 Chevy II on October 01, 2011, 13:20:58
2l eða 8l mér er slétt sama, þarna er flott tæki sem er fljótari að fara kvartmíluna en nokkuð tæki hér á landi hefur farið 1/4 mílu !
Er ekki sama hvernig menn "gera það" á meðan konan er ánægð  :lol:
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: Lolli DSM on October 01, 2011, 16:13:27
Hehe góður Frikki :)
Title: Re: 2lítra í 6sec um helgina?
Post by: kallispeed on October 02, 2011, 21:35:15
2l eða 8l mér er slétt sama, þarna er flott tæki sem er fljótari að fara kvartmíluna en nokkuð tæki hér á landi hefur farið 1/4 mílu !
Er ekki sama hvernig menn "gera það" á meðan konan er ánægð  :lol:
eheheheheeh samála ... heheh.... :mrgreen: